Morgunblaðið - 21.06.2009, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 21.06.2009, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2009 Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is PÁLL Óskar Hjálmtýsson og Mon- ika Abendroth hörpuleikari halda í kvöld árlega sólstöðutónleika í Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal, til að fagna lengsta degi ársins. Páli Óskari verður þá afhent platínu- plata til viðurkenningar á því að safnplatan sem hann gaf út í fyrra, Silfursafnið, hefur nú selst í yfir 16 þúsund eintökum en þar af seldust um 10 þúsund um jólin. – Þú hefur verið á blússandi sigl- ingu undanfarið? „Já, vá, ég er ennþá að jafna mig bara, jafna mig líkamlega og and- lega á þessum hasar seinustu þrjú ár ævi minnar,“ segir Páll Óskar. Hann hafi alltaf haft mikið að gera en aldrei þó eins mikið og þessi þrjú ár. Byrjaður að dúlla sér við plötu – Er ný plata væntanleg frá þér? „Jú, auðvitað er maður byrjaður að dúlla sér við næstu plötu, en þetta er ekkert nema dúllerí ennþá. Ég er kannski bjartsýnn að segja að hún geti komið út fyrir jólin 2010. En ég er alla vega í pásu þessi jól og svo mun ég örugglega hafa sama háttinn á eins og með Allt fyrir ást- ina, ég vil ekki sleppa tökunum af plötunum fyrr en ég heyri að þetta sé orðið gott. Mig langar ekki að senda frá mér hálfbakaðar plötur sem eru ennþá inni í ofninum. En þegar lögin fara að koma þá fara þau að heyrast. Við Öggi erum að stinga saman nefjum, ég og Örlygur Smári,“ segir Páll Óskar, en fyrir þá sem ekki vita samdi Örlygur lögin á fyrstu þremur smáskífum Páls Ósk- ars í hitteðfyrra sem nutu mikilla vinsælda hér á landi. „Svo er aldrei að vita hverjir bætast í hópinn,“ bætir hann við. Páll Óskar segist vera að hlaða batteríin þessa dagana og taki því nokkur vel valin „gigg“ sem hann langi að gera og hafi gaman af. Þess á milli taki hann sér frí og reyni að nýta tímann í stúdíóvinnu. – Þannig að sólstöðutónleikarnir í kvöld eru ákveðin slökun fyrir þig? „Jesss, algjörlega. Sólstöðu- tónleikarnir eru ákveðið móment, augnablik á árinu sem ég vil ekki sleppa,“ svarar Páll Óskar. Tónleik- arnir hefjast kl. 23 og lýkur um klukkustund og kortéri síðar. Þá ganga tónleikagestir út í miðnæt- ursólina sem Páll Óskar segir sér- staklega hátíðlegt og töfrum hlaðið augnablik. Stuðlög á hörpu Fyrstu sólstöðutónleikar þeirra Moniku voru haldnir árið 2001 og að þessu sinni verður fókusinn dálítið á Silfursafnið, búið að útsetja lög sér- staklega fyrir hörpuna, burtséð frá því hvort þau eru róleg eða stuðlög. „Þú komst við hjartað í mér“, „Betra líf“ og „Allt fyrir ástina“ eru t.d. á efnisskrá en einnig lög sem Palli segist ekki hafa sungið í óra- tíma, t.d. Burt Bacharach-smellinn „Anyone Who Had A Heart“. „Ég get lofað þér því að fólk mun labba meyrt út,“ segir Páll Óskar að lok- um og hlær. Töfrum hlaðið augnablik  Páll Óskar og Monika halda árlega sólstöðutónleika í Grasagarðinum  Páll fær platínuplötu fyrir Silfursafnið Morgunblaðið/Sverrir Páll Óskar & Monika Héldu sína fyrstu sólstöðutónleika árið 2001. Miðasala á tónleikana verður við innganginn á Café Flóru en einnig er hægt að panta miða í síma 866 3516. Miðaverð er 2.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.