Morgunblaðið - 01.07.2009, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. J Ú L Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
176 . tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
SJÓMINJASAFNIÐ
HEFUR STÆKKAÐ ÖRT
«FÓLKIÐ
Hilmir Snær verður
Mr. Skallagrímsson
HÆTTA er á því að verkefnaskort-
ur fyrir iðn- og sérfræðimenntað
fólk verði alvarlegt vandamál frá og
með haustmánuðum. Forsvars-
menn Samtaka iðnaðarins og Sam-
taka atvinnulífsins hafa viðrað
áhyggjur sínar við stjórnvöld vegna
þessa.
Þorbergur Karlsson, stjórnarfor-
maður VSÓ-ráðgjafar, segir hætt-
una á því að „verkefnaskúffan tæm-
ist“ vera fyrir hendi.
Atvinnuleysi meðal verkfræðinga
hefur aukist mikið frá því sl. haust
eins og hjá mörgum öðrum starfs-
stéttum. Í lok maí voru 69 bygg-
ingaverkfræðingar skráðir atvinnu-
lausir en það er mikil breyting frá
því sem áður var, þegar mikil eft-
irspurn var eftir þeim. Samtals voru
á þriðja hundrað verkfræðingar á
atvinnuleysisskrá í lok maí.
Þorbergur segir sérstaklega
nauðsynlegt að koma lífi í fasteigna-
markaðinn. Hann sé nokkurs konar
„lífæð viðskipta“ bæði beint og
óbeint. Vandamál vegna offjárfest-
ingar á markaðnum séu stór en til
þess að koma í veg fyrir enn dýpri
vanda þurfi að grípa til aðgerða. | 12
69 byggingaverkfræðingar án atvinnu
Verkefni klárast
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
BRÉFASKRIFTIR Svavars Gests-
sonar og Gary Roberts, formanns
bresku Icesave-samninganefndar-
innar, gefa góða mynd af þeirri
hörku sem Bretar beittu við samn-
ingsgerðina. Frumvarp um ríkis-
ábyrgð vegna Icesave-skuldarinnar
var lagt fram á Alþingi í gær.
Um miðjan maí voru Bretar enn
mjög á móti því að beita svonefndri
„Landsbanka-aðferð“, en hún snýst
um að Tryggingasjóður innstæðu-
eigenda sé útgefandi skuldabréfs
fyrir allri upphæðinni, Landsbank-
inn beri ábyrgð á greiðslum sjóðsins
og íslenska ríkið loks ábyrgð á
greiðslum Landsbankans.
Lagði Roberts til að Svavar skyldi
skoða þær yfirlýsingar sem íslensk
stjórnvöld gáfu út skömmu eftir
hrunið í október. Roberts sagðist
vona að Svavar kæmist brátt aftur á
þá braut sem lagt var upp með í
október og samþykkt af alþjóðasam-
félaginu mánuði síðar. „Nefndir
Breta og Hollendinga eru tilbúnar að
ganga frá samkomulaginu 3.-4. júní,
en munu notast við eigin uppköst
sem upphafspunkt viðræðnanna,“
segir í bréfi Roberts.
Bréf þeirra Svavars og Roberts
eru meðal fjölmargra gagna sem
trúnaði var létt af í gær. Forsætis-
ráðherra sagði það gert til að allir
gætu kynnt sér þetta stóra mál.
Eina lausnin í boði | 4
Bretar sýndu hörku þar
til yfir lauk í viðræðunum
Lögðust gegn því um miðjan maí að
„Landsbanka-aðferðinni“ yrði beitt
EFTIR framhlaup Breiðamerkurjökuls, þar sem allt að 600-
700 metrar hafa brotnað úr honum á köflum, er Jökulsárlón
orðið dýpsta vatn Íslands. Einar B. Einarsson, eigandi ferða-
ist dýpst, 217 metrar. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstof-
unni hafa mælingar á jöklinum áður gefið til kynna að hann
nái svona djúpt en eftir framhlaup er vatnið dýpra en áður.
þjónustunnar Jökulsárlóns, komst nýverið lengra inn að jökl-
inum en áður og dýptarmældi við hinn nýja jaðar. Reyndust
vera 284 metrar niður á botn. Hingað til hefur Öskjuvatn tal-
JÖKULSÁRLÓN TEKIÐ VIÐ SEM DÝPSTA VATN ÍSLANDS
Morgunblaðið/RAX
SKELJUNGUR hækkaði bensín-
verð í gær um 12,50 krónur, úr
176,80 á lítrann í 189,30. Olíufélögin
hafa beðið þess að N1 hækkaði bens-
ínverð um sem svarar þeim gjöldum
sem ríkisstjórnin lagði á nýjar birgð-
ir, en N1 átti mestar birgðir. Olís
kláraði til að mynda gömlu birgð-
irnar sínar 18. júní án þess að hækka
verðið nema í einn dag. Miðað við
markaðshlutdeild og bensínnotkun í
fyrra má áætla að tap þess á bensín-
sölunni dag hvern síðan – fyrir utan
23. júní – hafi numið um 1,5 millj-
ónum króna. Líklegt er að N1 þurfi
að hækka verðið í næstu viku. »10
Bensínlítrinn hækkaði um
12,50 krónur hjá Skeljungi
BEIÐNUM til hjálparsamtaka
um aðstoð með mat, lyf, lækn-
iskostnað, fatnað og aðrar þarfir,
t.d. er varða skólagöngu barna,
hefur fjölgað gríðarlega. Mest
áberandi er fjölgunin í hópi er-
lendra verkamanna, sem eiga
hvergi höfði að halla eða kunna
einfaldlega ekki á kerfið. Þeim
fjölgar þó einnig „venjulegu fjöl-
skyldunum“ sem í fyrsta sinn leita
eftir aðstoð, sem þær héldu að þær
myndu aldrei þurfa á að halda. »8
Beiðnum til hjálparsamtaka
hefur fjölgað gríðarlega
Framsækinn
háskóli lægri leiga
Á Bifröst hefur leiga á stúdentagörðum verið lækkuð um 20% í því
skyni að bæta kjör íslenskra háskólanema. Bifröst er framsækinn
háskóli sem leggur áherslu á þarfir
og aðstöðu nemenda sinna.
Sjá nánar á bifrost.is.
stúdentagarðar á bifröst
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
3
17
umsóknar-fresturertil10. júlí