Morgunblaðið - 01.07.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009
Kanaríflakkarar 2009
Síðasta Kanaríhátíð í Árnesi Gnúpverjahreppi, 3.-5. júlí
Harmonikkuball föstudagskvöld, húllumhæ.
Hljómsveit Ingvars Hólmgeirssonar, Siggi Hannesar.
Söngvari: Þorvaldur Skaptason.
Laugardagur:
Skoðunarferð um Þjórsárdal kl. 12.00 með leiðsögumanni.
Bókun í síma 861 2645, 894 6167 og 898 5256.
Hátíðarhlaðborð að hætti Begga kl. 19.00.
Hinn frábæri Árni Johnsen skemmtir matargestum.
Leynigestur – Lukkumiðar – Glæsilegir vinningar.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar kl. 23.00.
Mætum öll í síðustu Kanaríhátíð í Árnesi.
Kanaríflakkarar
Skil Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn „Senda inn efni“ veljið „Senda inn minningargrein“ þar sem
fram koma nánari leiðbeiningar.
Skilafrestur Minningargrein sem á að birta á útfarardegi verður að berast
fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi). Birting getur dregist þó greinin berist innan skilafrests þar
sem pláss er takmarkað. Sami skilafrestur er á greinum vegna útfarar í kyrr-
þey. Allar greinar birtast jafnframt á vefnum www.mbl.is/minningar
Lengd Hámark 3.000 slög. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, „Hinstu kveðju“, 5–15 línur.
Formáli Nánustu aðstandendur skulu rita formála og senda inn, skv. leið-
beiningum á mbl.is
Undirskrift Minningargreinahöfundar noti skírnarnöfn sín undir greinunum.
Minningargreinar og skil
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skoðið leiðbeiningar
á mbl.is
Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822
www.polarnopyret.is
Útsalan
er hafin
í Kringlunni
og Smáralind
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími 568 2870 – www.friendtex.is
ÚTSALA
Opið mán.-fös. frá kl. 11.00-18.00
laugardaga frá kl. 11.00-16.00
Nú er bara hægt að
gera góð kaup
Mikið úrval af eldri fatnaði á
1.000 og 2.000 kr.
Sumarvörurnar frá
LÍN DESIGN eru komnar
Full búð af íslenskri hönnun.
Allt að 30% kynningarafsláttur af völdum rúmfatnaði.
Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið.
Sími 533 2220 www.lindesign.is
HREIN
SNILLD
Drjúgt, fjölhæft og þægilegt...
Gott á:
gler
plast
teppi
flísar
stein
ryðfrítt stál
fatnað
áklæði
tölvuskjái
omfl.
ATH. frábært á
rauðvínsbletti
og tússtöflur
S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is
Laugaveg 53 • sími 552 3737
Opið virka daga 10-18 • laug. 10-17
Útsalan
hefst í dag
20-70% afsláttur
EFNAHAGSLÍFIÐ og áhrif þess á
velferðarmálin voru í brennidepli á
tveggja daga fundi norrænu félags-
og heilbrigðisráðherranna í Reykja-
vík sem lauk í gær.
Stöðunni á Íslandi var gefinn sér-
stakur gaumur í umræðunum því
enda þótt kreppan skeki allan heim-
inn gerir hún það „hvergi eins hrika-
lega og á okkar landi,“ að sögn Ög-
mundar Jónassonar heilbrigðis-
ráðherra. Á fundinum deildu ráð-
herrar Svíþjóðar og Finnlands
reynslu sinna þjóða frá kreppunni á
10. áratugnum og bentu á ýmis víti
til varnaðar enda eimir þar enn eftir
af afleiðingum kreppunnar.
Við lok fundarins lögðu norrænu
ráðherrarnir áherslu á að efla enn
frekar samstarf þjóðanna á milli,
m.a. að kanna nánara samstarf í
lyfjamálum s.s. með samræmingu
rafrænna lyfseðla á milli landanna.
Eitt stærsta verkefnið sem nú
blasir við í velferðarmálum, ekki síst
á Íslandi, er að draga úr atvinnu-
leysi, fyrirbyggja langtímaatvinnu-
leysi og styrkja velferðarkerfið. Í því
sambandi benti Árni Páll Árnason
heilbrigðisráðherra m.a. á að vegna
stöðu ríkisfjármála hefðu Íslending-
ar ekki tök á að beita sömu aðferðum
til að berjast gegn atvinnuleysi og
nágrannaþjóðirnar, með innspýtingu
í opinberum framkvæmdum.
Eftir sem áður væri það forgangs-
atriði að styrkja velferðarmál með
norrænu samstarfi. „Sú samfélags-
gerð sem byggð hefur verið upp á
Norðurlöndum er sú samfélagsgerð
sem best hefur reynst fallin til þess
að tryggja í senn efnahagslega vel-
megun og félagslegt réttlæti.“
Norrænir ráðherrar snú-
ast til varnar velferðinni
Samstarf Norður-
landa verði enn
nánara í kreppunni
Morgunblaðið/Golli
Ráðherrar Árni Páll Árnason og Ögmundur Jónasson buðu til fundarins og
sóttu hann fimm heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar frá Norðurlöndunum.
TOLLAR á íslenskum iðnaðarvörum
og sjávarafurðum sem fluttar eru til
Kanada falla niður í dag, með gild-
istöku fríverslunarsamnings EFTA-
ríkjanna við landið. Samhliða þeim
samningi tekur gildi sérstakur tví-
hliða samningur Íslands og Kanada
um niðurfellingu tolla á ýmsum land-
búnaðarvörum.
Að sögn Bergþórs Magnússonar,
lögfræðings hjá utanríkisráðuneyt-
inu, er þessi samningur EFTA við
Kanada einn mikilvægasti fríversl-
unarsamningur sem Ísland hefur
orðið aðili að, að frátöldum EES-
samningnum og fríverslunarsamn-
ingi við Færeyjar. Kanada er stórt
viðskiptaland Íslands.
Af sjávarafurðum sem fluttar eru í
nokkru magni til Kanada má nefna
humar, rækju, ufsa, síld og loðnu. Þá
er flutt þangað nokkuð af vélum, kís-
iljárni og tækjabúnaði og af landbún-
aðarvörum sem þangað eru seldar
má einna helst nefna lambakjöt og
skyr, sem njóta tollfríðinda frá og
með deginum í dag. onundur@mbl.is
Fríverslun
við Kanada
tekur gildi
Mjög mikilvægur frí-
verslunarsamningur