Morgunblaðið - 01.07.2009, Side 10
Á fimmtudag
Fremur hæg suðlæg átt eða
hafgola. Yfirleitt léttskýjað á
Norður- og Austurlandi, annars
lítilsháttar rigning með köflum.
Hiti 12 til 22 stig, hlýjast norð-
austantil.
Á föstudag
Austlæg átt með vætu um
austanvert landið, annars þurrt
að kalla og víða bjart. Hiti 10 til
20 stig, hlýjast í innsveitum á
Suður- og Vesturlandi.
Á laugardag, sunnudag og
mánudag
Austlæg átt og rigning með
köflum um sunnanvert landið,
annars úrkomulítið. Hiti breyt-
ist lítið.
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009
Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við
fótsvepp (tinea pedis).Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni
lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil
Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once.
Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að
bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel
þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki
sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi:
Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Drepur fótsveppinn
- þarf aðeins að bera á einu sinni
½½
Notaðu alla Lamisil
Once® túpuna á báða
fæturna til að forðast
að sýkingin taki sig
upp á ný
Berðu Lamisil
Once® á:
á milli tánna, bæði undir
þær og ofan á
bæði á iljar og jarka
24h
Til að ná sem bestum
árangri skal ekki þvo
fæturna í sólarhring
1 32
Jón Bjarnason landbúnaðar- ogsjávarútvegsráðherra hefur
áhyggjur af að Morgunblaðinu tak-
ist að rugla þjóðina í ríminu, ef
marka má grein hans hér í blaðinu í
gær. Blaðinu varð það á í leiðara að
minna ráðherrann
á gildi frjálsra
milliríkjaviðskipta
með landbún-
aðarvörur eins og
aðrar vörur.
Jón skrifar: „Þaðer slæmt að svo
þungbært högg
sem núverandi
kreppa er dugi Morgunblaðinu ekki
til að skilja að þegar allt kemur til
alls skipta sjávarútvegurinn og land-
búnaðurinn þjóðina svo miklu máli.“
Morgunblaðið skilur vel mik-ilvægi beggja þessara greina –
og telur að báðar eigi að búa við sem
frjálsast viðskiptaumhverfi, þannig
að þær taki þátt í alþjóðlegri sam-
keppni.
Á samningafundum Heims-viðskiptastofnunarinnar á
undanförnum árum hefur verið
furðulegur tvískinnungur í málflutn-
ingi íslenzku sendinefndarinnar.
Annars vegar berst Ísland gegntollum á fisk og ríkisstyrkjum til
sjávarútvegs – af því að við viljum að
sjávarafurðirnar okkar séu sam-
keppnisfærar á alþjóðamörkuðum.
Hins vegar heimtar Ísland aðháum tollum á búvörur verði
viðhaldið, svo og ríkisstyrkjum til
landbúnaðar – af því að við viljum
ekki að landbúnaðarvörur annarra
séu samkeppnisfærar á okkar mark-
aði.
Í sjávarútvegs- og landbúnaðar-ráðherranum koma saman í ein-
um manni fulltrúar beggja þessara
stefna! Getur verið að það rugli þjóð-
ina í ríminu?
Jón Bjarnason
Rugl í ríminu
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 15 skýjað Lúxemborg 28 léttskýjað Algarve 25 léttskýjað
Bolungarvík 12 rigning Brussel 28 léttskýjað Madríd 34 léttskýjað
Akureyri 13 skýjað Dublin 20 skýjað Barcelona 28 léttskýjað
Egilsstaðir 19 léttskýjað Glasgow 23 skýjað Mallorca 29 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 14 alskýjað London 26 heiðskírt Róm 28 léttskýjað
Nuuk 4 skúrir París 30 heiðskírt Aþena 27 léttskýjað
Þórshöfn 19 heiðskírt Amsterdam 25 léttskýjað Winnipeg 17 léttskýjað
Ósló 27 heiðskírt Hamborg 25 léttskýjað Montreal 24 skýjað
Kaupmannahöfn 26 léttskýjað Berlín 27 léttskýjað New York 28 heiðskírt
Stokkhólmur 25 heiðskírt Vín 28 léttskýjað Chicago 19 alskýjað
Helsinki 20 heiðskírt Moskva 19 léttskýjað Orlando 24 þrumuveður
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
1. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.06 3,1 7.23 1,1 13.49 3,1 20.08 1,2 3:07 23:58
ÍSAFJÖRÐUR 3.06 1,8 9.32 0,7 16.07 1,8 22.22 0,8 1:37 25:37
SIGLUFJÖRÐUR 5.38 1,1 11.48 0,4 18.10 1,1 1:20 25:20
DJÚPIVOGUR 4.10 0,8 10.45 1,9 17.10 0,8 23.09 1,6 2:23 23:40
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðlæg átt, 3-10 m/s. Bjart-
viðri á Norður- og Austurlandi,
rigning eða súld á Suðaustur-
landi, annars skýjað en úr-
komulítið. Hiti 10 til 22 stig,
hlýjast í innsveitum norðaust-
anlands.
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
Í RÍKISKASSANUM gætu legið ríflega 235 millj-
ónum krónum meira vegna hærri gjalda á bensíni,
hefðu yfirvöld túlkað ný gjöld á eldsneyti með sama
hætti og olíufélögin. Forsendurnar eru að þjóðin
noti nú sama magn eldsneytis og hún gerði í fyrra,
eða 209.552.534 lítra yfir árið.
Olíufélögin voru gerð afturreka með tíu króna
hækkun á bensínlítrann sem þau lögðu á 29. maí,
daginn eftir að ríkisstjórnin tilkynnti um hærri
álögur. Þeim er gert að setja hækkunina á nýjar
birgðir og hefur hún ekki enn hækkað bensínverð,
fyrir utan að Olís hækkaði verðið um 12,5 krónur,
sem nemur hækkuninni og virðisaukaskatti ofan á
hana, í einn dag, þann 23. júní. Olíuverslunin kláraði
gömlu birgðirnar 18. júní og hefur, sé reiknað út frá
bensínnotkuninni í fyrra og rúmlega 26% markaðs-
hlutdeild, tapað um 1,5 milljónum króna á dag.
Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri vöru-
stýringarsviðs Olís, vill hvorki hrekja né staðfesta
upphæðina en segir ljóst að sú ákvörðun félagsins
að bjóða viðskiptavinum sínum samkeppnishæft
verð á við hin olíufélögin kosti drjúgan skilding.
„Viðskiptavinir okkar geta áfram treyst því að fá
hjá okkur samkeppnishæft verð og góða þjónustu,“
svarar hann spurður hve lengi Olís haldi út.
Már Erlingsson, innkaupastjóri Skeljungs, segir
hins vegar að Skeljungur hafi ekki getað haldið
lengur út. Bensínlítrinn hækkaði um 12,5 krónur í
gær. Verði Orkunnar verði haldið niðri.
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir að
birgðastaðan sé ágæt og framhaldið fari eftir eftir-
spurninni. „Við munum reyna að þrauka fram yfir
næstu helgi – stærstu ferðahelgi sumarsins.“
Bíleigendur héldu 235 milljónum
Skeljungur hækkar N1 reiknar með gamla verðinu fram yfir helgi