Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 14

Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 14
Sóttu sjálfir um styrki og fengu þá Morgunblaðið/Guðmundur Rúnar Samkeppni um styrki Starfsmaður Orf líftækni við vísindastörf. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is „NOKKRIR þeirra sem sátu í Vís- inda- og tækniráði síðastliðin þrjú ár tóku þátt í að semja reglur og velja áherslusvið fyrir svokallaða markáætlun í fyrra. Þeir sóttu síðan sjálfir um styrki og hlutu braut- argengi í fyrsta úrtaki hjá ráðinu sem sjálft ákvarðaði um úthlutun. Þetta er auðvitað algjört hneyksli,“ segir Einar Steingrímsson, prófess- or við Háskólann í Reykjavík, en hann er einn þeirra háskólakennara sem gagnrýnt hafa skipan forsætis- ráðherra í nýtt Vísinda- og tækni- ráð. Kraumandi óánægja Einar segir athugasemdir hóps há- skólamanna um ófagleg vinnubrögð gamla ráðsins til forsætisráðuneyt- isins og menntamálaráðuneytisins í fyrra hafa kveikt vonir í brjósti manna um að faglega yrði staðið að skipan í nýtt ráð. „Það hefur verið kraumandi óánægja meðal vísindafólks í land- inu með hversu illa er staðið að þessum hlutum og hún blossaði upp nú þegar skipan nýja ráðsins var ljós. Í því eru of margir með of litla reynslu af því að byggja upp vís- indastarf.“ Óstjórnleg þvæla Það er skoðun Einars að vinnu- brögð gamla ráðsins hafi ekki bara verið ófagleg varðandi úthlutun, heldur einnig mat ráðsins á tæki- færum. „Hugmyndirnar um hvar tækifærin lægju í nýsköpun og vís- indum voru jafnframt óstjórnleg þvæla. Það voru uppi hugmyndir um alls konar svið sem þetta fólk taldi að Ísland gæti orðið framúr- skarandi á. Svo gleymdust öll svið sem Íslendingar geta eitthvað á, eins og til dæmis líftækni og upplýs- ingatækni. Það gleymdust nánast öll raunvísindi og grunnvísindi.“ Svokölluð markáætlun Vísinda- og tækniráðs markar tímamót í ís- lensku vísindasamfélagi, að sögn Einars. „Til stóð að úthluta allt að milljarði króna á sjö árum og nú hefur verið úthlutað einu sinni. Þetta er umtalsverður hluti þess fjár sem samkeppnissjóðir undir ráðinu hafa yfir að ráða. Í um- ræddri markáætlun var hvorki til að dreifa faglegu mati með skipan fag- ráðs né heldur voru matsmennirnir óháðir í fyrsta úrtaki.“ Sátu í ráðinu og fengu styrk Hann segir að í starfshópnum sem valdi 10 umsóknir af 82 hafi verið fólk með afar takmarkaðan vísinda- feril, fyrir utan formann starfshóps- ins, sé miðað við hefðbundna alþjóð- lega mælikvarða á vísindastörf. ,,Af þeim 10 umsóknum sem kom- ust gegnum forvalið virðast afar fá- ar vera frá því vísindafólki á Íslandi sem fremst stendur á alþjóðavett- vangi. Matís, fyrirtæki sem aðallega stundar þjónusturannsóknir, var með í fimm af þeim 10 umsóknum sem valdar voru úr en forstjóri þess fyrirtækis sat í Vísinda- og tækni- ráði. Þessar umsóknir komust þó ekki í gegn á endanum nema ein þar sem forstjóri Matís var meðum- sækjandi.“ Að sögn Einars var verkefnis- stjóri eins verkefnisins sem fékk út- hlutun í markáætluninni varamaður í Vísinda- og tækniráðinu 2006 til 2009 þegar úthlutun fór fram. „Tveir meðumsækjendur í öðru verkefni sem fékk styrk sátu í ráðinu á þessum tíma.“ Eðlileg seta? Einar vill ekki nefna með nafni þá fulltrúa í nýju Vísinda- og tækniráði sem hann telur ekki vera með næg- an vísindaferil að baki en tekur eft- irfarandi fram: „Það er ekki hægt að gera neinar athugasemdir við vísindaferil Þorsteins Inga Sigfús- sonar prófessors sem er forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar. Það má hins vegar spyrja hvort það sé eðli- legt að forstjóri þessarar stofnunar sem sækir mikið um styrki í þá sjóði sem Vísinda- og tækniráð ræður yf- ir sitji í þessu ráði.“ Tilnefndir af samstarfs- nefnd háskólastigsins: Ari Kristinn Jónsson, for- seti tölvunarfræðideildar HR. Doktorspróf 1997. Inga Þórsdóttir, prófessor við matvæla- og næring- arfræðideild HÍ. Doktorspróf 1989. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við heilbrigðisdeild HA. Doktorspróf 1996. Stefán Halldórsson, pró- fessor á félagsvísindasviði HÍ. Doktorspróf 1982. Tilnefndir af ASÍ: Stefán Úlfarsson, hagfræð- ingur hjá ASÍ. Þórunn S. Jónsdóttir raf- eindavirki. Starfar á tækni- deild Landspítala. Hefur starfað um árabil í hátækni- iðnaði og nýsköpunarfyr- irtækjum. Tilnefndir af SA: Hilmar Bragi Janusson, framkvæmdastjóri rann- sókna- og þróunarsviðs Öss- urar. Doktorspróf 1994. Pétur Reimarsson, for- stöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs SA. Dokt- orspróf 1979. Tilnefndir af ráðherrum: Guðrún Nordal, prófessor á hugvísindasviði HÍ. Dokt- orspróf 1988. Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor við raunvís- indadeild HÍ og for- stöðumaður Nýsköp- unarmiðstöðvar. Doktorspróf 1982. Guðrún Þóra Gunn- arsdóttir, lektor og deild- arstjóri ferðamálabrautar Hólaskóla. Sveinn Margeirsson, sviðs- stjóri hjá Matís. Doktorspróf 2008. Unnur Þorsteinsdóttir, líf- fræðingur hjá Íslenskri erfða- greiningu. Doktorspróf 1997. Kristín Svavarsdóttir, sér- fræðingur hjá Landgræðslu ríkisins. Doktorspróf 1995. Skipuð án tilnefningar: Dagný Halldórsdóttir, verk- fræðingur og aðstoðar- framkvæmdastjóri Neyðarlín- unnar. Jón Bragi Bjarnason, pró- fessor við raunvísindadeild HÍ. Doktorspróf 1977. Nýtt Vísindaráð Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is „ÉG TRÚI ekki að stjórnvöld geti hafnað 300 störfum sem snúast að verulegu leyti um það að selja þekkingu okkar til nágranna okkar,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, for- maður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún ásamt fomanni Læknafélags Íslands og framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífisins (SA) undrast að heilbrigðisráðherra taki ekki jákvæðar í hugmyndir Salt Investments um að það leigi vannýttar skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Salt Investments vill í samstarfi við nor- ræna heilbrigðisfyrirtækið Nordhus Medical gera þar aðgerðir á sjúklingum sem hafa setið á biðlistum norskra og sænskra yf- irvalda í meira en 90 daga. Heilbrigðisráð- herra hefur tjáð að hann taki enga ákvörðun í málinu fyrr en 15. ágúst. María Bragadóttir, framkvæmdastjóri deildarinnar Salt Health, segir að taki heil- brigðisráðherra jákvætt í erindi þeirra í ágúst verði hægt að hefja markaðssetningu erlendis tíu dögum síðar. Verði það neikvætt þurfi þau að skoða varaáætlanir sínar. Elsa segir gott tækifæri leynast í hug- mynd Salt og Nordhus því hún óttist að við niðurskurðinn í heilbrigðiskerfinu missi landsmenn þekkingu úr landi. Þónokkur er- indi berist félaginu í hverri viku þar sem hjúkrunarfræðingar leiti eftir aðstoð við að komast til starfa erlendis. Þá séu þeir hjúkr- unarfræðingar sem útskrifuðust síðast nær allir lausráðnir yfir sumartímann. „Og ég hef áhyggjur af þeim sem munu á næstu misserum brautskrást. Þeir fá kannski ekki vinnu og eru með há námslán. Þeir hljóta að leita þangað sem vinnu er að fá.“ Hverfi hjúkrunarfræðingarnir af landi brott verði þekkingin ekki auðveldlega byggð upp þegar fari að létta til í efnahagslífinu auk þess sem nýjasta þekkingin hverfi fyrst. Vilhjálmur Egilsson hjá SA segir aðilum sem vilji fjárfesta hér og byggja upp at- vinnustarfsemi finnast sem sífellt sé verið að breyta vinnubrögðum og reglum. Festu vanti í hvernig ákvarðanir séu teknar og hvernig þeim sé fylgt eftir. Hann bendir á að hugmynd Salt og Nordhus snúist ekki um tvöfalt heilbrigðiskerfi eða aukakostnað fyrir það íslenska heldur um að veita ákveðna þjónustu og nýta þá aðstöðu sem sé fyrir hendi. „Við Íslendingar höfum menntað fjöldann allan af fólki í heilbrigðisstéttinni; fyrst og fremst lækna og hjúkrunarfræðinga sem síðan vinna erlendis,“ segir hann. Búið sé að kosta menntun þess án þess að sam- félagið njóti afrakstursins og því ákjósanlegt að fá tækifæri til að sinna sjúklingum frá öðrum löndum og að geta boðið þeim vinnu við hæfi hér heima. Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir lækna hlynnta því að svona starfsemi sé flutt til landsins og að þeir telji til framdráttar fyrir íslenska sjúklinga að hér á landi sé fjölbreytt starfsemi, hvort sem allt starfsfólk sé íslenskt eða ekki. „Skurðstofan er þarna, húsið er þarna og starfsfólk sem kann sitt fag og af hverju ekki að nota það?“ Birna spyr eftir hverju sé beðið. Óttast um nýju þekkinguna  Formaður hjúkrunarfræðinga óttast að nýútskrifaðir félagsmenn fái ekki vinnu  Hann ásamt Læknafélaginu og Samtökum atvinnulífisins undrast að heilbrigðisráðherra taki hraðar ákvörðun Vilhjálmur Egilsson Birna Jónsdóttir Elsa B. Friðfinnsdóttir 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009 Í DAG stendur Íslandsdeild Am- nesty Internat- ional fyrir mót- mælaaðgerðum gegn mannrétt- indabrotum og umhverfisspjöll- um sem hlotist hafa af olíu- vinnslu Shell í Nígeríu. Staðið verður fyrir farandljósmyndasýn- ingu þar sem sjá má þessar afleið- ingar olíuvinnslunnar við óseyrar Nígerfljóts. Myndirnar voru teknar á svæðinu árið 2008 af ljósmynd- aranum Kadir van Lohuizen, fyrir Amnesty. „Það má segja að tilefnið sé tvö- falt,“ segir Bryndís Bjarnadóttir, herferðafulltrúi Íslandsdeildar Am- nesty. „Annars vegar kom út í gær ný skýrsla um ástandið á olíu- vinnslusvæðum í Nígeríu. Auk þess tekur Peter Voser við stöðu fram- kvæmdastjóra í höfuðstöðvum Shell í Hollandi í dag.“ Samtökin skora á Voser að hefja nýjan kafla í starfsemi Shell, þar sem ábyrgð og gagnsæi eru sett á oddinn og mannréttindi virt. Am- nesty krefst þess að Shell geri hreint fyrir sínum dyrum og viðurkenni áhrif olíumengunar á mannréttindi íbúa á óseyrum Nígerfljóts. Jafn- framt að olíumenguð svæði verði hreinsuð að fullu og samfélög hljóti bætur fyrir skaða af völdum olíu- mengunar. halldorath@mbl.is Ljósmynd/Kadir van Lohuizen Nígería Olíumengunin hefur heilsuspill- andi áhrif á íbúa og lífsviðurværi þeirra. Mannrétt- indabrot í myndum Mótmæla aðförum við olíuvinnslu Shell Bryndís Bjarnadóttir „Við höfum ekki lokað dyrum á nein úr- ræði, en við hljótum að skipuleggja heil- brigðisþjónustuna út frá hagsmunum samfélagsins fyrst og fremst,“ segir Ög- mundur Jónasson heilbrigðisráðherra. Hann átti í gærmorgun fund með heil- brigðisráðherra Noregs, Bjarne Håkon Hansen, um möguleika á því að efla sam- starf milli heilbrigðisstofnana í flutningi sjúklinga landa á milli. Að fundinum lokn- um sagði Ögmundur það vera verkefni komandi missera og mikið svigrúm fyrir slíkt samstarf „án þess að hleypa þar endilega milliliðum inn í sem vilja láta eitt- hvað renna niður í sína vasa“. una@mbl.is Milliliðalaust samstarf Algjört hneyksli, segir prófessor

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.