Morgunblaðið - 01.07.2009, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009
SKRIFAÐ hefur verið undir sam-
komulag milli Dalvíkurbyggðar og
Símenntunarmiðstöðvar Eyja-
fjarðar (SÍMEY) um rekstur náms-
versins á Dalvík. Markmiðið með
samningnum er að efla símenntun
og bjóða upp á aðstöðu til fjarnáms
fyrir einstaklinga og hópa.
Ráðinn verður starfsmaður hjá
SÍMEY í 50% starf við námsverið,
en gert er ráð fyrir að það hlutfall
geti vaxið vegna nýrra verkefna
og/eða aukinnar starfsemi í náms-
verinu. Námsverið er í Gamla skól-
anum við Skíðabraut á Dalvík. Dal-
víkurbyggð rekur húsnæðið og
leggur til aðstöðu fyrir starfsmann.
Samningur um
námsver í Dalvík
STUTT
SENDINEFND forstjóra þróunar-
miðstöðvar sjúkrahúsa í Shanghai í
Kína og nokkurra forstjóra spít-
alanna þar heimsótti Landspítalann
í gær. Vildu Kínverjarnir kynna sér
starfsemi háskólasjúkrahússins.
Endurskipuleggja heilbrigðis-
þjónustuna í Shanghai
Skv. upplýsingum Landspítalans
vinna Kínverjar að mótun svæð-
isstjórnunar heilbrigðismála í
Shanghai í tengslum við endur-
skipulagningu heilbrigðisþjónust-
unnar í Kína. Kínverska sendi-
nefndin hafði áhuga á að kynna sér
heilbrigðisþjónustu á Íslandi í heild
en einkum stjórnun og skipulag
spítalans, stefnumótun, gæða-
stjórnun og árangursmælingar.
Einnig kynntu þeir sér áform um
byggingu nýs Landspítala. Að lok-
inni kynningu á Landspítalanum í
gær með fulltrúum framkvæmda-
stjórnar spítalans skoðuðu gest-
irnir frá Shanghai Barnaspítala
Hringsins.
Kínverjar kynntu
sér skipulag
Landspítala
Heimsókn Kínversku forstjórarnir
skoðuðu Barnaspítala Hringsins.
GUÐRÚN Harðardóttir sagnfræð-
ingur gengur með gestum um Nes-
stofu á Seltjarnarnesi í dag kl.
15:30 og fjallar um byggingarsögu
hússins. Nesstofa var byggð á ár-
unum 1761-1767 sem embættisbú-
staður landlæknis og er eitt af elstu
húsum landsins. Hún er hluti af
húsasafni Þjóðminjasafns Íslands
og í umsjá Lækningaminjasafns Ís-
lands. Guðrún er sérfræðingur í
byggingarsögu á Þjóðminjasafni Ís-
lands og tók virkan þátt í varð-
veislu Nesstofu frá 2005 til 2008.
Boðið er upp á leiðsagnir um Nes-
stofu hvern miðvikudag kl. 15:30.
Fjallar um bygging-
arsögu Nesstofu
BÆÐI fyrrverandi og núver-
andi starfsmönnum Straums
hefur boðist að kaupa tækja-
búnað fyrirtækisins, sem
ekki er lengur í notkun, gegn
vægu gjaldi. Um og yfir
tveggja ára gamlar borð-
tölvur hafa verið seldar á um
fjörutíu þúsund krónur, og
álíka gamlir skjáir á allt niður í tutt-
ugu þúsund krónur.
Að sögn Georgs And-
ersen, forstöðumanns sam-
skiptasviðs Straums, er um
að ræða fjörutíu vélar eða
svo, sem flestar hafa verið
afskrifaðar að fullu eða
stóru leyti. Söluverðið hafi
verið bókfært verð þeirra
eða hærra.
„Okkur fannst eðlilegt að bjóða
starfsfólki þennan búnað til sölu frek-
ar en að láta hann grotna niður í kjall-
aranum,“ segir hann. „Yfirleitt er það
fólkið sem hefur verið að vinna við
tölvuna sem keypti, og við töldum
rétt að starfsfólk hefði forgang.“
Georg segir einnig eitthvað hafa
verið selt af stólum, en mikið af hús-
næði fyrirtækisins sé nú leigt út með
húsgögnum. Hjá Straumi störfuðu
um 350 manns en nú starfa þar um 70
manns. halldorath@mbl.is
Gamlar tölvur á vægu verði
Straumur
Starfsmönnum Straums býðst að kaupa ónýttan tækja-
búnað fyrirtækisins Rétt að bjóða starfsfólki fyrst
ATTAC eru alþjóðasamtök sem m.a.
berjast gegn spilltu fjármálakerfi og
hnattvæðingu. Samtökin eru með
deildir í um 50 löndum og er Ísland
að bætast í þeirra hóp. Árni Daníel
Júlíusson einn talsmanna samtak-
anna segir þau ekki andstæðinga
hnattvæðingar en gagnrýna efna-
hagslega hnattvæðingu nýfrjáls-
hyggjunnar. Hins vegar styðji þau
sjálfbæra og félagslega réttláta
hnattvæðingu. „Markaðsvæðing
heimsins er auglýst sem náttúrulög-
mál og lýðræðislegt vald borgaranna
er orðið lítið. Samtökin vilja fræða
og virkja almenning til baráttu.“
Hann vill heimfæra slagorð hreyf-
ingarinnar „Veröldin er ekki til sölu“
upp á Ísland: „Ísland er ekki til
sölu.“ Samtökin verða með opinn
kynningar- og fræðslufund í JL-
húsinu á morgun 2. júlí þar sem for-
maður Noregsdeildar samtakanna
verða með framsögu um starf þeirra.
„Ísland ekki til sölu“