Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 17

Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009 KÍNVERSK yfirvöld ákváðu í gær að fresta umdeildum áformum um að skylda tölvufram- leiðendur til að setja netsíuhugbúnað í allar nýjar pc-tölvur ætlaðar fyrir Kínamarkað. Að sögn yfirvalda lokar Græna stíflan, eins og hugbúnaðurinn nefnist, á allt „óheilbrigt net- efni“ eins og klám og ofbeldi. Að sögn sérfræðinga getur hugbúnaðurinn hinsvegar líka lokað á hvert það efni annað sem yfirvöld telja óviðeigandi. Á þeim for- sendum hafa talsmenn málfrelsis í landinu gagnrýnt hugbúnaðinn sem tilraun yfirvalda til að herða enn frekar eftirlit með netnotkun í landinu. Illað hannaður og býður hættum heim Auk þess að stuðla að skertu mál- og tján- ingarfrelsi í Kína segja gagnrýnendur og sér- fræðingar hugbúnaðinn illa hannaðan, hann geti því opnað tölvur fyrir njósnum yfirvalda jafnt sem fyrir tölvuþrjótum og glæpamönn- um. Áætlunin átti að taka gildi í dag en var frestað nokkrum klukkustundum fyrir gild- istöku að því talið er vegna þrýstings úr net- heimum og Bandaríkjunum á liðnum vikum. Að sögn Quentin Sommerville, fréttaritara BBC í Peking, þykir viðsnúningurinn sjald- gæfur og neyðarlegur atburður fyrir kínversk stjórnvöld. Hann segir að þrátt fyrir hart eft- irlit kínverskra stjórnvalda með netnotkun ríki mikil og lífleg netmenning í landinu. Fólki takist að sveigja hjá eftirlitinu og gagn- rýni á Kommúnistaflokkinn sé aðgengileg í gegnum netið þrátt fyrir að stjórnarandstaða sé formlega bönnuð. jmv@mbl.is Reuters Netkaffi Hugbúnaðurinn verður settur í allar tölvur á netkaffihúsa. Grænu stíflunni frestað  Kínversk yfirvöld hafa frestað áformum um skyldunetsíu í allar nýjar tölvur í landinu  Hugbúnaðurinn gagnrýndur sem tæki til ritskoðunar ÍRASKAR öryggissveitir mars- eruðu hátíðlega um götur Bagdad í gær í tilefni þess að þær tóku við öryggisgæslu úr höndum banda- ríska hersins. Hátíðahöldin féllu þó í skugg- ann af bílsp- rengju sem sprakk á fjölsótt- um markaði og varð 27 manns að bana og særði 80 í borginni Kir- kuk í norðurhluta landsins. Sjón- arvottur kenndi íröskum öryggs- sveitum um að hafa ekki verið á staðnum og sagðist óttast að upp- reisnarmenn myndu nýta sér brott- flutning bandaríska hersins. Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hafði varað við því að upp- reisnarhópar og herskáir hópar væru líklegir til að auka árásir í landinu fram að brottflutningi Bandaríkjamanna til að grafa und- an trúverðugleika íraskra örygg- issveita. Þrátt fyrir sprengingarnar í dag sagði Maliki írösku sveitirnar vel í stakk búnar til að taka stjórn. „Þeim sem halda að Írakar geti ekki verndað landið og að brott- flutningur erlends herafls ógni ör- yggi, skjátlast hrapallega,“ sagði Maliki í sjónvarpsávarpi til þjóðar sinnar í gær. jmv@mbl.is Sprengja skygg- ir á hátíðahöld í Bagdad Brottför hersins fagnað í Bagdad. „VIÐ drekkum meira en á tí- unda áratugn- um, þó að þá hafi tímarnir verið erfiðir. Við verðum að koma upp áætlun í skrefum og taka á þessu,“ sagði rússneski forset- inn, Dimitrí Medvedev, á fundi með heilbrigðisráðherra landsins í gær. Ofnotkun áfengis verður allt að hálfri milljón Rússa að bana á ári hverju og hefur mikil áhrif á lífs- líkur karla þar í landi. Áætlaður meðalaldur rússneskra karla er lægri en í fátækum löndum eins og Bangladess eða Hondúras, sam- kvæmt skýrslu rússneskra yf- irvalda. Fyrrverandi leiðtogi Sovétríkj- anna, Mikhail Gorbatsjov, sagði á mánudag í rússneska sjónvarpinu að landið væri á barmi hörmunga hvað áfengi varðaði og að „alvar- leg barátta“ yrði að fara fram. Á níunda áratugnum setti Gor- batsjov af stað víðfeðmt bar- áttuprógramm gegn áfengi og takmarkaði meðal annars áfeng- isframleiðslu í landinu. Þá var barist gegn ólöglegri áfengisfram- leiðslu og heimabruggun og nutu þær aðgerðir lítillar hylli meðal almennings í landinu. jmv@mbl.is Alkóhólismi algeng- ari en fyrir áratug Dimitrí Medvedev Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „VIÐ reyndum að henda til hennar björgunarhring. Hún náði ekki taki á honum. Ég varð að stökkva í sjóinn eftir henni,“ sagði björgunarmaður fjölmiðlum um ótrúlega björgun 14 ára stúlku eftir að farþegaþota hrap- aði í Indlandshaf við Kómoreyjar. Maðurinn sagði að sést hefði til stúlk- unnar á sundi í úfnum sjónum innan um lík og brak úr flugvélinni. „Hún skalf og skalf. Við vöfðum fjórum teppum utan um hana. Við gáfum henni heitt sykurvatn. Við spurðum hana einfaldlega eftir nafni, þorpi,“ hefur AFP-fréttastofan eftir björg- unarmanninum. Stúlkan, sem er frá litlu þorpi á Kómoreyjum, er sú eina af 153 far- þegum vélarinnar sem fundist hafði á lífi í gærkvöldi. Farið var með hana til aðhlynningar á sjúkrahúsi og mun líðan hennar vera eftir atvikum góð. Eins og að spila í happdrætti Flugvélin var af tegundinni A310 og í eigu Flugfélags Jemens. Hún flaug síðasta hluta flugleiðar frá Frakklandi til Kómoreyja en milli- lent hafði verið í Jemen til að skipta um flugvél. Að sögn jemenskra yf- irvalda hefur flugriti vélarinnar ekki fundist en vélin missti samband við flugeftirlitið á Kómoreyjum vegna veðurs. Fjöldi íbúa eyjanna er óánægður með að ekki hafi verið hlustað á áhyggjur þeirra af öryggismálum flugfélagsins. „Það er eins og happ- drætti að ferðast til Kómoreyja,“ sagði Thoue Djoumbe, 28 ára kona frá Kómoreyjum sem býr í Frakk- landi, og hún segir að kvartað hafi verið yfir flugfélaginu í áraraðir. Að sögn franskra flugmála- yfirvalda voru 66 farþegar vélarinnar franskir en Kómoreyjar eru fyrrver- andi frönsk nýlenda. Þetta er í annað skipti sem Airbus-farþegavél hrapar í sjóinn en farþegavél frá Air France hrapaði í Atlantshafið í byrjun júní og fórust allir 228 farþegar vélarinnar. Frönsk yfirvöld segja vélina, sem var orðin 19 ára gömul, hafa verið undir eftirliti og að hún hafi verið í banni í franskri lofthelgi. Franskir loftferðaeftirlitsmenn fundu „fjölda galla“ við skoðun vél- arinnar árið 2007 að sögn franska samgönguráðherrans. Stúlka fannst á svamli í úfnu hafinu Vélin ekki sögð standast öryggiskröfur 400 km K E N ÍA E Þ ÍÓ P ÍA J E M E N S Á D I - A R A B Í A Ade nfló i Airbus A310-300 farþegavél frá Jemen með153 manns um borð hrapaði í sjóinn er flugstjóri gerði aðra tilraun til að lenda vélinni á Kómoro-eyjaklasanum í slæmu veðri. Flugslys við Kómoreyjar Jemenska vélin sem var á leið frá Sanaa til Moroni sendi boð til flugturns um að hún væri um það bil að lenda en svo rofnaði sambandið INDLANDS- HAF MADAGASKAR A310-300 Sanaa Kómoreyjar S Ó M A L Í A Moroni Var vélin í slæmu ástandi? Fólk sem ferðast hafði með vélinni segir hana hafa verið til vandræða í lengri tíma. Konsúll Kómoreyja í Frakk- landi segir ferðir með vélinni eins og „fljúgandi gripaflutninga“ og aðbún- aður farþega hefði verið mjög slæmur. Tengjast Airbus-flugslysanna? Sérfræðingar segja engin líkindi með slysinu í gær og því sem varð í byrj- un júní þó framleiðandi vélanna sé sá sami. Slysin hafi orðið með ólík- um hætti og í umsjón ólíkra félaga. Hvað var vélin gömul? Airbus-vélin var tekin í notkun fyrir 19 árum og hafði verið flogið í 51.900 flugstundir. Hún hafði verið í notkun hjá jemenska félaginu í tíu ár. S&S ENGAR HÖMLUR AP HJÓLASTÓLAR virðast ekki hamla gestum rokkhátíðarinnar í Bógóta í Kólumbíu þar sem innlifunina má lesa úr hverju andliti. Hátíðin er nú hald- in í 25. skipti í höfuðborginni en rokkhátíðir eru nú haldnar um allan heim og eru vinsælir viðkomustaðir tónlistarunnenda á sumrin. jmv@mbl.is „ÉG er hér til að breyta samfélaginu. Vilt þú hjálpa mér?“ hrópaði ungur japanskur aðgerðasinni á götum Tókýó fyrir skömmu en hann vinnur ásamt fleirum að því að virkja Jap- ana til mótmæla. Mótmæli meðal ungs fólks í Japan hafa verið nánast forboðin allt frá því að slík mótmæli fóru úr böndunum á sjöunda áratugnum þegar umbylta átti borgaralegu samfélagi. „Í Japan þykir það skömm að standa í mótmælum,“ hefur vefsíða New York Times eftir Makoto Yuasa, japönskum aðgerðasinna. „Margir horfa með grunsemd á okk- ur, eins og við gætum verið að búa til sprengjur,“ segir Yuasa. En kreppan er nú farin að breyta þeim viðhorfum og vilja ungmenni nú berjast fyrir auknum atvinnu- möguleikum, atvinnuöryggi og sterkara samfélagsneti. Mótmæli japönsku ungmennanna teljast varla hávær á alþjóðlegan mælikvarða og þar sem áratugir hafa liðið án virkra grasrótarsam- taka og mótmæla skortir hefðina. Margir kjósa því að taka þátt í mót- mælanámskeiðum. Meðal þess sem kennt er á slíkum námskeiðum er veggspjaldagerð og herferðir á net- inu. Verkafólk flykkist nú til liðs við verkalýðsfélög í landinu að sögn New York Times, talsmenn jap- anska kommúnistaflokksins fullyrða að um 1.000 nýir félagsmenn bætist við á mánuði, margir þeirra óánægt ungt fólk. jmv@mbl.is Japönsk ungmenni fá mótmælaþjálfun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.