Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009
HÓPUR vinnuskólanema í Þingeyj-
arsveit vinna í sumar með fornleifa-
fræðingum í uppgreftri. Sérstakur
Fornleifaskóli barnanna hóf störf á
ný í síðustu viku, annað árið í röð. Í
skólanum gefst unglingum tækifæri
til þess að vinna með fornleifafræð-
ingum á vettvangi fornleifarann-
sókna. Fræðslan er í beinum
tengslum við fornleifarannsóknir í
næsta nágrenni nemendanna – á
svæði sem þeir þekkja og eiga auð-
velt með að tengjast.
Skólinn er samvinnuverkefni
Litlulaugaskóla, Brooklyn College
og Hunter College í New York,
Fornleifastofnunar Íslands, Þing-
eysks sagnagarðs, Hins þingeyska
fornleifafélags og Ferðaþjónust-
unnar á Narfastöðum.
Þátttakendum er að þessu sinni
boðið upp á dagskrá sem stendur í
fimm daga. Alls taka fjórtán krakk-
ar þátt í verkefninu að þessu sinni,
nemendur úr Litlulaugaskóla og
Hafralækjaskóla. Fyrsta daginn fer
fram fræðsla um fornleifafræði og
störf fornleifafræðinga í umsjá Þóru
Pétursdóttur fornleifafræðings. Í
þrjá daga starfa síðan krakkarnir
með fornleifafræðingum á uppgraft-
arstað sem er á Skútustöðum í Mý-
vatnssveit, þar sem krakkarnir fá
tækifæri til þess að spreyta sig á
þeim störfum sem fornleifafræð-
ingar vinna við á vettvangi, t.d.
sýnatöku, gröft, skráningu mann-
vistarlaga, sigtun, fleytingu. Þau fá
kennslu í að greina jarðlög og
hvernig þekkja má í sundur bein
húsdýra, fugla og fiska svo dæmi
séu nefnd.
Ágústa Edwald stjórnar upp-
greftinum á Skútustöðum og skipu-
leggur starf krakkanna þar.
Hópnum er skipt í tvennt og
blandað saman þeim sem hafa
reynslu og nýliðum. Þannig læra
krakkarnir líka hvert af öðru.
Nú hefur fyrri hópurinn lokið
sinni þátttöku en seinni hópurinn er
þessa dagana á Skútustöðum og á
föstudaginn fara þau síðan í vett-
vangsferð á minjastaði.
Flokka bein og gripi
Við upphaf námsins héldu forn-
leifafræðingar, sérfræðingar í bein-
um og gripum og fornleifa-
fræðinemar stutta kynningu á
störfum beinafræðinga og gripa-
fræðinga. Störf þeirra leiða í ljós
margvísleg atriði um fæði, heilsu,
störf, stétt og stöðu forfeðranna.
Krakkarnir fengu tækifæri til að
flokka bein og gripi sem fundist
hafa á Skútustöðum. Þeim var síðan
skipt í 2-3 manna hópa sem skiptust
á í hinum ýmsu verkefnum. Þeim
gekk vel að tileinka sér störfin og
voru einkar áhugasöm, skv. upplýs-
ingum aðstandenda skólans.
Fagleg með skeiðina Hópur nemenda vann með fornleifafræðingum við
uppgröft á Skútustöðum í Mývatnssveit.
Spreyta sig við fornleifa-
rannsóknir á Skútustöðum
Ungmenni við sýnatöku, gröft og skráningu í Mývatnssveit
Pétur Stefánsson orti um ástandþjóðmála á leirnum, póstlista
hagyrðinga:
Ó mín skuldum þjáða þjóð,
þín er framtíð ekki góð.
Að því hníga allar spár.
– Yfir landi liggur nauð,
lítið er um daglegt brauð.
Þetta verður erfitt ár.
Helgi Zimsen gagnrýndi Pétur
fyrir bjartsýni og setti á blað:
Bjartsýnn Pétur bragarstef
býður, vart þó glaður sef.
Skelfur land við skuldahaf.
Þyngist óðum ölduklyf,
ekki gagnast nokkur lyf.
Brátt fer allt á bólakaf.
Sigrún Haraldsdóttir fór að
dæmi Helga, engin bjartsýni þar:
Þungt er lagt á bak oss bjarg
að bera þvílíkt skuldafarg
tæpast megnar þjóðarþol.
Ónýt stjórnvöld lúta lágt,
landsmenn eiga munu bágt.
Hér fer allt í kaldakol.
Þá Friðrik Steingrímsson:
Dauðann súpa skal úr skel
skuldum vafin bíða hel.
Hraðan eftir hrunadans.
Fátækt lengi fer með völd
framundan er sultar öld,
og allt á leið til andskotans.
Loks Jón Arnljótsson:
Sultar herðist sífellt ól.
Sérhvert undir hamri ból.
Heppinn sá er hefur mat.
Klæðalítil kúrir þjóð.
Af krafsi undir nöglum blóð.
Efnahagur eintómt gat.
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Af gati og
skuldafargi
TILTÖLULEGA rótgróin hefð er
fyrir því að fara ung og eftirlitslaus
á bæjar- og útihátíðir og sumum
foreldrum finnst því erfitt að segja
„nei“ við börnin sín í því samhengi,
annað hvort af hræðslu við hræsni
(sbr. „hvað gerðir þú þegar þú
varst sjálf[ur]16 ára?“) eða að vera
ósanngjörn (sbr. „það mega allir
hinir fara“). En ef foreldrar eru
samtaka í afstöðu sinni verður
smám saman hægt að breyta menn-
ingunni sem gefur í skyn að það sé í
lagi fyrir börn að vera ölvuð undir
yfirskyni hátíða. Munum að þegar
unglingarnir okkar segja „allir“
þýðir það oft bara „einhver“.
18 ára ábyrgð
Ungmenni yngri en 18 ára eiga
ekki að fara ein og eftirlitslaus á
bæjar- eða útihátíð. Í flestum til-
fellum gengur allt vel á slíkum há-
tíðum en eins og reynslan hefur
sýnt hafa komið upp tilvik þar sem
ungt fólk hefur lent í vanda – sem
væntanlega hefði mátt koma í veg
fyrir hefðu foreldrar eða aðrir full-
orðnir verið með í för. Reynslan og
rannsóknir sýna jafnframt að þeim
börnum farnast best sem verja sem
mestum tíma með fjölskyldu sinni.
Þau eru mun ólíklegri en önnur
börn til að neyta vímuefna og
tengsl þeirra við fjölskyldu sína og
aðra eru yfirleitt mjög góð og já-
kvæð.
Nokkrar ráðleggingar til foreldra
ungmenna í sumar
·Leyfið ekki ungmennum undir
18 ára aldri að fara eftirlitslaus á
bæjar- eða útihátíð.
·Kaupið alls ekki áfengi handa
unglingnum (það er mikill misskiln-
ingur að það dragi úr ofdrykkju eða
bæti drykkjusiði.)
·Hafið í huga að tímabilið frá 10.
bekk og fram í fyrstu vikurnar af
framhaldsskólanum er sérstaklega
varasamar í þessu samhengi, en þá
byrja mjög margir unglingar að
drekka reglulega og illa.
·Útskýrum fyrir unglingum
hvernig áfengisneysla getur hindr-
að árangur í íþróttum, námi og líf-
inu almennt.
·Gleymið ekki uppeldishlutverk-
inu. Allir vilja vera vinir barna
sinna – og þar sem það getur
reynst erfiðara eftir því sem á líður
er freistandi að láta eftir í sam-
bandi við uppeldið. En það er
spurning um að slaka á taumnum –
en alls ekki sleppa.
·Verum góðar fyrirmyndir í sam-
bandi við áfengi.
·Unglingar sem ekki drekka
benda gjarnan á vini, foreldra og
aðra fjölskyldumeðlimi sem helstu
ástæður fyrir þeirri ákvörðun.
Hvetjið því unglinginn til samskipta
við jákvæðar fyrirmyndir, sama á
hvaða aldri þær eru.
Verum samtaka í að taka skref í
rétta átt í sumar og styðjum við
bakið á unga fólkinu okkar. Munum
að samvera foreldra og barna er ein
besta forvörnin og, eins og SAM-
AN-hópurinn hvetur foreldra og
börn, „höngum saman í sumar“.
Hlutverk foreldra
á útihátíðum
hollráð um heilsuna
Héðinn Svarfdal Björnssonverkefn-
isstjóri fræðslumála hjá Lýð-
heilsustöð.
Það er
800 7000 • siminn.is
*Streymi á erlendri tónlist um ADSL internetþjónustu flokkast sem erlent
niðurhal, nánar á Tónlist.is.
**Viðskiptavinir í GSM áskrift, Mínu Frelsi eða ADSL internetþjónustu.
Takmarkaður fjöldi áskrifta.
Í sumar býður Síminn viðskiptavinum sínum Sumaráskrift*
að Tónlist.is fyrir 0 kr. aukalega.** Þar geta þeir hlustað á
uppáhaldslögin sín í símanum eða tölvunni eins oft og þeir
vilja.
Þú færð ekki bara uppáhaldslagið þitt, heldur 2,5 milljónir
íslenskra- og erlendra laga til viðbótar. Farðu á siminn.is,
skráðu þig og njóttu þess að hlusta hvar og hvenær sem er.
Milljónir laga
í símann og tölvuna
án þess að borga krónu aukalega!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
3
5
7
Skrá
ðu þi
g á
simin
n.is