Morgunblaðið - 01.07.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 01.07.2009, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Mikil breyt-ing hefurorðið í Hvíta húsinu í Washington hvað varðar afstöðuna til réttindabaráttu samkynhneigðra. George W. Bush hugðist þrengja að frelsi og mannrétt- indum bandarískra þegna með því að knýja í gegn breytingu á stjórnarskrá Bandaríkjanna, sem bannaði hjónaband sam- kynhneigðra. Hann hafði reyndar ekki sitt fram. Í fyrradag opnaði Barack Obama dyr Hvíta hússins fyrir hundruðum homma og lesbía er hann hélt móttöku í tilefni af 40 ára afmæli Stonewall- uppreisnarinnar í Greenwich Village í New York, sem oft er talin marka upphaf opinberrar réttindabaráttu samkyn- hneigðra í Bandaríkjunum. Mannréttindamálum hefur vissulega fleygt fram í Banda- ríkjunum á þessum fjórum áratugum, eins og Obama, fyrsti svarti forsetinn, minnti á í ræðu sinni: „Sannleikurinn er sá, að þegar þetta fólk mót- mælti við Stonewall fyrir 40 árum, hefði enginn getað ímyndað sér að þið, eða þess vegna ég, mynduð standa hér í dag,“ sagði forsetinn. Í kosningabaráttunni hét Obama því að fella úr gildi lög, sem heimila einstökum ríkjum Bandaríkjanna að neita að viðurkenna hjónaband samkyn- hneigðra, sem stofnað er til í öðru ríki. Hann lofaði jafnframt að nema úr gildi „ekki spyrja – ekki segja“-stefnuna, sem gerir þá kröfu til samkynhneigðra her- manna að þeir þegi yfir kyn- hneigð sinni. Þeir eiga brott- rekstur úr hernum á hættu ef þeir segja frá henni. Enn- fremur hét Obama því að setja ný lög sem tækju harðar á hat- ursglæpum gegn samkyn- hneigðum. Á fundinum í Hvíta húsinu lofaði Obama að fylgja öllum þessum málum fram. Óþolin- mæði er þó farið að gæta í hans garð í röðum samkynhneigðra Bandaríkjamanna, sem kusu hann upp til hópa; þeir telja að á sex mánuðum ætti Obama að vera búinn að gera meira í þessum málum. Forsetinn svaraði fyrir sig með því að segja að stjórn sín yrði ekki dæmd af þeim lof- orðum, sem hann hefði gefið í kosningabaráttunni, heldur loforðunum sem yrðu efnd þegar upp væri staðið. Stuðningur Baracks Obama við réttindi samkynhneigðra heima fyrir er mikilvægur, ekki aðeins fyrir mannrétt- indabaráttuna í Bandaríkj- unum, heldur um allan heim. Viðsnúningur hefur orðið í afstöðu til baráttu samkyn- hneigðra} Hýrnar yfir Hvíta húsinu Ítrekað hefurkomið fram á undanförnum vik- um og mánuðum að svigrúm til kjara- bóta í samningum ríkisins við opinbera starfs- menn er afar takmarkað. Línur voru lagðar í ríkis- fjármálum í þeim stöðug- leikasáttmála sem undirritaður var í síðustu viku af aðilum vinnumarkaðarins, ríkisstjórn og sveitarfélögum. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa þeg- ar gengið frá framlengingu kjarasamninga sinna til nóv- emberloka ársins 2010. Kjara- bætur á samningstímabilinu eru mjög hófstilltar og eiga einkum að koma þeim lægst launuðu til góða. Það er skynsamlegt hjá op- inberum starfsmönnum, sem í sumar munu semja við ríkis- valdið um framlengingu á sín- um kjarasamningum, að ganga fram með hógværar kröfur, eins og greint var frá hér í Morgunblaðinu í gær. „Það var gengið út frá því í þeim [stöðugleika]sáttmála að það ætti að horfa til lægstu launanna og við tökum líka mið af því sem gerist á hinum almenna launamarkaði,“ sagði Árni Stefán Jónsson, starfandi formaður BSRB. Í sama streng tóku þeir Páll Halldórsson, formaður BHM, og Eiríkur Jónsson, formaður KÍ. Í áðurnefndri frétt kom fram að hjá BSRB séu menn þeirrar skoðunar að nú sé færi á að líta til umbóta á félagslegum rétt- indum. Árni Stefán Jónsson nefndi styttingu vinnutíma, „sérstaklega hjá vakta- vinnufólki, það er eitthvað sem að okkar mati er mjög brýnt að taka á, en okkur hefur ekki ver- ið tekið neitt sérlega vel með þessar hugmyndir okkar.“ Hvers vegna skyldi það vera? Vitanlega vegna þess að stytt- ing vinnutíma hjá vakta- vinnufólki í störfum hjá hinu opinbera, þýðir aukin ríkisút- gjöld. Þess vegna er slíkri málaleitan ekki tekið vel af hálfu hins opinbera. Svo einfalt er það. Stytting vinnutíma þýðir aukin ríkisútgjöld} Félagslegar umbætur þýða aukin útgjöld ríkissjóðs É g hef áður viðrað þá kenningu mína hér á síðum Morgunblað- ins að mannskepnunni sé fyr- irmunað að læra af sögunni. Ef til vill er það ofsögum sagt að þetta sé mín kenning, þ.e.a.s. að ég hafi sett hana fyrstur fram. Svo er að sjálfsögðu ekki. Til dæmis er haft eftir þýska heimspek- ingnum Georg Friedrich Hegel (1770–1831) að mannkynssagan kenni okkur aðeins eitt og það sé að hún kenni okkur ekki neitt. En hver tekur mark á Hegel í dag? Hver les He- gel í dag? er kannski betri spurning. Hvað um það. Ég minnist á þetta því að svo virðist sem umræðan í kringum Icesave- fíaskóið og skuldir þjóðarbúsins sé nú enn á þeim slóðum að kreppan, græðgin og óráðsí- an hafi verið undantekningartilvik eða skyndibrjálæði sem ekki megi endurtaka sig. Hugsunin – og þessa hugsun má greina í orðum Einars Más Guð- mundssonar rithöfundar – er að sökudólgarnir séu fjár- málaglæponar sem af einskæru samviskuleysi hafi vit- andi vits komið þjóðinni í slík vandræði að nú bíði hennar þrældómur um aldir alda. Að mínu viti er þetta álíka og að saka hund um samviskuleysi fyrir að míga í hjónarúmið, aftur og aftur. Samviskuleysi, illska eða rætni koma málinu einfaldlega ekki við. Gáleysi og sof- andaháttur, alveg ábyggilega, en fyrst og fremst er hér um að ræða vanþekkingu á hamfarasögu mannlegrar hegðunar og ofmat á eigin vitsmunum. Ég er ekki að vísa í Púnverjastríðin, Kalígúla eða Napó- león. Við þurfum í raun ekki að fara nema nokkur ár aftur í tímann til að sannfærast um vangetu mannsins til að hafa vit fyrir sjálfum sér og öðrum. Satt að segja er kúrf- an sem sýnir ris og fall samfélaga orðin svo skörp að það má líkja þessari þróun við tón- listar- og tískustrauma samtímans sem hafa vart runnið hjá áður en þeir streyma til baka. Eru orðnir alveg rosalega „retró“. Með öðrum orðum: við snúumst í æ smærri hringi. Sú sögukennsla sem fram fer í grunn- skólum landsins og miðar að því að blása þjóðernisanda í ung og óhörðnuð brjóst er því ekki bara tilgangslaus heldur heimsku- leg. Í stað innréttinga Skúla Magnússonar og sjálfstæðisbaráttu Jóns Sigurðssonar ætt- um við að staldra við afglöp þjóðarleiðtoga og undir- lægjuhátt gagnvart svokölluðum vina- og frændþjóðum. Við ættum að minnast tækifæranna sem runnu okkur úr greipum. Við ættum að berja því inn í haus barnanna okkar að manneskjan sé brigðul og að sigrar hennar séu í langflestum tilvikum komnir til vegna happs eða tilviljana. Ef þetta tekst munum við ef til vill skilja það betur næst hvers konar vitleysa það er að líkja þeim af- reksmönnum sem við lítum upp til á hverjum tíma við ólæsa og skítuga rudda sem sigldu um á smábátum og rændu og rupluðu hvar sem þá rak í land. hoskuldur@mbl.is Höskuldur Ólafsson Pistill Hin mannkynssagan Miðstöðin „löguð að“ breyttu umhverfi FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is Þ rátt fyrir mikinn vilja samgönguráðherranna Sturlu Böðvarssonar og Kristjáns Möller hefur ekki enn verið hafist handa við að reisa samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni. Stjórnvöld hafa ár- angurslaust reynt að hraða bygg- ingu miðstöðvarinnar allt frá árinu 2005, en allt hefur komið fyrir ekki. Sturla, sem var samgöngu- ráðherra á árunum 2003 til 2007 beitti sér sérstaklega fyrir því að miðstöðin yrði byggð, ekki síst til þess að bæta þjónustu við innan- landsflug í landinu. Flugstöðin í Vatnsmýri sem nú er notuð er kom- in til ára sinna og hafa ýmsir bent á að nauðsynlegt sé að skapa innan- landsfluginu betri aðstæður, ekki síst til þess að auka möguleikann á því að samkeppni skapist á mark- aðnum á jafnréttisgrundvelli. Til- raunir til þess hafa hingað til ekki tekist. Breytt umhverfi Í minnisblaði samgönguráðherra og borgarstjórans í Reykjavík frá 11. febrúar 2005 kemur fram að samgönguyfirvöld muni loka NA/SV flugbraut Reykjavíkurflugvallar til þess að skapa svæði til annarra nota, þar á meðal samgöngumiðstöð. Deil- ur hafa verið á milli ríkis og borgar um þetta mál, þar sem vilji hefur verið til þess hjá borgarfulltrúum, þvert á flokka, að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri. Einróma sátt um mál- ið hefur þó ekki verið fyrir hendi og því hefur framgangur málsins innan stjórnsýslunnar, þá helst hjá borg- inni, gengið hægt. Hinn 8. apríl á þessu ári undirrit- uðu Kristján og Hanna Birna Krist- jánsdóttir borgarstjóri annað minn- isblað þar sem fyrri áform um byggingu miðstöðvarinnar voru áréttuð. Sérstaklega er tekið fram að hlutverk miðstöðvarinnar sé mik- ilvægt, „hvort sem innanlands- flugvöllur verður áfram í Vatnsmýr- inni eða ekki, enda er samgöngumiðstöð ætlað að hýsa alla samgöngustarfsemi í Vatnsmýrinni til framtíðar.“ Eftir hrun bankakerfisins á haust- mánuðum í fyrra hafa fyrri áform um miðstöðina verið lögð á hilluna. Til stóð að hafa verslanir inni í mið- stöðinni og jafnvel möguleika fyrir aðra nýtingu á húsinu í framtíðinni. Heildarkostnaður við miðstöðina eins og hún hafði verið áætluð var um 1,5 milljarðar króna. Í fyrrnefndu minnisblaði frá 8. apríl kemur fram að miðstöðin verði „aðlöguð að breyttum efnahags- aðstæðum og færri farþegum en gert var ráð fyrir í upphaflegri áætl- un“. Útfærsla á þessum breytingum liggur ekki fyrir. Samgöngu- ráðherra og Reykjavíkurborg hafa hvort um sig tilnefnt tengiliði við Flugstoðir til þess að vinna að fram- gangi málsins. Þeir hafa meðal ann- ars það hlutverk að tryggja að makaskipti ríkis og borgar nái fram að ganga. Í þeim felst að ríkið af- hendir borginni jafnverðmætt land í eigu ríkisins gegn lóð borgarinnar þar sem samgöngumiðstöð rís. Þá eiga tengiliðirnir að vinna að því með Flugstoðum að ákvarða stærð miðstöðvarinnar, bílastæði og þess háttar. Morgunblaðið/Golli Undirritun Kristján Möller samgönguráðherra og Hanna Birna Kristjáns- dóttir borgarstjóri undirrituðu minnisblað um samgöngumiðstöð í apríl. Samgöngumiðstöðin í Vatnsmýri er eitt af þeim verkefnum sem hugsanlega verða unnin í einka- framkvæmd. Stefnt er að því að byggja hana upp minni að um- fangi en áður var áformað. „ÉG tel samgöngumiðstöð ekki til forgangsmála í framkvæmdum,“ segir Oddný Sturludóttir, borgar- fulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík og flokkssystir sam- gönguráðherra. Hún segir mörg verkefni vera brýnni en miðstöðina. „Auk þess tel ég hönnun og skipu- lagsvinnu sem tengist henni ekki vera komna á þann stað að hún rísi í bráð.“ Borgarfulltrúar í Reykja- vík hafa hingað til verið tregir til þess að ráðast í gerð samgöngu- miðstöðvar, þrátt fyrir sameig- inlegar viljayfirlýsingar um bygg- ingu miðstöðvarinnar. Oddný segir að borgarfulltrúar, hvar í flokki sem þeir standa, þurfi að taka ákvarðanir varðandi samgöngu- miðstöðina með hagsmuni sam- gangna í Reykjavík að leiðarljósi. „Miðstöðin verður að vera byggð upp þannig að hagsmunir sam- gangna í Reykjavík séu í forgangi.“ MARGT BRÝNNA ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.