Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 27

Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009 að veiða á stöng og mér tókst að ná fleiri fiskum á land en þeim saman- lagt. Ég lærði það af Lilju ömmu minni að aldur skiptir litlu máli. Hún kom vel fram við alla en var líka hrein- skilin og sagði sína skoðun. Ég vona að einhverjir af hennar góðu eigin- leikum lifi í mér og mínum. Jóhann Helgi Sigurðsson Lilja var fjórða í röð 6 systkina sem ólust upp í hjarta Reykjavíkur, í Skólastræti, steinsnar frá Lækjar- torgi. Hún var aldursforseti í fjöl- skyldunni okkar, 86 ára, og náði hærri aldri en systkini hennar eða foreldrar sem öll eru látin. Skóla- strætið var miðpunktur bernsku og æsku samheldinna systkina og fjögur þeirra komu aftur með fjölskyldur sínar og bjuggu þar um lengri eða skemmri tíma. Við sem ólumst upp eða tengdumst Skólastræti, kynslóð fram af kynslóð á síðustu öld, til- heyrðum stórfjölskyldu sem var þar öll á næsta leiti. Góðkunningjar unnu þar í verslun, ljósmyndastofu, smíða- og hjólreiðaverkstæði og vinafólk bjó í næstu húsum. Daglega hittist fólkið og börnin nutu þess að eiga svo marga að sem létu sig velferð þeirra varða. Þarna uxu úr grasi á svipuðum tíma börn þriggja systra með ömmu sína innan seilingar og áttu greið samskipti við börn hinna móður- systkina sinna. Það hefur stuðlað að samheldni fjölskyldunnar að börnin léku sér saman í bernsku og kynnt- ust. Lilju gekk vel í skóla og stutt fyr- ir hana út í Menntaskóla. Eftir stúd- entspróf fór hún í læknadeild og stóð sig líka vel þar. Á kandídatsári 1949 lá leiðin í Hérað til Egilsstaða þar sem hún kynntist manni sínum, Jóni Sigurðssyni. Þau fluttu til Reykjavík- ur og eignuðust fimm mannvænleg börn. Lilja vann læknisstörf fyrstu árin en sinnti síðan heimilinu og kennslu í líffæra- og lífeðlisfræði í Hjúkrunarskólanum og þótti afar góður kennari. Fjölskyldan og ná- grannar leituðu mikið til Lilju sem þótti alltaf mjög glögg að sjúkdóms- greina og var ráðagóð. Hún var líka góður hlustandi. Lilja var góð fyrir- mynd kvenna í fjölskyldunni og höf- um við nokkrar fylgt fordæmi hennar í starfsvali. Lilja var fínleg og grönn kona, lag- leg og létt í hreyfingum. Hún var vel- viljuð, skilningsrík en ákveðin og staðföst, hrein og bein og henni fylgdi öryggi. Hún varð ekkja fyrir 19 árum og átti við nokkurt heilsuleysi að stríða, en var samt dugleg að bjarga sér og hafa ánægju af lífinu, og hafði mikið og gott samband við börnin sín og fjölskyldur þeirra. Hún fylgdist með menningarviðburðum og hafði áhuga á skáldskap og fróðleik. Var góður bridsspilari, mikil hannyrða- kona, flink við allt sem hún gerði, prjónaði og heklaði, kom sér upp vef- stól og lærði að vefa. Hún var með kímnigáfuna í lagi eins og flest henn- ar fólk og kom auga á spaugilegu hliðarnar í blíðu og stríðu. Þrautseig og hugprúð en laus við allt fjas. Á undanförnum árum höfum við frænk- urnar, 11 dætur þessara 6 systkina, hist mánaðarlega yfir veturinn ásamt Lilju og spilað brids og spjallað sam- an. Þannig höfum við kynnst nánar og treyst böndin og Lilja verið okkur traustur tengiliður við kynslóð for- eldra okkar og liðna tíð. Við frænd- systkinin verðum nú fátækari en áð- ur og munum sakna hennar, vináttunnar og notalegra samskipta við góða frænku. Mér hefur hún verið nákomin og kærkomin vinkona. Við systkinin, Hans, Elín, Júlíus og fjöl- skyldur okkar senda börnum Lilju og fjölskyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Lilju Maríu Petersen. Guðrún Agnarsdóttir. Fráfall Lilju móðursystur minnar var óvænt. Þó máttum við vita að það gat vofað yfir. Og engum var það ljós- ara en henni. En hún kaus að lifa líf- inu til fulls. Hún var alltaf miðdepill þegar við hittumst frænkurnar úr Skólastrætinu á „frænkukvöldunum“ og hún lagði land undir fót, ef tæki- færi gafst, eins og ekkert amaði að. Síðasta kvöldinu varði hún glöð og kát heima hjá dóttur sinni. Hún var komin aftur í Mávahlíð, þar sem fal- legt heimili hennar hafði staðið í ára- tugi, og var gengin til náða er kallið kom. Lítill vafi er á að svona vildi hún hafa það. Lilja var dóttir Guðrúnar og Hans Petersen, lifði lengst barna þeirra, og markar fráfall hennar mikil þáttaskil. Er Hans féll frá var eiginkonan ein eftir í ábyrgð fyrir sex barna hópi og nú bættist umsvifamikill fyrirtækj- arekstur við. Ekki var þá algengt að konur stæðu í slíku, en hún reis vel undir þeim skyldum. Auðvitað hljóta miklar annir húsmóðurinnar að hafa haft áhrif á mótun barnanna. En vel rættist úr því öllu. Ég hef síðustu daga horft á gamla mynd í fjölskyldu- albúminu af tveimur ungum telpum, Lilju og Unu móður minni. Það lýsir af myndinni, þar fóru ekki aðeins systur, heldur góðar og einlægar vin- konur. Og þannig var það alla tíð. Þær töluðust daglega við, annað- hvort beint eða í síma. Þegar báðar höfðu stofnað heimili, reyndust eig- inmennirnir eiga gott skap saman og dró það ekki úr samheldninni. Margar minna bestu bernsku- minninga tengjast atburðum sem fjölskyldurnar úr Skólastræti áttu saman. Sólríku sumardagarnir í Fossvogi, þar sem barnahópurinn lék sér frjáls í öruggu skjóli ömmu og systranna. Það voru ljúfir tímar og þar sé ég Lilju fyrir mér glaða í bragði með hópinn sinn. Það var mik- ill missir fyrir Lilju þegar Una lést fyrir aldur fram 1987. En ég naut áfram sömu vináttu af hendi Lilju. Með sama hætti og Guðrún Petersen var brautryðjandi, sem kona í fyrir- tækjarekstri, varð Lilja læknir þegar enn var óalgengt að konur lykju læknaprófi. Stundaði hún lækningar um skeið og þegar um hægðist við barnauppeldi, kennslu í líffæra- og lífeðlisfræði við Hjúkrunarskólann. Hafa starfssystur mínar margar oft haft á orði, hvílíkur afbragðs kennari hún var. En hún var fyrst og síðast afbragðs manneskja, vönduð til orðs og æðis. Hún var skörp í hugsun og greindi auðveldlega kjarna hvers máls. Öll yfirborðsmennska, skrum og stóryrði voru henni víðsfjarri. Hún var næm fyrir skemmtilegri hliðum tilverunnar og gaukaði oft að manni skondnum sögum úr daglega lífinu. Lilja hafði hlýja og skemmti- lega nærveru, var blátt áfram í fram- komu, en föst fyrir ef við átti. Mér verður aftur hugsað til fallegu mynd- arinnar af þeim samhentu systrum. Ég er þakklát fyrir að hafa upplifað fölskvalausa vináttu þeirra og þakka alla hennar umhyggju við mig og mína. En mér verður líka hugsað, þegar ég horfi á myndina af Lilju, hvað þessi fíngerða telpa átti eftir að standa sig frábærlega vel til hinstu stundar. Það er ekki ónýtt fyrir fólkið hennar Lilju að geta leitað í þann minningarsjóð, sem sú góða kona skilur eftir. Ástríður Thorarensen. Lilja föðursystir mín var næst- yngst Petersen-systkinanna sex úr Skólastrætinu en varð langelst af þeim. Mikill kærleikur og virðing ríkti meðal þeirra systkina og við af- komendur þeirra höfum verið í góð- um tengslum í gegnum tíðina. Fjöl- skyldufyrirtækið Hans Petersen átti drjúgan þátt í því en þar unnu flest okkar í sumarvinnu og sum okkar ár- um saman. Öll menntuðu systkinin sig ágæt- lega á þeirra tíma mælikvarða en Lilja skaraði þar fram úr og útskrif- aðist sem læknir. Eftir að hún gifti sig kaus hún að sinna uppeldi barnanna sinna fimm og koma þeim til manns áður en hún nýtti þekkingu sína til kennslu í líffærafræði við Hjúkrunarskóla Íslands. Fáeinum dögum fyrir andlát Lilju hitti ég fyrr- verandi nemanda hennar sem sagði að hún hefði verið besti kennarinn sinn fyrr og síðar. Vinkona mín sagð- ist aldrei hafa komist í gegnum þessa líffærafræði nema fyrir þann aga sem Lilja hafði á hópnum og bætti við: „En hlýjan og skopskynið voru líka alltaf til staðar“. Ég minnist þess varla að Lilja hafi tekið til máls öðruvísi en í orðum hennar fælist fínkrydduð glettni, hún var sögumaður af guðs náð og færði mikinn fróðleik til okkar systk- inabarnanna frá uppeldi systkina hennar og Reykjavík fyrri tíma. Í Skólastrætinu var oft mikið hlegið og í bókstaflegri merkingu grétu þar allir úr hlátri. En vinnusemi og dugnaður voru líka í fyrirrúmi og tók Guðrún móðir Lilju við rekstri fyrir- tækisins þegar hún varð ekkja 46 ára gömul með sex börn sem voru á ung- lingsaldri. Faðir minn Hans sem var elstur kom fljótlega inn í reksturinn með henni og ráku þau fyrirtækið saman meðan hún lifði og tók hann við ljósmyndahluta fyrirtækisins þegar hún lést. Við fráfall föður míns og einnig framkvæmdastjórans sem stýrt hafði fyrirtækinu í veikindum Hans komu Lilja og systir hennar Una að máli við mig og báðu mig að taka við „forretningunni“. Það var kannski ekki óeðlilegt í fjölskyldu- fyrirtæki en ég var þá hálfnuð í við- skiptafræði í HÍ og man ég sérstak- lega þegar Lilja sagði við mig að ég gæti svo bara klárað þetta háskóla- nám síðar. Mér fannst ekki koma annað til greina en að taka verkefnið að mér og held að sú reynsla hafi nýst mér ekki síður vel en háskóla- gráða og fyrir það er ég þeim systr- um afar þakklát. Það er mér sérstak- lega minnisstætt hvað þær voru mikill stuðningur fyrir mig fyrstu ár- in og aldrei féll eitt orð um að þær vildu gera hlutina öðruvísi. Lilja hafði víðtækan áhuga á menningu og listum. Til hinsta dags sótti hún menningarviðburði með börnum sínum og hafði sérstakt dá- læti á kvikmyndahátíðum og nám- skeiðum um íslensku fornsögurnar. Auk þess var hún einlægur bridsspil- ari. Lilja frænka mín lifði afar inni- haldsríku lífi, hún var vel gift og um- vafin fimm einstökum börnum og fjölda afkomenda. Það verður sannarlega sár sökn- uður að Lilju úr fjölskyldunni en gott til þess að hugsa hversu mikið hún gaf til okkar þjóðfélags í víðum skiln- ingi. Afkomendum hennar öllum votta ég mína dýpstu samúð. Hildur Petersen. Að eiga góðan vin er mikil gæfa. Þannig vin eignaðist ég þegar við Lilja urðum sessunautar í mennta- skóla og æ síðan hefur þessi vinátta haldist einlæg og trygg, án þess að skugga bæri á. Lilja var sönn og heil og trygglynd. Þessir eiginleikar fylgdu henni alla ævina. Foreldrar hennar voru Guð- rún Jónsdóttir Petersen og Hans Petersen kaupmaður. Hún ólst upp í stórum systkinahóp og var mikil samheldni milli systkinanna. Hún missti föður sinn á unglingsárunum, en eftir stóð móðir hennar með stór- an barnahóp og fyrirtæki sem hún rak af einskærum dugnaði og atorku og hefur ekki hver sem er verið fær um þetta verk. Sjálf eignaðist Lilja efnilegan barnahóp, sem hún annað- ist af sama dugnaði og móðir hennar hafði gert. Þegar maður eldist og finnur að kraftarnir þverra þá á maður þá ósk heitasta að fá að deyja á sínu heimili sáttur við allt og alla. Þannig kvaddi Lilja þetta líf. Við skólasysturnar sendum fjöl- skyldu Lilju bestu samúðarkveðjur. Ragnhildur Ingibergsdóttir.                                         ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HALLA INGA EINARSDÓTTIR, áður til heimilis Eikjuvogi 24, lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 26. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. júlí kl. 15.00. Pálína Erna Ólafsdóttir, Marsibil Ólafsdóttir, Stefán Árnason, Sigrún Ólafsdóttir, Pétur Jónsson, Ingimar Ólafsson, Guðlaug Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, SIGURBJÖRN PÁLMASON, Vesturbrún 17, Reykjavík, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 28. júní, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju föstudaginn 3. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ás styrktarfélag. Ingibjörg Daníelsdóttir, Pálmi Jónsson, Hjálmar Pálmason, Guðlaug Sigurðardóttir, Gylfi Pálmason, Hólmgeir Pálmason, Ingibjörg Þorláksdóttir, Bergþór Pálmason, Sigrún Marinósdóttir, Ásgerður Pálmadóttir, Guðjón S. Gústafsson, Svanhildur Pálmadóttir, Sigurður Ámundason og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR, Melagötu 15, Neskaupstað, andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn 24. júní. Jarðarförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 3. júlí kl. 14.00. Gunnar Jónsson, Jón Gunnarsson, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Steinar Gunnarsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, MATTHILDUR BYLGJA ÁGÚSTSDÓTTIR, Staðarhrauni 24a, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtu- daginn 25. júní. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 3. júlí kl. 13.00. Walter Borgar, Brynleifur Heiðar Jónsson, Ra Ong Phumatphon, Ágúst Hilmar Jónsson, Erla Björg Kjartansdóttir og ömmubörnin. ✝ Ástkær unnusta mín, systir okkar og mágkona, ÁSTHILDUR SÍMONARDÓTTIR, Sléttuvegi 7, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 28. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurður Árni Sigurðsson, Helgi Símonarson, Bryndís Gunnarsdóttir, Hanna Jonný Símonardóttir, Erla Símonardóttir, Viðar Símonarson, Halldóra Sigurðardóttir, Margrét Símonardóttir, Nathan Langwald, Þorbjörg Símonardóttir, Auðunn Karlsson, Jóhanna Símonardóttir, Vilhjálmur Nikulásson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.