Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 31

Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 31
Gunna, en það var hún alltaf kölluð, var alla tíð mikil fjölskyldu- kona. Hún setti fjölskylduna í for- gang og naut þeirra stunda sem hún átti með fjölskyldunni. Hún naut þess að ferðast og við ferð- uðumst mikið saman um fjöll og firnindi. Við eldhúsborðið í Stóragerðinu áttum við margar stundirnar þar sem við ræddum um lífið og til- veruna. Þú varst alin upp við sveitastörf í Fljótshlíðinni og þar hófuð þið Mundi ykkar búskap. Þið Mundi höfðuð tekist á við erfiðar stundir í lífinu eins og það að missa ung börn. Lífið hafði kennt ykkur mikilvægi þess að vera sjálfum sér nógur, bera virðingu fyrir nátt- úrunni og að fara vel með. Þegar ég kynntist ykkur bjugguð þið í nýju húsi við Stóragerði á Hvols- velli. Húsi sem þið reistuð af mynd- arskap og Mundi smíðaði allar inn- réttingar sjálfur. Garðurinn í Stóragerðinu var að byrja að taka á sig mynd og átti eftir að verða einn fallegasti garðurinn á Hvolsvelli. Handavinna eftir þig prýddi heim- ilið og ófáar voru svo gjafirnar sem barnabörnin fengu sem amma hafði búið til. Dætur okkar Hákonar ól- ust upp í nágrenni við ömmu sína og nutu félagsskapar þíns og at- hygli, því alla tíð hafðir þú mikinn áhuga á öllu sem meðlimir fjöl- skyldunnar tóku sér fyrir hendur og hvattir okkur til dáða. Elsku Gunna, þegar þú kvaddir þennan heim 17. júní, á þjóðhátíð- ardegi okkar Íslendinga, hljómaði þjóðsöngurinn í Stórólfshvols- kirkju; þau sungu þér söng. Ég kveð þig með söknuði og þakka fyrir mig. Halldóra Magnúsdóttir. Elskuleg og kær systir og ynd- isleg frænka er farin til æðri heim- kynna. Þjóðhátíðardagurinn var fallegur dagur og yfir honum var sérstakur blær þetta árið. Guð- björg frænka hringdi til að láta vita að Gunna systir og frænka hefði skilið við þetta jarðlíf. Í hugann komu upp margar minningar um gamla góða tíma í Fljótshlíðinni, heima á Lambalæk hjá ömmu og afa sem bjuggu í vesturbænum, „vestrí“ og Gunnu og Munda „austrí“, en þannig var gjarnan tal- að um austurbæinn á Lambalæk. Minningar um góða og hláturmilda tíma, sem einkenndust af mann- kærleika, samskiptum við gott fólk og gleðin höfð í fyrirrúmi. Fljóts- hlíðin mild og fögur og Þríhyrn- ingur eins og verndari yfir sveit- inni. Þegar þær systur hittust var alltaf glatt á hjalla og mikið helgið og svo tókum við frænkurnar við. Palla og Gunna þóttu um margt lík- ar, sérstaklega nú í seinni tíð. Svip- brigðin voru þannig að við krakk- arnir sögðum oft: „Ja, nú er hún Gunna komin.“ Gaman var nú á seinni árum að leggja fyrir þær systur spurningar um gamla tíma og þá fór svarið yfirleitt um víðan völl og margt og mikið rifjað upp, þótt svarið við spurningunni væri löngu komið fram og væri aðeins lítið atriði. Upprifjun þeirra af gamla tímanum var okkur sem yngri erum mikil ánægja og oft mikill fróðleikur, oftast um sveitina þeirra Fljótshlíðina og næsta ná- grenni og vinina mörgu í sveitinni. Það fækkar í systkinahópnum frá Lambalæk sem var svo sérstaklega ljúfur og geðgóður hópur sem gott var að vera í návist við. Þau voru: Gunnar, Imba, Þóra, Palla, Gunna , Sigga, Gústi og Jóna var yngst. Að- eins eru nú Sigga og Palla eftir. Gunna systir og frænka var mikil kjarnakona. Hún hugsaði vel um heimili sitt og allt sem í kringum hana var skipti hana miklu máli. Mikið var alltaf gott að koma að- eins við hjá henni og Munda í Stóragerðinu á Hvolsvelli og fá 10 dropa – en það varð að vera alltaf meira og eitthvað með kaffinu svo borðið svignaði undan kræsingum sem Gunna tók til á ótrúlega stutt- um tíma. Sem sagt alltaf fullt til með kaffinu. Nú í seinni tíð er Gunna var heimsótt á Kirkjuhvol sýndi hún gjarnan myndir af ömmubörnunum og langömmu- börnunum og sagði frá hvað þau væru að sýsla hvert og eitt. Á sama hátt spurði hún mikið um hagi allra í okkar fjölskyldu og vildi fá að vita sem mest. Þannig var Gunna. En síðast er við komum til hennar var verulega af henni dregið og ekki hlógu þær systur mikið þá. En samt mátti sjá glettni í svip þeirra beggja. Elsku Mundi, Gunnar, Guð- björg, Hákon og fjölskyldur ykkar allra, við samhryggjumst ykkur öll- um og vitum að gott er að ylja sér við minningar um góða eiginkonu, yndislega móður og góða og gef- andi ömmu. Minningin lifir. Elsku Gunna systir og frænka, við kveðjum þig í bili í þeirri vissu að við eigum eftir að hittast aftur í æðri heimkynnum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Pálína, Sigrún, Lúðvík og Kristín. Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Elskuleg móðir mín, dóttir, systir og mágkona, HLÉDÍS GUNNARSDÓTTIR, Snægili 9, Akureyri, sem lést þriðjudaginn 23. júní, verður jarðsungin frá Garðskirkju í Kelduhverfi fimmtudaginn 2. júlí kl. 14.00. Elvar Pálsson, Kristveig Árnadóttir, Ómar Gunnarsson, Hrafnhildur Stella Sigurðardóttir, Árni Grétar Gunnarsson, Margrét Sigurðardóttir. ✝ Frænka okkar, ÁSA GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR læknir, Fannafold 63, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 26. júní. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 2. júlí kl. 14.00. Rannveig Anna Hallgrímsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARÍU RAGNARSDÓTTUR, Skógargötu 1, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks deilda III og V, á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkóki fyrir einstaka umönnun. Guð blessi ykkur öll. Systkinin Aadnegard og fjölskyldur. ✝ Innilegt þakklæti til allra sem sýndu okkur ómetanlega vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, FANNEYJAR MAGNÚSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks 4. hæðar Sólvangs í Hafnarfirði. Anna Magnea Ólafsdóttir, Þórarinn Sigvaldi Magnússon, Tryggvi Ólafsson, Theódóra Gunnlaugsdóttir, Lára Ólafsdóttir, Sveinn Andri Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem veittu okkur stuðning og hlýhug við fráfall og útför eiginmanns, föður og tengdaföður okkar, GUÐMUNDAR Ó. JÓNSSONAR frá Grund Ólafsvík, til heimilis að Bjarkarhrauni 11, Borgarbyggð. Jónína Kristjánsdóttir, Björg Guðmundsdóttir, Sigurður K. Sigþórsson, Stefán Már Guðmundsson, Kristín Ósk Hjartardóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem veittu hluttekningu og sýndu hlýhug við andlát og útför JÓHANNESAR ARASONAR frá Múla. Fyrir hönd aðstandenda, Ari Óskar Jóhannesson, Elías Í. Jóhannesson. ✝ Elskuleg frænka okkar, SIGRÍÐUR THORLACIUS, lést mánudaginn 29. júní. Gylfi Thorlacius, Sigríður Thorlacius, Stefanía María Pétursdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR BERGMANN RUNÓLFSSON bakarameistari, Vallarási 1, Reykjavík, lést að morgni sunnudagsins 21. júní. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 3. júlí kl. 13.00. María Emma Suarez, Blængur Sigurðsson, Allan Sigurðsson. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skila- frests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdar- mörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.