Morgunblaðið - 01.07.2009, Page 35
Velvakandi 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER AÐ
SKRIFA NIÐUR
ÞAÐ SEM ÞARF
AÐ GERA HÉRNA
Í HÚSINU
SKIPTA... UM...
PERU... Í ELDHÚSINU...
ÞÚ ERT AÐ
SKRIFA Á
ANDLITIÐ Á
MÉR
VEISTU
HVAÐ ER
SKRÍTIÐ?
FYRST EFTIR AÐ ÉG FÉKK
GLERAUGUN MÍN FÓRU ÞAU
Í TAUGARNAR Á MÉR...
ÉG VAR EKKI NÓGU
VANUR ÞEIM...
NÚNA TEK ÉG VARLA EFTIR
ÞVÍ AÐ ÉG SÉ MEÐ ÞAU
PABBI,
EKKI
MEIÐA
MIG! ÉG
GET
ÚTSKÝRT
ÞETTA!
SNJÓSKRÍMSLI! ÉG FRYSTI
ÞAU! ÞAU ÆTLUÐU AÐ NÁ
MÉR, ÞANNIG AÐ ÉG VARÐ
AÐ NÁ ÞEIM FYRST
ÞAÐ ER KOMIÐ
MIÐNÆTTI! VIÐ RÆÐUM
ÞETTA ALLT Í FYRRA-
MÁLIÐ... NÚNA SKALT ÞÚ
FARA BEINT Í RÚMIÐ!
HVERNIG Á ÉG AÐ GETA
SOFNAÐ NÚNA?
GETUR ÞÚ
GERT VIÐ
BÁTINN
MINN SEM
SNÖGGVAST?
VELTUR
Á ÝMSU...
HVAÐ
ER AÐ
HONUM?
PRÓFIÐ „DOZITAL“!
VARÚÐ...
GETUR VALDIÐ
NEFRENNSLI...
HÓSTA, VINDGANGI,
HEYRNARLEYSI,
NIÐURGANGI,
SVIMA OG HÁRLOSI
HVAR
GET ÉG
KEYPT ÞAÐ?
MAGADANSNÁMSKEIÐIÐ
BYRJAR Á MORGUN. ÉG
ER PÍNU STRESSUÐ
STRESSUÐ?
SÍÐUSTU DAGA HEFUR ÞÚ
EKKI TALAÐ UM ANNAÐ EN
HVAÐ ÞAÐ YRÐI GAMAN
AÐ LÆRA MAGADANS. AF
HVERJU ERTU STRESSUÐ?
VEGNA ÞESS AÐ
MAGINN Á MÉR LÍTUR
ÚT EINS OG ÉG HAFI
FÆTT FIMMTÁN BÖRN
ÞÚ SETUR BARA
SMÁ GLINGUR Í
NAFLANN OG ÞÁ
TEKUR ENGINN
EFTIR ÞVÍ
KEYRÐU
MIG HEIM
JÁ, HERRA
KRANDIS
KEMUR MARY JANE PARKER
EKKI MEÐ ÞÉR Í KVÖLD?
NEI,
HÚN...
VAR
UPPTEKIN
EN ÞAÐ SEGIR
ENGINN „NEI“ VIÐ
SIMON KRANDIS
HIMINNINN er heiður og runnarnir grænir í Laugardal á þessari mynd.
Skokkari sendir smáskilaboð, greinilega flestu vanur á hlaupunum. Nú er
1. júlí, landið skartar sínu fegursta og mannlífið blómstrar.
Morgunblaðið/Eggert
Hlaupið í Laugardal
Skuldir Icesave
SKULDIR Icesave,
sem ég hafði aldrei
heyrt um fyrr en í
október 2008, eru slík-
ar að mitt hugmynda-
flug skilur það ekki.
Umræðan núna snýst
um að fresta/frysta
skuldirnar í sjö ár gegn
því að íslenska ríkið,
sem allt í einu er komið
í ábyrgð fyrir þessu
einkafyrirtæki, borgi
vexti af skuldunum á
þeim tíma. Þetta er
eins og okkur húseig-
endum á Íslandi var
boðið upp á í haust, með veði í eign-
inni nema við fengum eins árs fryst-
ingu og fáum alla ársvextina í haus-
inn að þeim tíma liðnum. Það sem
íslenska ríkinu (íslenskum þegnum)
er boðið upp á er að reyna að selja
eignir þessa einkabanka í útlöndum
upp í skuldirnar á sjö árum. Eftir
það virðist enginn vita hvað tekur
við. Mín stóra spurning er: hvers
vegna eru ekki sett veð í þessar
eignir og bankastofnunin sjálf látin
taka ábyrgð á skuldum sínum? Og ef
íslenska ríkið er með ábyrgð á
skuldunum þá hlýtur breska ríkið,
sem og það hollenska og ef til vill
fleiri ríki, að bera þá sömu ábyrgð á
þessum skuldum. Hvað er svona
ólíkt með einkafyrirtæki erlendis og
okkur venjulegu fólki á Íslandi, sem
skuldum öll umfram eignir?
Guðbjörg Þórðardóttir.
Varað við að nota lykt
til að tæla þorsk í gildrur
TILRAUN sem til stendur að gera á
vegum Hafrannsóknastofnunar á
Ísafirði gæti leitt til tjóns á veiðum
út af Vestfjörðum.
Um 1960 birtist grein í erlendu
blaði um tilraun sem von Humboldt-
stofnunin í Berlín gerði við stórt
stöðuvatn í Þýskalandi. Frásagnir á
notkun á beitu sem lögð höfðu verið í
romm vakti athygli vísindamann-
anna. Þeir settu niður athug-
unarstöðvar umhverfis vatnið og
settu rommlegið agn á tilteknum
stað við bakkann. Á
ótrúlega skömmum
tíma var allur fiskur í
vatninu lagður af stað
áleiðis að agninu og
safnaðist að lokum þar
við bakkann. Á þeim
tíma sem ég las þessa
frétt hafði ég leyfði til
veiða í Hraunhafn-
arvatni. Ég skar upp
síld og bleytti hana upp
í rommi og fór með
hana á veiðistaðinn og
festi við bakkann. Eftir
einn og hálfan tíma
virtist allur fiskurinn
búinn að safnast saman
í kringum romm-
bleyttu síldina.
Á 19. öldinni stunduðu Íslend-
ingar hákarlaveiðar í miklum mæli
og notuðu þeir rommlegið hrossa-
kjöt og selspik til beitu við veið-
arnar.
Veturinn 1958 útbjó ég tvo lágvaði
og gerði félag við Baldur Björg-
vinsson útgerðarmann á Rauf-
arhöfn, eiganda m/b Björgvins. Við
lögðum vaðina þrjár mílur út frá
Raufarhöfn og fengum sjö stóra há-
karla á úthaldinu. Þvílíkar skepnur.
Við notuðum rommlegið hrossakjöt
og selspik í beitu. Hákarlarnir lifr-
uðu frá einni til tveimur tunnum af
lifur. Hákarlinn verkaðist vel og
seldist allur bæði til heimila og veit-
ingastaða, meðal annars til Hótels
KEA og Naustsins í Reykjavík.
Einar Vilhjálmsson.
iPod í óskilum
IPOD fannst í Heiðmörk 17. júní sl.
Upplýsingar í síma 898-4822.
Myndavél fannst á Esjunni
SVÖRT myndavél í svörtu hulstri
efst á Esjunni í byrjun maí. Vitað er
að eigandi vélarinnar heitir Simon
og hann er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í póstfangið esju-
myndavel@gmail.com.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Félagsstarf fellur niður
vegna sumarlokunar, matur kl. 12-13.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, heilsu-
gæsla 10-11.30, púttvöllur opinn. Handa-
vinna fellur niður í dag og á morgun.
Bólstaðarhlíð 43 | Spilað, handavinna,
fótaaðgerð, hárgreiðsla, böðun, kaffi/
dagblöð, hádegismatur.
Dalbraut 18-20 | Bónus kl. 14.40.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10.
Félagsheimilið Gjábakki | Morgunverð-
arhlaðborð sundhópsins kl. 10, félagsvist
kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15-16 og bobb
kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Opnum í
dag eftir sumarleyfi. Hádegismatur kl.
11.40 og handavinnustofan opin.
Hraunbær 105 | Félagsmiðstöðin er op-
in kl. 9-14, matur kl. 12.
Hraunsel | Pílukast kl. 13.30.
Hæðargarður 31 | Opið í sumar kl. 9-16.
Félagsvist alla mánudaga. Listasmiðjan,
tölvurnar, hugmyndabankinn, Stefáns-
ganga, púttvöllurinn, morgunfjas, banka-
þjónusta, hádegisverður, kaffi og fé-
lagsvist alla mánudaga. Sími 411-2790.
Fótaaðgerðarstofa, s. 897-9801, hár-
greiðslustofa, s. 568-3139.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur kl. 10.30, leikfimi kl. 11.
Handverksstofa opin kl. 13, veitingar kl.
14.30, hárgreiðslustofa, s. 862-7097.
Norðurbrún 1 | Félagsvist alla miðviku-
daga í sumar kl. 14. Heitur matur í há-
degi alla daga, panta f. kl. 9.30 á morgn-
ana, s. 411-2760.
Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun kl. 9-12,
sund kl. 11, matur kl. 11.45, verslunarferð
í Bónus Holtag. kl. 12.15, kaffi kl. 14.30.
Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, hárgreiðslu- og fóta-
aðgerðarstofan opin, verslunarferð í
Bónus kl. 12.15, og dans kl. 14 við undir-
leik hljómssveitar. Uppl. í síma 411-9450.