Morgunblaðið - 01.07.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.07.2009, Qupperneq 36
36 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009 Þá var hálfur salurinn dofinn af sjóveikis- pillum og ég sjálfur með sæmilega velgju í maganum 37 » „ÉG þekki a.m.k. ekkert verk sem er lengra,“ segir Anna Guðný Guðmundsdóttir, um einleiks- verk Olivier Messiaen fyrir píanó, Tuttugu tillit til Jesúbarnsins, sem er eitthvað það lengsta sinnar tegundar sem samið hefur verið, í það minnsta á 20. öldinni. Verkið flutti hún í heild sinni á fimmtugsafmæli sínu þann 6. september í fyrra. Flutningur þess tekur um tvær klukku- stundir og 20 mínútur og nóturnar litlar 177 blað- síður. Ríkisútvarpið tók upp flutning Önnu á verkinu í fyrra og hún keypti þá upptöku og hef- ur nú gefið út á plötu sem hún ætlar að selja sjálf, a.m.k. til að byrja með. Anna tekur við pöntunum á agga@simnet.is eða á Fésbókinni. Anna heldur fyrstu sumartónleika sína á morgun í Stykkishólmskirkju og heldur þaðan til Akureyrar og Mývatnssveitar. „Því miður er nú rammi sumartónleika ekki þannig að maður geti spilað þetta allt en lengst verður það helmingur verksins, tíu kaflar af tuttugu,“ segir Anna. Lengstu tónleikarnir verði í Mývatnssveit og í Sigurjónssafni. helgisnaer@mbl.is Tónleikar og plata Anna Guðný Guðmundsdóttir gefur út flutning sinn á Tuttugu tillitum til Jesúbarnsins Jesúbarnið Ljósmynd af skúlptúr eftir Kristínu Gunn- laugsdóttur prýðir umslag plötu Önnu Guðnýjar. NÝR 80 metra skúlptúr er veg- ur 1,8 tonn og settur er saman af 26 málmþrí- hyrningum hef- ur verið settur upp á Tate Britain safninu í London. Verkið er eftir Evu Rothschild og heitir Cold Corners. Umsjón- armenn gallerísins lýsa verkinu sem „krassi úr geimnum“ en það verður til sýnis fram í lok nóv- ember. Stjórnandi safnsins segir verkið vera eins og eldingu er gangi í gegnum miðju safnsins en gestir verða að ganga í kringum skúlptúrinn er þeir stíga inn í safnið. Listamaðurinn, sem er 37 ára Íri, segist hafa viljað skapa eitt- hvað sem væri eins og út úr kú miðað við allt annað sem safnið hefði upp á að bjóða en hún er þekkt fyrir frumlega málm- skúlptúra. Þetta er þó hennar stærsta verk til þessa, að minnsta kosti hvað rúmmál varðar. Speisaður skúlptúr Nýr skúlptur í Tate Britain vekur athygli Cold Corners Í Tate Britain. TÍU umsóknir bárust mennta- málaráðuneytinu um stöðu þjóð- leikhússtjóra en ein umsókn var dregin til baka. Starfstímabil þjóðleikhússtjóra hefst 1. janúar 2010 og verður því ákveðið hver hlýtur starfið fyrir þann tíma en þjóðleikhússtjóri er ráðinn til fimm ára í senn. Umsagnir þjóðleikhúss- ráðs um umsækjendur munu liggja fyrir um miðjan ágúst og metið út frá þeim hvort kalla eigi umsækjendur í starfsviðtal eða ekki, skv. upplýs- ingum frá menntamálaráðuneytinu. Ráðherra ákveður hver hlýtur starf- ið. Umsækjendur um stöðuna eru: Ari Matthíasson leikari; Hilmar Jónsson leikstjóri; Hlín Agnarsdóttir, leik- stjóri og rithöfundur; Kolbrún Hall- dórsdóttir leikstjóri; Magnús Ragn- arsson framleiðandi; Páll Baldvin Baldvinsson, fulltrúi ritstjóra; Sig- urður Kaiser, framkvæmdastjóri og leikhúshönnuður; Tinna Gunnlaugs- dóttir þjóðleikhússtjóri og Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri. Tíu sóttu um starfið Tinna Gunnlaugsdóttir LJÓSMYNDABÓKIN Kjarni Íslands kom nýverið út hjá Sölku útgáfu. Bókin er eftir Kristján Inga Einarsson ljós- myndara en Ari Trausti Guð- mundsson rithöfundur og jarð- vísindamaður færir hughrif landslagsins í orð. Bókin er gef- in út í enskri, franskri og þýskri útgáfu en íslenska er alls staðar hliðarmál. Í tilefni útgáfunnar er boðið til hádegisgleði í Þvottalaugunum í Laugardal milli kl. 12 og 13 í dag. Þar verða þjóðlegar veitingar, skemmtilegt fólk og tónlistaratriði undir berum himni. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Bókmenntir Ari Trausti Guðmundsson Kjarni Íslands í Laugardal LISTVINAFÉLAG Hall- grímskirkju stendur fyrir þeirri nýjung í sumar að bjóða upp á stutta hádegistónleika í Hallgrímskirkju á miðviku- dögum kl. 12 í júlí og ágúst. Kammerkórinn Schola cantor- um kemur fram í hádeginu í dag og eru tónleikarnir m.a. hugsaðir til að bjóða íslenskum sem erlendum gestum að hlýða á perlur kórtónlistar eftir ís- lensk og erlend tónskáld í gæðaflutningi. Sumartónleikaröðin Alþjóðlegt orgelsumar er nú haldin í 17. sinn undir merkjum listvinafélags- ins, sjá listvinafelag.is. Tónlist Schola cantorum í hádeginu Hallgrímskirkja í viðgerð. LINDA Björg Árnadóttir, fata- og textílhönnuður, opnar á morgun sýningu í Gallerí Turpentine. Þar mun hún kynna nýja línu af heim- ilistextíl undir vörumerkinu SCINTILLA. Í línunni, sem inniheldur meðal annars rúm- föt, dúka, púða, teppi og hand- klæði og er lögð áhersla á gæði og framsækna grafík og leitast við að halda á lofti ferskleika og dramatík Vestfjarða. Þennan sama dag verður opnuð vefsíðan Scintillalimited.com. SCINTILLA verður markaðssett í Evrópu og Ameríku en var- an er framleidd í Portúgal. Hönnun Gæði og fram- sækin grafík Linda Björg Árnadóttir Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÞAÐ verða haldnir allsérstakir tón- leikar í Skálholti á laugardaginn kl. 15. Þá munu Kammerkórinn Carm- ina og barokksveitin Nordic Affect flytja lög úr íslenska nótnahandritinu Hymnodia sacra sem sr. Guðmundur Högnason, prestur í Vestmanna- eyjum, skrifaði árið 1742. Í handritinu er að finna yfir 100 lög sem flest hafa lengi legið í þagn- argildi, að sögn Árna Heimis Ingólfs- sonar tónlistarfræðings en hann hef- ur rannsakað handritið og unnið upp úr því tæplega 30 laga efnisskrá og sett í upprunalega útsetningu. En hvaða lög eru þetta? „Hann tekur hvergi fram í handrit- inu hvaðan lögin koma. Sum þeirra hefur mér tekist að rekja til Evrópu og finna fyrirmyndirnar. Þá getur maður fundið útsetninguna sem pass- ar, upprunalegu útsetninguna, og í þeim tilfellum notum við strengi, lútu og sembal o.fl. En stundum hefur ekki tekist að grafa upp neinar upp- lýsingar um uppruna laganna. Þá er spurningin hvort þetta eru þjóðlög, eitthvað sem Guðmundur skrifaði upp eftir öðrum eða samdi sjálfur, við vitum það ekki,“ segir Árni Heimir. Sum lögin hljómi eins og þjóðlög, með íslenskum, tregafullum blæ, en önnur hressileg og skemmtileg, e.k. barokk- dansar. „Svo er einn drykkjutví- söngur. Við reynum að nota þetta til að sýna þetta breiða litróf sem er í tónlistinni á þessum tíma,“ segir Árni Heimir og á þar við 18. öldina. Guðmundur hafi klárað handritið skömmu áður en hann tók við brauð- inu í Vestmannaeyjum og e.t.v. tekið það með sér til öryggis ef ske kynni að Eyjamenn ættu fá nótnahandrit. Kúltíveraður Mið-Evrópublær – Var þessi prestur mikill tónlist- armaður? „Hann var alhliða menning- armaður, hann var skáld, þýddi úr þýsku, orti á latínu og virðist hafa verið mikill kúltúrmaður. Maður sér það líka bara á nótnaskriftinni, Ís- lendingar voru misgóðir í að skrifa upp nótur og stundum virðist hafa skolast ansi mikið til í þeim stórræð- um öllum. En þarna sér maður, bara í rytma og tónhæð og öllu, að hann veit alveg hvað hann er að gera.“ Hymnodia sacra er latína og þýðir heilagur sálmasöngur en þrátt fyrir latneskt heitið eru lögin með íslensk- um texta. „Þetta var líklega til að gefa því einhvern lærðan, kúltíveraðan Mið-Evrópublæ,“ segir Árni Heimir um titilinn og hlær. Tæpur helmingur laganna á efnisskránni eru hugs- anlega íslensk þjóðlög, að sögn Árna Heimis, ýmist flutt einradda eða með einföldum lútuundirleik. Í kjölfar tónleikanna mun Kamm- erkórinn Carmina hljóðrita efnis- skrána til útgáfu. Árni Heimir heldur erindi um handritið og tónlistina í Skálholtsskóla kl. 14 á laugardaginn, klukkustund fyrir tónleikana. Að- gangur er ókeypis. Alhliða menningarmaður  Kammerkórinn Carmina og Nordic Affect flytja lög úr nótnahandritinu Hym- nodia sacra  Menningarmaðurinn sr. Guðmundur Högnason skrifaði það 1742 Kammerkórinn Carmina Skipaður gæðasöngvurum með mikla reynslu af alls konar kórsöng. Kammerkórinn Carmina var stofnaður 2004 með það að markmiði að flytja kórtónlist end- urreisnarinnar á Íslandi. Í janúar 2006 söng kórinn með breska kammerkórnum The Tallis Scholars undir stjórn Pet- ers Phillips á tónleikum í Lang- holtskirkju og árið 2007 söng hann í fyrsta sinn á Ís- landi sex radda sálu- messu Tomásar Luis de Victoria. Sama ár kom út hljómdiskurinn Melódía með lögum úr sam- nefndu söngvasafni frá 17. öld og hlaut hann Íslensku tónlistar- verðlaunin í flokki sígildrar tón- listar. Kórtónlist endurreisnar flutt á Íslandi Anna Guðný leikur valda kafla úr Tuttugu tillitum til Jesúbarnsins eft- ir Messiaen á fimm tónleikum í júlí og ágúst.  Fimmtudagur 2. júlí. Stykkishólmskirkja kl. 20.  Föstudagur 3. júlí. Ketilhúsið Akureyri, kl. 12.  Laugardagur 4. júlí. Reynihlíðarkirkja Mývatnssveit, kl. 21.  Þriðjudagur 14. júlí. Sigurjónssafn, kl. 20.30.  Sunnudagur 2. ágúst. Gljúfrasteinn, kl. 16. Valin tillit á fimm stöðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.