Morgunblaðið - 05.07.2009, Page 17
Morgunblaðið/Golli
sama tíma þyngdist róðurinn í Hol-
landi. Mátti öllum vera ljóst að eft-
irlitin í löndunum bæru saman bækur
sínar. Breska fjármálaeftirlitið sendi
fulltrúa sinn á fund FME í byrjun
ágúst, sem hafði starfað með Jóni
Sigurðssyni hjá Alþjóðabankanum,
og voru þeir á einu máli um mikilvægi
þess að breyta útibúinu í dótturfélag.
Fjármálaeftirlitið í Hollandi gerði
fyrstu alvarlegu athugasemdina 12.
ágúst um að lengja þyrfti binditíma
innstæðna í Icesave. Landsbankinn
brást við með því að bjóðast til þess
að hægja á ferðinni, hætta með há-
vaxtareikninga og „að leggja evru á
móti evru“. Icesave stóð þá í 1.150
milljónum evra og bauðst Lands-
bankinn til að leggja inn í Seðlabanka
Íslands allt sem kæmi inn umfram
það.
Þetta gekk ekki eftir, nýrri þjón-
ustu var ekki hleypt af stokkunum
um mánaðamótin ágúst/september,
eins og ráðlagt hafði verið, og Lands-
bankinn hætti að auglýsa í Hollandi.
Fyrir vikið fór ný og kostnaðarsöm
auglýsing fyrir Icesave aldrei í loftið,
sem sýna átti fyrst í Hollandi og síðan
í öðrum löndum þar sem Icesave var
á boðstólum. Auglýsingin var tekin
upp í íslenskri náttúru og snerist um
það hversu gagnsætt hugtak Icesave
væri; aðalpersónan rakst sífellt á
veggi í glerhöll, enda sást í gegnum
allt, og í lokin spurði hún einfaldrar
spurningar – hvar klósettið væri.
„Röggsamur og ágætur“
Hugur íslenskra stjórnvalda stóð
til þess að koma Icesave í skjól dótt-
urfélags í Bretlandi og til marks um
það sótti Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra fund með Alistair
Darling, fjármálaráðherra Bretlands,
í London 2. september, þar sem í
fylgdarliði Björgvins var formaður
stjórnar FME, ráðuneytisstjóri við-
skiptaráðuneytisins og ráðuneyt-
isstjóri fjármálaráðuneytisins, sem
kippt hafði verið með á síðustu
stundu, þar sem fundað væri með
breska fjármálaráðherranum.
Fundurinn var örstuttur, Baldur
Guðlaugsson og Jón Sigurðsson töl-
uðu máli hópsins, og Darling virkaði
að sögn ágætlega vel á íslensku við-
semjendurna – „röggsamur og ágæt-
ur“. Lögð var áhersla á það hjá Ís-
lendingum að lækka þröskuldinn,
þannig að fjármagnsflutningar færu
fram í tveimur skrefum en ekki einu.
Svo gerist það tæpum tveim vikum
seinna að Lehman fellur og þá ganga
Evrópuríkin af göflunum, ekki síst
viðsemjendur Íslendinga, enda log-
uðu bankakerfin stafnanna á milli í
öllum þessum ríkjum.
Í bréfi sem sent var úr við-
skiptaráðuneytinu 20. ágúst í breska
fjármálaráðuneytið segir orðrétt í ís-
lenskri þýðingu: „Ef svo ólíklega
færi, að okkar mati, að stjórn Trygg-
ingarsjóðs innstæðueigenda og fjár-
festa tækist ekki að afla nægilegs fjár
á fjármálamörkuðum viljum við full-
vissa yður um að íslenska rík-
isstjórnin mun gera allt sem ábyrgar
ríkisstjórnir myndu gera í slíkri
stöðu, þar á meðal að aðstoða sjóðinn
við að afla nauðsynlegs fjár til að
hann geti uppfyllt kröfur um lág-
markstryggingu.“ Afstaðan var svo
ítrekuð í bréfi 5. október.
Bréfið var samið af ráðuneyt-
isstjóra og fjórum ráðherrum, Geir
H. Haarde, Árna Mathiesen, Björg-
vin G. Sigurðssyni og Össuri Skarp-
héðinssyni. Allir lágu þeir yfir bréfinu
og orðalagi þess. Í fyrri drögum hafði
‘‘„VIÐ VILDUM AÐ ÞETTAYRÐI DIPLÓMATÍSKTMÁL, EKKI INNHEIMTU-MÁL FJÁRMÁLARÁÐU-
NEYTANNA.“
AGS Skuldaþolið á að duga.
kil sorgarsaga“
2023202220212020201920182017201620152014
Áætlaðar árlegar endurgreiðslur til Breta og Hollendinga. Upphæð fer eftir endurheimtum á lánasafni Icesave.
Miðað við
60%
endurheimtur
á lánasafni
Miðað við
75%
endurheimtur
á lánasafni
Miðað við
83%
endurheimtur
á lánasafni
Miðað við
95%
endurheimtur
á lánasafni
53.399
Ma. ISK 51.347
Ma. ISK 49.295
Ma. ISK 47.242
Ma. ISK 45.190
Ma. ISK 43.137
Ma. ISK 41.085
Ma. ISK 39.033
Ma. ISK
Samtals:
369.728,1
milljarður króna
Samtals:
480.052,9
milljarðar króna
Samtals:
553.602,8
milljarðar króna
Samtals:
691.508,7
milljarðar króna
69.334
Ma. ISK 66.669
Ma. ISK 64.004
Ma. ISK 61.339
Ma. ISK 58.674
Ma. ISK 56.009
Ma. ISK 53.345
Ma. ISK 50.680
Ma. ISK
79.956
Ma. ISK 76.883
Ma. ISK 73.810
Ma. ISK 70.737
Ma. ISK 67.664
Ma. ISK 64.591
Ma. ISK 61.518
Ma. ISK 58.444
Ma. ISK
99.874
Ma. ISK
96.035
Ma. ISK
92.197
Ma. ISK
88.358
Ma. ISK
84.519
Ma. ISK
80.681
Ma. ISK
76.842
Ma. ISK
73.003
Ma. ISK
Hvað er hægt
að gera fyrir...
691.508.700.000 kr.
• Það væri hægt greiða
öll útgjöld ríkissjóðs
í meðalári og splæsa
tónlistarhúsi á þjóðina í
ofanálag.
553.602.800.000 kr.
• Þaðværi hægt að sleppa
því að senda reikning
fyrir útfluttumsjávar-
afurðumtil Bretlands
næstu 13árin eða
Hollandsnæstu50árin.
480.052.900.000 kr.
• Það væri hægt að
standa straum af
fjárframlögum hins
opinbera til leikskóla
næstu 48 árin.
396.728.100.000 kr.
• Það væri hægt að reka
allt heilbrigðiskerfið
næstu þrjú árin.
48ár
3ár
13/50ár
1ár+
Endurgreiðsla hefst á Icesave-
skuldbindingum ríkissjóðs.
Lauslegir útreikningar, byggðir á forsendum úr gögnum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram.
17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009