Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
enta, 1965-1967, formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna 1973-1977, í
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1969-
1977 og 1981-1999. Hann var varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins 1981-1989
og 1991-1999. Hann starfaði lengi í
skátahreyfingunni og er félagi í Knatt-
spyrnufélaginu Val.
Eiginkona hans er Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir sendiherra og eiga
þau saman dótturina Sigríði Fransisku.
Hann á þrjár dætur með fyrri konu sinni,
Áslaugu Maríu (f. 1969), Gabríelu Krist-
ínu (f. 1971) og Helgu Guðrúnu (f. 1981),
og eignaðist tvo syni áður, Stefán Bald-
vin (f. 1963) og Halldór (f. 1967). Þá á
hann tvo stjúpsyni, Jóakim H. Reynisson
(f. 1961), sonur Helgu Jóakimsdóttur, og
Ragnar Hjálmarsson (f. 1978), sonur
Sigríðar Dúnu. Samtals eru barnabörnin
15 og barnabarnabörnin tvö.
Friðrik: „Á sömu stundu og Áslaug
kom í heiminn fyrir tæplega 40 árum
stigu Bandaríkjamenn fyrstir manna
fæti á tunglið og því var hún kölluð
Luna á fæðingarheimilinu. Frá fyrsta
degi var hún mjög róleg og yfirveguð
og virtist búa yfir miklu jafnaðargeði.
Þannig er hún enn og það einkennir
hana að hún sýnir ætíð mikla þol-
inmæði.
Hún og Gabríela, systir hennar,
hafa alltaf verið mjög samrýndar
enda aðeins tvö ár á milli þeirra. Þeg-
ar Áslaug lærði að lesa las hún strax
mjög mikið. Einhverju sinni fengu
þær veggkort af fuglum Íslands og
þá orti Áslaug vísu en Gabríela sagði
mér einhvern tíma að í æsku hefði
hún öfundað Áslaugu af því að vera
skáld. En vísan er svona:
Heill og sæll, lóuþræll.
Þú ert líkur spóa.
Ég veit að þú ert vaðfugl hér
í ísköldum flóa.
Þegar Gabríela lærði svo að lesa sá
hún að vísan var samin úr upplýs-
ingum á kortinu.
Systurnar voru oft í Hnífsdal á
sumrin hjá skyldfólki sínu í móð-
urætt og á unglingsárunum unnu
þær þar í fiski. Þessi vinna mótaði
unglingsárin. Áslaug var líka í sveit í
Steingrímsfirði og þar var harla lítið
um aðrar skepnur en kindur. Þess
vegna hafði hún með sér naggrís,
sem hún átti, og búr og þótti sveita-
fólkinu það undarlegt, en hún færði
búrið reglulega á hlaðinu svo hann
fengi örugglega nóg gras að éta. Dýr-
in hafa fylgt henni síðan og hún er til
dæmis með villikött, sem hún tók að
sér, þegar hún bjó við Ingólfsstræti.
Hann týndist en kom síðar í leitirnar
og unir sér vel hjá henni á Skóla-
vörðustígnum enda hefur hún alltaf
haft gaman af dýrum. Áslaug er líka
mjög vinaföst. Hún hefur til dæmis
alltaf haldið tengslum við vinahópinn
frá því við bjuggum á Öldugötunni og
á trausta vini sem hún kynntist þegar
við bjuggum í Smáíbúðahverfinu.“
Staðfesta
„Áslaug vill ná sínu fram en gerir
það ekki með neinum látum og
snemma sýndi hún mikla staðfestu í
ákvörðunum sínum. Þegar hún var
átta eða níu ára sagðist hún hafa
ákveðið að læra á píanó. Nokkrum
árum áður hafði eldri bróðir hennar,
Jóakim, byrjað að læra á hljóðfæri og
mér féll það vel að hann lærði á
munnhörpu enda er hún miklu um-
fangsminna hljóðfæri en píanó. En
það var ekki nokkur leið að hreyfa við
Áslaugu. Munnharpa kom ekki til
greina og þaðan af síður blokkflauta.
Hún hafði talað við píanókennarann
áður en hún ræddi málið við foreldr-
ana og sagðist ætla að læra á píanó.
Fyrir vikið urðum við að kaupa píanó
og hún hélt áfram píanónámi í mörg
ár.
Áslaug er afskaplega róleg. Hún á
sérstaklega auðvelt með að sinna
mörgum viðfangsefnum í einu, hafa
mörg járn í eldinum, og ekki hvað síst
felst styrkur hennar í því. Þegar
vinna þarf fyrir marga er það kostur
að geta skipt úr einu verkefni í annað
eins og ekkert sé og það vefst ekki
fyrir Áslaugu.
Það virðist ekki hafa mikil áhrif á
Áslaugu þótt ekki sé allt í röð og
reglu í kringum hana. Hún er ákaf-
lega skilningsrík og á auðvelt með að
setja sig í spor annarra. Hún sýnir
frumkvæði, kjark og áræði sem sést
best á því að með vinkonum sínum
stofnaði hún fyrirtæki í einkageir-
anum. Það eru ekki mjög margar
konur sem gera það og síst háskóla-
konur, því það virðist oft vera þannig
að þeim mun lengur sem fólk er í
skóla því meiri líkur eru á því að
vinnuvettvangurinn sé hjá hinu op-
inbera. Mér finnst það sérstaklega
aðdáunarvert þegar konur ákveða
með þessum hætti að standa á eigin
fótum. Ég held að einkarekstur eigi
vel við hana enda er hún sérlega dug-
leg og með báða fætur á jörðinni.
Við höfum verið svolítið saman í
veiðiskap og hún hefur gaman af því.
Guðrún Kristmundsdóttir, mágkona
mín, tók hana í tíma og mér sýnist Ás-
laug vera lagin laxveiðikona. Henni
finnst líka gaman að ferðast og hún
gengur á Esjuna af og til til þess að
halda sér í formi og til þess að slaka á.
Hún er því ekki keppnismanneskja í
þeim skilningi að hún geri hlutina
með miklum látum, en hún heldur
þétt á sínu, er staðföst og gefur ekk-
ert eftir þegar því er að skipta. Hafi
Áslaug fengið eitthvað í arf frá mér er
það líklega gráglettni og stríðni, sem
berst með húnvetnskum genum og
fellur fólki misvel í geð.“
Sköpunargáfa og stjórnmál
„Þegar Áslaug og Gabríela voru
litlar voru þær oft með brúðuleikhús,
bæði fyrir fjölskylduna og nágrann-
ana. Þær voru báðar gæddar ágætri
sköpunargáfu til þess að búa til leikrit
og sýna með tilheyrandi tilburðum.
Gabríela var uppátækjasamari og ég
man sérstaklega eftir því þegar hún
og Höskuldur Kári Schram, vinur
þeirra, máluðu háaloftið á Öldugöt-
unni með grænni málningu og sykri
og mjólk í bland. Það málverk er ekki
það vinsælasta sem ég hef átt við um
ævina enda var það meira en að
segja það að ná þessari kornóttu
málningu af timbrinu. Hlutverk Ás-
laugar var að stilla til friðar, þegar
ég lét í ljós skoðun mína á þessari
ótímabæru „innsetningu“ listamann-
anna.
Stjórnmálaþátttaka Áslaugar er
hvorki mér að kenna né þakka. Ég
hef aldrei troðið stjórnmálaskoð-
unum ofan í krakkana mína en það
hefur glatt mitt hjarta þegar ég hef
séð þá flesta hafa trú á grundvall-
arstefnu Sjálfstæðisflokksins. Þegar
Áslaug var orðin fullorðin tók hún
upp á því að fara að skipta sér af
stjórnmálum og gerði það alveg án
þess að ég hefði milligöngu þar um.
Ég held að hún eigi fullt erindi á
þessum vettvangi. Áhuginn er mikill
og mér sýnist árangur hennar vera
ágætur á þessu sviði sem öðrum.
Áslaug er formaður Hvatar, félags
sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Í því
sambandi langar mig til að rifja upp
að eitt sinn þegar hún var lítil kom
hún heim eftir að hafa verið hjá
ömmu sinnu og alnöfnu. Meðferðis
hafði hún forláta stein. Þegar hún
var spurð hvar hún hefði fengið
steininn, svaraði hún því til að María
mey hefði gefið sér hann. Við ef-
uðumst um að svo gæti verið, en hún
staðhæfði aftur og aftur að hún hefði
hitt Maríu mey á spítalanum og hún
hefði gefið sér steininn. Þegar ég
spurði ömmuna nánar út í þetta kom
í ljós að þær höfðu heimsótt Maríu
Maack á sjúkrahús og hún hafði gefið
stelpunni steininn. María var lands-
þekkt kona og sá um rekstur farsótt-
arhússins. Hún var innsti koppur hjá
„íhaldinu“ og formaður Hvatar í
mörg ár. Mér finnst ekkert skrýtið
að barnið skyldi rugla þeim saman
Maríu mey og Maríu Maack, en ég
velti því stundum fyrir mér í ljósi
þess að Áslaug er núverandi formað-
ur Hvatar, hvort María hafi séð það
fyrir, þegar hún gaf þeirri litlu stein-
inn.“
Gráglettin og stríðin
Taktu flugið!
A-hluti samkeppninnar er ætlaður fagfólki og öðrum sem uppfylla
tiltekin skilyrði og er í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
B-hluti samkeppninnar er ætlaður almenningi án nokkurra skilyrða
um efni, form eða framsetningu hugmynda.
Farið nú á flug og skilið okkur hugmyndum í skrifuðum texta, með
teikningu, ljósmynd eða jafnvel í ljóði ef svo ber undir! Aðalatriðið
er að láta hugann reika þannig að Gamla höfnin fái að njóta þess.
Heildarverðlaun verða fjórtán milljónir króna, þar af tvær milljónir
króna fyrir hugmyndir almennings í B-hluta samkeppninnar.
Samkeppnislýsingu má nálgast á faxafloahafnir.is og á ai.is.
Frestur til að skila tillögum rennur út 6. október 2009.
Dómnefnd birtir niðurstöður sínar í lok nóvember 2009.
Stjórn Faxaflóahafna sf. kallar eftir hugmyndum
frá almenningi til að leggja í púkk í samkeppni
sem stendur yfir um heildarskipulag Gömlu
hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík.
Hugmyndaflug
yfir Gömlu
höfnina
A
T
H
Y
G
L
I