Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 38
38 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
Ertu að taka þátt
í ljósmyndakeppni
mbl.is & canon?
Prentaðu myndina þína
á striga fyrir aðeins
4.950 kr.
með heimsendingargjaldi.
ÞAÐ er miður að sjá
skrif borgarfulltrúans
Þorleifs Gunnlaugs-
sonar í sunnudagsblaði
Morgunblaðsins 28.
júní sl., þar sem hann
gerir lítið úr jákvæðum
skrifum mínum um
Strætó. Kjörnir
fulltrúar mega til með
að tala vel um okkar
ágæta strætókerfi,
með því móti fáum við fleiri til að
prófa og vonandi til þess að finna sína
leið í kerfinu og nota það.
Strætó bs hefur glímt við erfiðan
rekstur undanfarin ár og hefur fyr-
irtækið farið langt fram úr áætlunum
sem gerðar hafa verið án þess í raun
að stjórnendur fyrirtækisins hafi
haft nokkuð um það að segja. Ein-
hliða ákvarðanir hafa verið teknar
um breytingar sem fólu í sér kostnað
sem ekki var bætt inn í reksturinn. Á
þeim góðæristímum sem við höfum
lifað undanfarin ár náðist ekki að
bæta svo fjárframlög sveitarfélag-
anna að fyrirtækið gæti aukið og
bætt þjónustuna. Að ná nú að endur-
fjármagna fyrirtækið með þeim
hætti sem lagt hefur verið upp með
er sigur á þessum viðsjárverðu tím-
um. Það tryggir að ekki þurfi að
skerða þjónustuna og gefur okkur
vonir um að við getum bætt þjón-
ustuna inn í framtíðina.
Farið var í byltingu leiðakerfisins
2005 með miklum kostnaði og fækk-
un farþega. Þá var fótunum kippt
undan notendum strætó í einu vet-
fangi og einstaklingar sem jafnvel
höfðu keypt sér íbúð m.t.t. þess hvar
næsta stoppistöð var, stóðu uppi
fjarri næstu stoppistöð og gátu eng-
an veginn nýtt sér kerf-
ið. Í kjölfar þessara
breytinga fækkaði far-
þegum mikið með til-
heyrandi tekjuskerð-
ingu fyrirtækisins.
Smartkortakerfið er
annað dæmi um einhliða
ákvörðun kjörinna full-
trúa sem ekki fylgdi
framlag og kostaði fyr-
irtækið mörg hundruð
milljónir. Breyting-
arnar 2005 voru þó ekki
allar neikvæðar og far-
þegum er að fjölga aftur í strætó.
Stærsta og besta breytingin var sú
að tengja saman leiðakerfi alls höf-
uðborgarsvæðisins og setja inn svo-
kallaðar stofnleiðir.
Í dag erum við að hugsa til fram-
tíðar, við erum með gott leiðakerfi
sem auðvitað má þó bæta og að því
verður unnið áfram. Við leggjum
metnað okkar í að bæta þjónustuna
með ýmsum aðferðum og viljum
mæta þörfum notendanna eins og
frekast er kostur.
Þorleifur Gunnlaugsson borg-
arfulltrúi óskar eftir rökstuðningi
varðandi þá fullyrðingu mína að
Strætó standist samanburð við þau
lönd sem við berum okkur saman við.
Um það vil ég segja að gerður var
samanburður á þjónustu Strætó bs
við sambærileg bæjarfélög í Dan-
mörku fyrir u.þ.b. ári síðan og var
Strætó bs síst með lakari þjónustu.
Samanburðurinn var unninn af Ein-
ari Kristjánssyni, sviðsstjóra þjón-
ustusviðs Strætó bs, sem hefur yfir
10 ára reynslu af strætórekstri og
hönnun leiðakerfa í Danmörku.
Grein eftir hann þar sem hann rekur
þetta var birt í 24 stundum fyrir
u.þ.b. einu ári. Þess má geta að Þor-
leifur Gunnlaugsson hefur ekki haft
fyrir því að kynna sér þennan sam-
anburð, né kynna sér starfsemi fyr-
irtækisins yfirleitt og er það miður.
Varðandi það að sumarið sé tíminn
til að prófa að taka strætó, vil ég
ítreka þá skoðun mína að ég tel það
vera afar heppilegan tíma til að
prófa, burtséð frá því að þjónustan sé
skert yfir hásumarið. Að mínu mati
er gott að vera ekki mjög tímabund-
inn þegar maður er að prófa sig
áfram við að nota þjónustuna. Þegar
maður er í fyrsta skipti að bíða á
stoppistöð er betra að veður sé gott
og fleiri ástæður mætti nefna. Þjón-
usta strætó er vissulega skert yfir
sumartímann, enda minnkar notkun
strætó á þeim tíma um 55%.
Varðandi kosti og galla þess að
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
reki saman byggðasamlag eins og
Strætó bs þá er það mál til skoðunar
á vegum SSH og verður fenginn ut-
anaðkomandi aðili til þess að fara yfir
stofnsamþykktir samlagsins og meta
hvort skiptingin sé með eðlilegum
hætti og hvort vægi hvers sveitarfé-
lags í stjórn samlagsins sé eðlilegt.
Vel kann að vera að út úr þeirri skoð-
un komi sú niðurstaða að skyn-
samlegast sé fyrir sveitarfélögin að
reka hvert um sig sitt strætókerfi, en
það er afar mikilvægt fyrir strætó-
samgöngur á höfuðborgarsvæðinu og
jafnvel suðvesturhorninu öllu að
leiðakerfið sé samræmt, gefin út ein
leiðabók, nýjar leiðir séu samræmd-
ar þeim sem fyrir eru og hver leið
nýtt sem best innan alls kerfisins og
geti ekið milli sveitarfélaga þegar svo
ber undir með kostnaðarþátttöku
þeirra sveitarfélaga sem leiðarinnar
njóta.
Varðandi eignaskiptingu innan
byggðasamlagsins er rétt að leiðrétta
það sem fram kemur í máli Þorleifs
Gunnlaugssonar. Reykjavík á aðeins
um 59% hlut í félaginu á móti hinum
sveitarfélögunum en ber hinsvegar
ríflega 60% kostnaðarins vegna þess
að þjónustustigið er hærra í Reykja-
vík en í öðrum sveitarfélögum. Mik-
ilvægt er að það komi fram að hvert
og eitt sveitarfélag getur aukið þjón-
ustu sína án þess að leita samþykkis
hinna, enda greiði það fyrir þjón-
ustuna að fullu. Þannig getur, og hef-
ur, Reykjavíkurborg verið að veita
meiri þjónustu, sem skýrir það að
borgin greiðir meiri kostnað en sem
nemur skiptingu eignarhalds.
Eftir Jórunni
Frímannsdóttur
Jórunn Frímannsdóttir
» Gerður var sam-
anburður á þjónustu
Strætó bs við sambæri-
leg bæjarfélög í Dan-
mörku fyrir u.þ.b. ári
síðan og var Strætó bs
síst með lakari
þjónustu.
Höfundur er borgarfulltrúi og
stjórnarformaður Strætó bs.
Horfum til framtíðar –
Þorleifi Gunnlaugssyni svarað
SAGT hefur verið að af litlum
neista verði oft mikið bál. Það á
sannarlega við um íslenska tónlist-
arsköpun. Nú fremur en nokkurn
tíma fyrr þurfum við á listamönn-
um okkar að halda til að skapa já-
kvæða ásýnd. Tónlistin er al-
þjóðleg og það tjáningarform sem
alltaf hefur getað brúað ólíka
menningarheima og tengt fólk til-
finningaböndum.
Ímynd íslenskrar tónlistar, jafnt
innanlands sem utan, er sterk
þrátt fyrir undangengnar efna-
hagslegar hremmingar. Í sívax-
andi umræðu um erlenda sam-
vinnu, bæði á norræna og evrópska
vísu, skiptir sköpum að halda sér-
stöðu okkar. Hið séríslenska um-
hverfi hefur tvímælalaust blásið
hérlendum tónlistarmönnum anda
í brjóst og erlendis er rætt um ein-
stakan sköpunarkraft sem ein-
kennir íslenska tónlist.
Íslenskt tónlistarsumar er liður
í að hvetja íslenskt tónlistarfólk til
dáða á öllum vígstöðvum.
Sýnum stuðning okkar í verki.
Kaupum, spilum og njótum ís-
lenskrar tónlistar.
Njótum íslensks tónlistarsum-
ars.
Gunnar Guðmundsson
Í tilefni íslensks
tónlistarsumars
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtóns, samstarfsvettvangs
tónlistarrétthafa.
Upplýsingaflæði
stjórnvalda til
þjóðar og erlendra
aðila þarf að breyt-
ast. Stjórnvöld og
fyrirtæki þurfa að
nýta sér almanna-
tengslin og koma
upplýsingum sín-
um á framfæri og
eyða óvissu.
Almannatengsl
eru mikilvæg og ekki síst á erfiðum
tímum. Í eigindlegri rannsókn sem
framkvæmd var í byrjun þessa árs
var mikilvægi almannatengsla kann-
að með hliðsjón af bankahruninu
haustið 2008 og þeirri atburðarás
sem fylgdi í kjölfarið.
Talað var við stjórnmálamenn, þar
af fyrrverandi ráðherra, almanna-
tengla og stjórnendur og almanna-
tengla hjá stórum fyrirtækjum í
landinu.
Stjórnmálamenn voru sammála
um að stjórnvöld þyrftu að nýta al-
mannatengslin betur, veita meiri
upplýsingar, fara í upplýsinga-
herferðir og tala opinskátt. Tala rétt
um hlutina og segja þjóðinni satt frá.
Sem dæmi hefði mátt veita erlendu
fjölmiðlafólki, sem kom til Íslands í
kjölfar bankahrunsins, betri upplýs-
ingar. Þannig hefði verið hægt að
tempra skaðann sem ímynd Íslands
varð fyrir, þar sem oft var farið tölu-
vert frjálslega með staðreyndir í er-
lendum fjölmiðlum.
Margir töldu að upplýsingaskortur
hefði verið drifkrafturinn í bús-
áhaldabyltingunni sem virðist ekki
enn vera afstaðin. Mótmælin standa
enn.
Fyrirtæki sem voru með almanna-
tengil sögðu að skuldbinding og skiln-
ingur stjórnenda yrði að koma til svo
almannatengsl næðu að festa rætur í
fyrirtækjum og virka sem skyldi.
Í rannsókninni kemur fram að
hlutverk almannatengla er að þjón-
usta fréttamenn, innri samskipti
fyrirtækja, málefnastjórnun, krísu-
stjórnun, viðburðastjórnun, stjórnun
útgáfu, samskipti við fjölmiðlafólk og
þar með almenning um réttar upplýs-
ingar og staðreyndir og að viðhalda
ímynd fyrirtækis eða þjóðar.
Við þurfum að læra af mistökun-
um, lagfæra rangfærslur um land og
þjóð og markaðssetja þjóðina okkar,
því hún er einstök og hér er fullt af
tækifærum.
Áfram Ísland.
HULDA BIRNA
BALDURSDÓTTIR,
nýútskrifuð með
MS próf í stjórnun frá Bifröst.
Í gegnum brimskaflinn
Frá Huldu Birnu Baldursdóttur
Hulda Birna
Baldursdóttir
BRÉF TIL BLAÐSINS
Góð þátttaka í sumarbrids
Góð mæting hefur einkennt sum-
arbrids í sumar. Undanfarin kvöld
hafa að meðaltali 26 pör mætt til
spilamennsku á hverju kvöldi.
Efstu pör 29. júní
Gróa Guðnad. - Unnar A. Guðmss. 47
Sverrir Þóriss. - Guðlaugur Bessason 43
Guðm. P. Arnarson - Ásmundur Pálss. 37
Eðvarð Hallgrímss. - Þorsteinn Berg 37
Miðvikud. 1. júlí urðu úrslit þessi:
Guðlaugur Sveinss. - Magnús Sverriss. 67
Hulda Hjálmarsd. - Halldór Þorvaldsson 66
Guðm. Skúlason - Haradur Ingason 57
Efstu menn í bronsstigum :
Halldór Þorvaldsson 165
Unnar Atli Guðmundsson 127
Magnús Sverrisson 97
Hulda Hjálmarsdóttir 75
Haraldur Ingason 73
Bergur Reynisson 67
Björn Árnason 67
Sumarbrids er spilað mánudags-
og miðvikudagskvöld í húsnæði BSÍ
að Síðumúla 37. Spilamennska byrjar
kl. 19 hvert kvöld og eru allir spilarar
velkomnir, jafnt vanir sem óvanir.
Keppnisstjórar eru Sveinn Rúnar
og Björgvin Már og hjálpa þeir til við
myndun para eins og tök eru á, ef
spilarar mæta stakir.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 29. júní.
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor
216 stig. Árangur N-S
Auðunn Guðmss. - Björn Árnason 249
Júlíus Guðmss. - Rafn Kristjánsson 245
Ægir Ferdinandss. - Þröstur Sveinss. 235
Árangur A-V
Ragnar Björnss. - Guðjón Kristjánss. 289
Stefán Ólafsson - Óli Gíslason 253
Jóhann Benediktss. - Pétur Antonss. 243
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is