Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 40
40 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞURÍÐUR HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Ytri-Tjörnum,
Eyjafjarðarsveit,
lést á Kristnesspítala fimmtudaginn 2. júlí.
Kristján Baldursson, Þórey Eyþórsdóttir,
Benjamín Baldursson, Hulda M. Jónsdóttir,
Guðrún Baldursdóttir, Ingvar Þóroddsson,
Snorri Baldursson,
Fanney Baldursdóttir, Björn Rögnvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Legg ég nú bæði líf
og önd,
ljúfi Jesús, í þína
hönd,
síðast þegar ég
sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku besta amma mín, sökn-
uðurinn er mikill að missa svona
góða ömmu eins og þú varst mér.
Vil ég þakka þér fyrir þá góðu tíma
sem við áttum saman. Efst í huga
mínum er þegar ég var að læra
hárgreiðslu, þá komstu alltaf einu
sinni í viku ef ekki tvisvar niður í
skóla til að leyfa mér að æfa mig á
þér. Alltaf komstu, sama hvernig
viðraði, það var alltaf hægt að
treysta á þig, elsku amma, þú varst
alltaf komin fyrr en þú áttir að
koma því að þú vildir að allir
mættu á réttum tíma. Betri ömmu
er ekki hægt að hugsa sér.
Ég mun sakna þín mikið.
Hvíli í friði.
Kristín Sif.
Elsku amma mín, núna ertu far-
in. Eftir þessa erfiðu baráttu ertu
komin aftur til afa. Þú ert nú á
betri stað, ég veit það vel, en samt
er það svo sárt að þú sért farin. Ég
trúi ekki að þú sért farin frá okkur
að eilífu.
Ég elska þig, amma mín, og
sakna þín.
Hvíldu í friði.
Kveðja,
Ragna Klara
Björnsdóttir
✝ Ragna KlaraBjörnsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 31. maí
1924. Hún andaðist á
Vífilsstöðum 19. júní
sl. og var jarðsungin
frá Fríkirkjunni í
Reykjavík 30. júní.
Guðrún María.
Elsku amma mín.
Nú ertu búin að fá
hvíldina góðu og hitta
afa og mína yndislegu
mömmu. Þú varst
kjarnakona, svo
sterk, dugleg, ákveð-
in og sjálfstæð enda
valdir þú 19. júní,
kvenréttindadaginn,
til þess að kveðja.
Það var alltaf svo
gott að leita ráða hjá
þér því þú sagðir alltaf það sem
þér fannst og varst hrein og bein,
maður gat alltaf treyst því sem þú
sagðir.
Margar af mínum bestu æsku-
minningum eru um þig og afa, þar
sem ég varði öllum mínum fríum
og eru það mér algjörlega ógleym-
anlegir tímar. Mér fannst svo gam-
an að vera hjá ykkur, þar var mað-
ur svo velkominn og ég gleymi
aldrei þegar afi bjó til búð fyrir
mig í geymslunni og þú passaðir
alltaf að allt væri til og helst
þrennt af öllu, svo komuð þið til
mín að versla; takk fyrir þetta
amma mín, þetta var yndislegur
tími. Það var alltaf gestkvæmt hjá
ykkur afa á sunnudögum, þá varst
þú með kaffi og kökur, þar sem all-
ir voru velkomnir og var þá oft
mikil gleði þegar börnin ykkar
fjögur og öll barnabörnin voru
samankomin.
Það var þér erfiður tími fyrir
fimm árum þegar þú misstir
mömmu mína en þú varst svo dug-
leg amma mín, stóðst við hliðina á
henni eins og klettur og ég veit
hvað þetta var þér erfiður tími,
þetta lýsir þér svo vel, svo traust
og trú og stóðst við bakið á þeim
sem þú elskaðir, þannig þekkti ég
þig. Þú mættir alltaf til Bjargar á
hverjum virkum morgni klukkan
níu að hjálpa henni að passa, það
bjargaði lífi þínu, það sagðir þú
mér, að vakna og gera eitthvað og
veit ég að það var bæði henni og
þér mikils virði.
Þú komst alltaf í lagningu einu
sinni í viku og lit á fjögurra vikna
fresti, þetta merktir þú inn á daga-
talið þitt og varst alltaf með það á
hreinu. Það var yndislegt að fá þig.
Við drukkum kaffi og ræddum mál-
in um allt á milli himins og jarðar.
Þú varst alltaf svo fín og vel til
höfð og það var yndislegt að hitta
þig og er ég þakklát fyrir þann
tíma sem við fengum saman.
Nú er ég búin að missa tvær
kjarnorkukonur úr lífi mínu sem
hafa leiðbeint mér í gegnum lífið
og hefði ég ekki getað orðið heppn-
ari með fyrirmyndir.
Elsku amma, takk fyrir öll árin
fjörutíu og þrjú sem ég átti þig að
og allar okkar yndislegu stundir
sem ég geymi nú í hjarta mínu og
eru þær margar og fallegar. Allir
sem þig þekktu vita hvað þú pass-
aðir vel upp á að öllum liði vel og
að allir fengju heimsóknir, bæði
ættingjar og vinir. Það var þér
mikið kappsmál að hugsa vel um
leiðin hjá þínum nánustu og það
kenndir þú okkur, og gerðir með
mikilli prýði, kenndir okkur hvern-
ig ætti að setja niður blómin svo
leiðin yrðu sem fallegust, þetta
skipti þig svo miklu máli. Þú varst
svo falleg kona bæði að utan og
innan, amma mín.
Ég elska þig og á eftir að sakna
þín mikið. Ég bið að heilsa engl-
unum okkar á fallega staðnum.
Elsku Sæja, Kalli, Björg og
Halldór, guð gefi ykkur styrk í dag
og faðmi ykkur í sorginni.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hvíldu í friði, elsku amma mín.
Þín dótturdóttir,
Sigrún Ragna Skúladóttir.
Elsku amma. Nú ert þú horfin á
braut og laus við þau erfiðu veik-
indi sem þú hefur verið að kljást
við undanfarna mánuði.
Þegar við hugsum til baka minn-
umst við þín sem unglegrar,
huggulegrar, drífandi, duglegrar
og hreinskilinnar konu. Ávallt var
gaman að hitta þig og sterkar
minningar eigum við um þig frá því
á Nýbýlaveginum þegar mamma
gekk með okkur frá Breiðholtinu
með tvíburana í vagninum og stelp-
urnar þrjár í eftirdragi. Þar um-
turnuðum við búrinu því það var
búðin okkar og við afgreiddum
hvort annað með þeim matvælum
sem þú áttir til, endalaus var þol-
inmæði þín til þessara verka okkar.
Veitingarnar voru ekki af skornum
skammti þegar fólk sótti þig heim,
enda margar leyniuppskriftir til í
fjölskyldunni. Alla tíð varstu
heilsuhraust og sjálfbjarga kona,
fórst í leikhúsið, ferðaðist til út-
landa, ræktaðir samband við vin-
konur þínar, bræður þína, börnin
þín og barnabörn. Ásamt því að
hugsa vel um þá sem í kringum þig
voru, gleymdir þú aldrei þeim sem
kvöddu þennan heim og sást til
þess að hugsað var vel um leiði
þeirra í krikjugörðunum. Ekki má
gleyma því að þú varst dóttur
þinni, Þorbjörgu, mikil aðstoð í
dagmæðrahlutverkinu alveg fram
að veikindum þínum. Þó erfitt sé
að kveðja þig þá vitum við að nú
líður þér vel hjá Óla afa og mömmu
og án efa hafa verið miklir fagn-
aðarfundir þegar þú komst til
þeirra.
Elsku amma, við kveðjum þig
með söknuði og þökkum þér allar
þær góðu stundir sem þú áttir með
okkur.
Ragnhildur, Anna
María, Óskar Dan, Ólaf-
ur Guðbjörn og fjöl-
skyldur.
Ég man ekki eftir mér í æsku án
þess að Ragna komi þar inn í
myndina. Hún var ráðskona á
æskuheimili mínu og tók ríkan þátt
í uppeldi mínu. Í minningunum
rumska ég alltaf af nætursvefni
þegar Ragna kemur í húsið
snemma morguns og ég veit að þá
er tími til kominn að fara á fæt-
ur … alla vega kominn tími til að
hugsa um að fara á fætur. Og síðan
að fá sér morgunmat með foreldr-
um mínum og Rögnu – mínum
helstu uppalendum – áður en farið
var í skólann. Síðan skildu leiðir í
nokkra tíma og í hádegishléinu
hentist maður heim til að hitta
Rögnu og foreldrana og til að
borða hádegismatinn sem hún
hafði eldað handa okkur milli þess
sem hún gerði heimilið spikk og
span. Eftir á að hyggja var þetta
góður grunnur að byggja á, að hafa
átt þessar föstu stundir, hvern ein-
asta virka dag fyrstu 2 áratugina
eða svo, og mér líður vel þegar ég
rifja þetta upp núna, þegar Ragna
hefur hlotið hvíldina eftir langan
slag að berjast við krabbameinið
sem hafði að lokum betur.
Eftir að hafa flutt að heiman og
hoppað á hringekju lífsins bæði
heima á Íslandi og annarsstaðar í
heiminum minnkaði sambandið við
Rögnu, en ávallt bjó ég að því að
hafa átt þetta nána samband við
hana. Stundum þegar ruslið og
óreiðan var að bera mann ofurliði
eftir að sjálfstæðið tók við, þurfti
ég að taka mér tak og þá ímyndaði
maður sér bara hvernig Ragna
hefði farið að þessu – þá tók þetta
ekki nokkra stund og húsið leit út
eins og í kennslubók í heimilis-
fræðum!
Í haust flutti ég aftur úr landi og
í einni af ferðum mínum milli Ís-
lands og Bandaríkjanna frétti ég
hvernig veikindi Rögnu höfðu
þróast. Ég skrapp í heimsókn á
Vífilsstaði þar sem hún lá og settist
hjá henni. Hún var sofandi – en
eftir smástund opnaði hún augun
og sá mig sitjandi við sjúkrabeðið.
Hún þekkti mig strax og var bæði
hissa og ánægð að sjá mig svona
óvænt. Úthaldið var ekki mikið hjá
Rögnu þannig að ég kom aftur
nokkrum dögum síðar og voru það
fagnaðarfundir hjá okkur. En þetta
var í síðasta skiptið sem mér auðn-
aðist að hitta hana gömlu fóstru
mína og nú hefur hún fengið hvíld-
ina eftir sína baráttu við veikindin.
Ég er þakklátur fyrir mjög
margt í lífinu. Meðal annars er ég
þakklátur fyrir að hafa fengið að
kynnast Rögnu snemma á lífsleið-
inni og fengið að njóta hennar
áhrifa í uppeldi mínu. Ég er þakk-
látur fyrir hennar leiðsögn í lífinu
og að hafa borið gæfu til að hlusta
á hana. Og ég er líka afar þakk-
látur fyrir að hafa fengið að hitta
hana aftur áður en yfir lauk og
kveðja hana. Hvíl í friði, elsku
Ragna mín.
Þorkell Sigurður Harðarson.
Nú kveðjum við Rögnu, kæra
vinkonu okkar. Við erum afar
þakklát fyrir að hafa notið um-
hyggju hennar svona stóran hluta
úr lífi okkar.
Ljóshærð, létt á fæti, mætti hún
Ragna hjá okkur á morgnana og
setti heimilið í gang. Röggsöm, ná-
kvæm og glaðleg lagaði hún morg-
unkaffið og bankaði létt á svefn-
herbergishurðina ef við vorum sein
fyrir. Við spjölluðum yfir kaffinu
um það sem lá fyrir og um lífið
eins og það blasti við okkur þá vik-
una. Í stuttu máli sagt þá sá hún
um dagleg heimilisstörf. Hún sinnti
yngsta drengnum okkar fyrir há-
degi frá tveggja ára aldri og þar til
skólaganga hófst, gaf okkur fimm í
fjölskyldunni góðan hádegismat og
fór frá heimilinu snyrtu og hreinu.
Það var unun að koma heim eftir
langan vinnudag.
Já, hún Ragna var nákvæm í
störfum sínum. Umhyggja, drift og
flinkheit einkenndu hana. Við fund-
um að hún hafði til að bera smekk-
vísi sem var samtímis jarðbundin
og praktísk. Hún kunni meira að
segja að ráða sig í vinnu. Setti tak-
mörk strax þegar við hittumst í
fyrsta sinn. Vildi hafa það á hreinu
hvað hún tæki að sér og hvað væri
í okkar verkahring. Við skildum að
þetta var mikilvægt. Þá yrði þá
minni hætta á að við sprengdum
hana í álagi daganna. Hún myndi
standa við sitt og við standa við
okkar. Hún vildi hafa allt frágengið
þegar hún fór um miðjan dag, enga
óvissu, allt klárt. Vissi sem er, að
heimilisstörfin eru endalaus og líka
að hægt væri að komast yfir
margt, væri umfangið á hreinu.
Þetta fór eftir. Ragna var 47 ára
þegar hún réð sig til okkar Harðar,
Ólafur maður hennar var orðinn
heilsutæpur og hún vildi leggja sitt
af mörkum í heimilishaldi þeirra
með vinnu utan heimilis. Um meira
en þrjátíu ára skeið áttum við sam-
leið. Síðustu árin minnkaði hún við
sig og kom til okkar tvisvar í viku.
Ég man mjög vel að hún talaði um
hvað hún ætti gott; kæmist allra
sinna ferða og gæti unnið smávegis
og þætti upplyfting í því. En
skömmu síðar varð hún fyrir slysi
fyrir utan heimili sitt og átti í lang-
vinnum veikindum upp frá því. Það
hefti athafnafrelsi hennar verulega
Elsku amma mín, mig
langar að minnast þín með
nokkrum orðum. Ég man
hvað var alltaf gaman þegar
þú komst til Noregs og við
biðum á flugvellinum. Þú
komst alltaf með nammi og
eitthvert góðgæti handa okk-
ur. Ég er þakklátur fyrir að
hafa átt eina sanna ömmu
sem gerði allt fyrir mig og
allt sem ég bað um.
Takk fyrir allt, elsku
amma mín.
Þinn
Jón Gunnar.
HINSTA KVEÐJA
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag