Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM 750kr.
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
Stærsta mynd ársins
- 38.000 manns!
ÞETTA ERU FORFEÐUR ÞÍNIR
750kr.
Frábær ævintýra
gamanmynd í anda fyrri myndar!
750kr.
750kr.
750kr.
HHHH
„Lætur engan ósnortinn“
- SV, Mbl
HEIMSFRUMSÝNING!
MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG
SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS!
750kr.
HEIMSFRUMSÝNING!
MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU OG
SKEMMTILEGUSTU TEIKNIMYND ÁRSINS!
750kr.
„mjög skemmtileg og ætti að höfða
til breiðs hóps áhorfenda“
- Dóri DNA, DV
HHH
„Þessi spræka og
fjölskylduvæna
bandaríska teikni-
mynd er sú þriðja í
röðinni og sú besta
þeirra“
- Ó.H.T. , Rás 2
„Þetta er góð skemmtun
með góð skilaboð og hentar
ungum sem öldnum”
- Ó.H. T., Rás 2
OG NÚNA LÍKA Í 3-D
HHH
“Athyglisvert og
vandað verk.
”
-ÓHT, Rás 2
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ OG BORGARBÍÓ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 2 - 4 - 6 - 8 LEYFÐ
Ice Age 3 (enskt tal/ísl.texti) kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Year One kl. 10 B.i. 7 ára
Gullbrá og birnirnir 3 kl. 2 LEYFÐ
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Ghosts of girlfriends past kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ
Tyson kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.12 ára Gullbrá og birnirnir þrír kl. 4 LEYFÐ
Year One kl. 3:30 - 9 B.i. 7 ára Angels and Demons kl. 6 B.i.14 ára
Ice Age (enskt tal/ísl.texti) kl. 3:30 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
Ghosts of girlfriends past kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Lesbian Vampire Killers kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Night at the museum 2 kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ
Year One kl. 3:30 - 5:45 B.i. 7 ára
Terminator: Salvation kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
LIÐSMENN rokkaða karlakórsins
Fjallabræðra eru í vandræðum.
Fyrir skemmstu var kórnum boðið
að koma fram á hinu margrómaða
G-Festival í Færeyjum og hefur
þessi 40 manna hópur selt harðfisk
til þess að reyna að fjármagna ferð-
ina. Salan hefur gengið afspyrnuvel
en þegar Halldór Gunnar Pálsson
kórstjóri ætlaði að fara að kaupa
flugmiða fyrir hópinn kom í ljós að
fargjaldið hefur rokið upp úr öllum
valdi síðustu vikur. Fjallabræður
verða því að horfast í augu við þá
staðreynd að nái þeir ekki að safna
um tveimur milljónum króna auka-
lega á næstu tveimur vikum komast
þeir ekki til Færeyja til að leika á
hátíðinni sem fer fram í lok júlí.
Kórinn gaf færeysku þjóðinni
lagið „Minni Færeyja“ á síðasta ári
og er orðin þekkt stærð meðal
frænda okkar og mikil eftirvænting
á báða bóga fyrir komu þeirra.
Halldór segir ekki koma til greina
að taka Norrænu þar sem liðsmenn
þyrftu þá að dvelja í Færeyjum
fjarri fjölskyldum sínum í heila
viku. En Fjallabræður deyja ekki
ráðalausir og eru nú að skoða alla
möguleika. Jafnvel að leigja bát til
þess að ferja allan hópinn yfir til
Færeyja.
Bjartsýnir
„Flugför eru orðin dýrari og
þetta eru margir menn. Svo er ekki
auðvelt að safna peningum í dag,“
segir Halldór. „Við erum búnir að
spila mikið til þess að safna pen-
ingum til að komast í þessa ferð.
Við verðum að finna aðrar leiðir til
þess að gera þetta og erum bjart-
sýnir. Við erum búnir að selja ég
veit ekki hvað mörg kíló af harð-
fiski sem við mokuðum út um allt
land. En þetta er ekki fimm manna
hljómsveit. Ef þetta gengur ekki þá
bara gengur þetta ekki og við för-
um síðar. Það er brjálaður áhugi
innan hópsins á að fara og ég var
næstum því rotaður á æfingu í gær
þegar ég neyddist til þess að til-
kynna kórnum þessar fréttir. Við
erum meira að segja búnir að skoða
það að leigja sér bát fyrir okkur. En
þá þarf að borga hafnarréttindi og
ekki er olían ódýr. Það liggja víst
ekki togarar á lausu.“
Halldór segir það góðan sólar-
hring að sigla á milli en bendir á að
hópur ævintýramanna er sigldi á
Zodiac-gúmmíbátum frá Vest-
mannaeyjum til Færeyja hafi að-
eins verið 18 tíma. „Það gengur víst
ekki að fara með hópinn í jakkaföt-
unum yfir á svoleiðis.“
Einn fyrir alla, allir fyrir einn
Halldór segir Fjallabræður ætla
að berjast eins lengi og þeir geti við
að safna peningum fyrir ferðinni.
Þegar blaðamaður stingur upp á
því að kórinn leiti til almennings og
hrindi af stað söfnun tekur Halldór
algjörlega fyrir það. „Við viljum
enga ölmusu, það er alveg á hreinu.
Ef einhver vill gefa okkur pening
þá gerum við eitthvað fyrir hann.
Við viljum ekki fá neitt gefins,“
segir Halldór ákveðinn og segir það
heldur ekki koma til greina að
minnka kórinn fyrir ferðina. „Þá
værum við að hugsa um hag kórs-
ins. En kórinn verður að hugsa um
hag meðlima. Einn fyrir alla og all-
ir fyrir einn. Annað hvort förum við
allir eða enginn!“
„Við viljum enga ölmusu“
Veruleg hækkun fluggjalda til Færeyja ógnar ferð Fjallabræðra á G-Festival
Fjallabræður Staðráðnir í því að berjast fyrir því að komast til Færeyja. Kórinn vill þó enga ölmusu.