Nýtt kvennablað - 01.03.1946, Blaðsíða 3

Nýtt kvennablað - 01.03.1946, Blaðsíða 3
NYTT KVENNABLAD 7. árgangur. 3. tölublað Í94G. zJ'loer á sér fecjra föðurland... Hver á sér meðal þjóða þjóð sem þekkir hvorki sverð né blóð, en lifir sæl við ást og óð Úr söngvum er helgaöir voru og auð, sem friðsæid gaf? Þjoðhátíöardegi íslands Við heita brunna, hreinan blæ 17. júní 1944. °S bátign jökla, bláan sæ hún unir grandvör, farsæl fróð og frjáls — við yzta haf. M ver á sér fegra föðurland, með fjöll og dal og bláan sand með norðurljósa bjarmaband og björk og lind í hlíð? Með friðsæl býli, ljós og ljóð, svo langt frá heimsins vígaslóð. Geym, drottinn, okkar dýra land er duna jarðarstríð. Ó, ísland, fagra ættarbyggð, um eilífð sé þín gæfa tryggð öll grimmd frá þinni ströndu styggð og stöðugt allt þitt ráð. Hver dagur líti dáð á ný. Hver draumur rætist verkurn í, svo verði íslands ástkær byggð ei öðrum þjóðum háð. Svo aldrei framar íslands byggð sé öðrum þjóðum háð. Hulda. nýtt kvennablað 1

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.