Nýtt kvennablað - 01.04.1946, Page 13

Nýtt kvennablað - 01.04.1946, Page 13
Katrín Thoroddsen kemst á þíng Það var öllum Ijóst, að ekki gat komið til greina, að nokkur kona nema Katrín Thorodd- sen kæmist á þing við nýafstaðnar kosningar. Sósíalistaflokkurinn hafði sett hana í 4. sæti á lisia í Reykjavík, sem að vísu var baráttusætið. Enginn hinna þingflokkanna liafði konu í því sæti að nokkur von væri á að hún næði kosningu. Katrín verður 1. landskjörinn þingmaður flokksins og tekur sæti á næsta Alþingi. Katrín Thoroddsen er áreiðanlega verð þess trausts sem konur almennt bera til hennar og hennar eigin flokkur alveg sérstaklega. Hún mun reynast öttill og duglegur fulltrúi kvenna á Alþingi, sem berst þar íyrir réttinda málum kvenna. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að fleiri konur bætist í hópinn á Alþingi. í Sovietríkjunum og nú í Búlgaríu hafa kon- ur öðlast fullt jafnrétti með stjórnarskrá ríkj- anna. Við íslenzkar konur fengum jafnréttið tiltölu- lega fyrirhafnarlítið. Það er sagt, að því meira sem við þurfum að leggja á okkur fyrir það, sem við þráum, þess dýrmætara verði okkur það. Þetta hefir því miður sannast á okkur, og getur verið skýring á áhugaleysi kvenna á þjóðfélags- málum og sínum eigin réttinda — og hagsmuna- málum. F.n slíkt má ekki halda áfram. Við erum svo fámennar, íslenzku konurnar, að engin má skerast úr leik. Við verðum allar að sameina okkur urn þær réttindakröfur, sem eru efst á baugi á hverjum tíma; Þá munum við líka fá þeim framgengt. Þau mál, sem K. R. F. í. hefir nú fremst á dagskrá, eru tillögur kvenna í stjórnarskrármál- inu, sem eiga að tryggja konum fullt stjórnar- farslegt og atvinnulegt jafnrétti, sömu laun fyrir NÝTT KVENNABLAÐ sömu vinnu, og leggur ríkinu á herðar þær kvað- ir, að það geri konum mögulegt með rekstri ýmissa stofnana, svo sem dagheimila o. fl., að notfæra sér þau réttindi, og að ákvæði um mæðralaun og almenna ekkjustyrki verði tekin upp í hin nýju lög um almannatryggingar. Snýr K. R. F. í. sér til allra kvenna, hvar sem er á landinu og til hvaða stórnmálaflokks sem þær teljast, og heitir á þær að sameina sig um þeessar kröfur og styðja félagið í baráttu þess fyrir frarn- gangi þeirra. Alveg nýskeð höfum við haldið veglega hátíð- legt 2 ára afmæli hins íslenzka lýðveldis. Svo ungt ríki, sem enn má heita að liggi í reif- um, þarfnast alls þess bezta sem hver og einn ein- asti þegn þess á af manngildi, viti og dugnaði. En fyrst og fremst þarfnast það móðurhanda og móðurhuga til að gæta þess að það ekki kali á sál sinni, svo að æska þess megi vaxa upp lieil- brigð, andlega og líkamlega, og verði fær urn að taka við störfum, þegar Iiennar tími kemur. Maria J. Knudsen. 11

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.