Nýtt kvennablað - 01.04.1946, Qupperneq 13
Katrín Thoroddsen
kemst á þíng
Það var öllum Ijóst, að ekki gat komið til
greina, að nokkur kona nema Katrín Thorodd-
sen kæmist á þing við nýafstaðnar kosningar.
Sósíalistaflokkurinn hafði sett hana í 4. sæti á
lisia í Reykjavík, sem að vísu var baráttusætið.
Enginn hinna þingflokkanna liafði konu í því
sæti að nokkur von væri á að hún næði kosningu.
Katrín verður 1. landskjörinn þingmaður
flokksins og tekur sæti á næsta Alþingi.
Katrín Thoroddsen er áreiðanlega verð þess
trausts sem konur almennt bera til hennar og
hennar eigin flokkur alveg sérstaklega. Hún
mun reynast öttill og duglegur fulltrúi kvenna
á Alþingi, sem berst þar íyrir réttinda málum
kvenna.
Vonandi verður þess ekki langt að bíða að
fleiri konur bætist í hópinn á Alþingi.
í Sovietríkjunum og nú í Búlgaríu hafa kon-
ur öðlast fullt jafnrétti með stjórnarskrá ríkj-
anna.
Við íslenzkar konur fengum jafnréttið tiltölu-
lega fyrirhafnarlítið. Það er sagt, að því meira
sem við þurfum að leggja á okkur fyrir það, sem
við þráum, þess dýrmætara verði okkur það.
Þetta hefir því miður sannast á okkur, og getur
verið skýring á áhugaleysi kvenna á þjóðfélags-
málum og sínum eigin réttinda — og hagsmuna-
málum. F.n slíkt má ekki halda áfram.
Við erum svo fámennar, íslenzku konurnar,
að engin má skerast úr leik. Við verðum allar
að sameina okkur urn þær réttindakröfur, sem
eru efst á baugi á hverjum tíma; Þá munum
við líka fá þeim framgengt.
Þau mál, sem K. R. F. í. hefir nú fremst á
dagskrá, eru tillögur kvenna í stjórnarskrármál-
inu, sem eiga að tryggja konum fullt stjórnar-
farslegt og atvinnulegt jafnrétti, sömu laun fyrir
NÝTT KVENNABLAÐ
sömu vinnu, og leggur ríkinu á herðar þær kvað-
ir, að það geri konum mögulegt með rekstri
ýmissa stofnana, svo sem dagheimila o. fl., að
notfæra sér þau réttindi, og að ákvæði um
mæðralaun og almenna ekkjustyrki verði tekin
upp í hin nýju lög um almannatryggingar. Snýr
K. R. F. í. sér til allra kvenna, hvar sem er á
landinu og til hvaða stórnmálaflokks sem þær
teljast, og heitir á þær að sameina sig um þeessar
kröfur og styðja félagið í baráttu þess fyrir frarn-
gangi þeirra.
Alveg nýskeð höfum við haldið veglega hátíð-
legt 2 ára afmæli hins íslenzka lýðveldis. Svo
ungt ríki, sem enn má heita að liggi í reif-
um, þarfnast alls þess bezta sem hver og einn ein-
asti þegn þess á af manngildi, viti og dugnaði.
En fyrst og fremst þarfnast það móðurhanda
og móðurhuga til að gæta þess að það ekki kali
á sál sinni, svo að æska þess megi vaxa upp lieil-
brigð, andlega og líkamlega, og verði fær urn að
taka við störfum, þegar Iiennar tími kemur.
Maria J. Knudsen.
11