Nýtt kvennablað - 01.01.1952, Blaðsíða 7

Nýtt kvennablað - 01.01.1952, Blaðsíða 7
— Ætlið þér hér í land, var sagt við hliðina á mér, það var Jón kennari. —• Já, svaraði ég. — Við verðum þá samferða; hér er ég kominn á æskustöðvarnar, og hann tók að sýna mér ýmis örnefni í þorpinu. Báturinn lagðist að skip- inu og Jón hjálpaði mér með dót mitt niður í bátinn, það var auðséð að þorpsbúar þekktu Jón að öllu góðu, svo innilegar voru kveðjur hans og gömlu mannanna, sem á bátnum voru. Veðrið var dásamlega fagurt og þegar við stigum á land stakk Jón upp á því, að ég gengi með sér út fjöruna, að stórum steini, þar sem hann hafði leikið sér lítill drengur. Mennirnir, sem með bátinn voru, fóru með farangur okkar upp á gisti- hús. Við gengum hlið við hlið úl fjöruna. Jón talaði í sífellu og ég hafði það á meðvitundinni, að hann væi i búinn að gleyma mér. Æskuminningarnar komu hver af annarri bundnar við Iivert leiti og hvern stein — allt í einu steinþagnaði Jón og snarstanzaði. Mér var litið fram fyrir mig á stóra steininn, sem við vorum nærri því komin að, bak við steininn í fjörunni sat kona og horfði út á sjóinn. Hún var tötralega klædd og ótal rúnir, þjáninga, voru ristar á andlitið, sem auðsjáan- lega hafði einu sinni verið frítt. Mér var Iitið framan í Jón, hann stóð þarna náfölur eitt andartak, svo snéri hann á hæl og gekk í áttina til gistihússins. Hann stamaði fram nokkrum afsökunarorðum, en var annars þögull og gerbreyttur. Hann kvaðst ekki mega vera að eyða tímanum svona, og líklega væri beðið eftir okkur báðum. Þegar á gistihúsið kom var enginn kominn til að sækja mig og ákvað ég þá að skoða mig um eins og ég gæti. Fyrst gekk ég upp brekkuna að sniiðju, sem ég sá þar og gægðist forvitnislega inn um dyrnar. Smiðurinn, gamall maður og góðlegur með mikið grátt skegg, hætti að berja járnið, þegar ég kom að dyrunum. Ég heilsaði, hann tók kveðju minni vel og spurði, hvort ég hefði komið með skipinu og hvert ferðinni væri heitið. Ég le.ysti úr spurningunum og þegar hann heyrði hvert ég ællaði varð hann glaður við. Þetta var lians vinafólk og sjálfsagt að greiða götu mína eins og hægt væri, og ef ég þyrfti að gista skyldi ég koma heirn til hans, og hann benti mér á húsið þar, sem hann bjó. Ég þakkaði fyrir, en sagðist ætla að skoða mig betur um. Ég gekk innar í þorpið, lítill og hrörlegur kofi stóð sér, dálítinn spöl frá öðrum húsum, sem flest voru smá. Rétt hjá kofanum rann lækur, mér var heitt og ég var þyrst, ég gekk því að læknum og hugðist að fá mér að drekka. Sá ég J>á konu koma út úr kofanum og ganga til mín. Þekki ég að þar var komin konan, sem mér virtist Jóni verða svo mikið um að sjá, fyrr um daginn. — Komdu sæl, geturðu lánað mér eilthvert NÝTT KVENNABLAÐ ílát, svo ég geti fengið mér að drekka, sagði ég, en varla hafði ég sleppt orðinu, þegar ég sá að þessi kona mundi vera geðbiluð. Hún starði á mig andarlak, svo tók hún til máls, og það var eins og röddin væri nærri brostin. — Komstu með skipinu? spurði hún. Já, svaraði ég. Ég átti von á manni með skipinu, frá útlöndum, ég sá þig með honum. — Það getur ekki verið, svaraði ég. Ég endurnýjaði bón rnína um ílát til að drekka úr. Konan fór og kom út aftur með skál, sem hún þvoði vandlega úr læknum .fyllti af vatni og bauð mér að drekka. — Þér er óhætt að drekka þetta, ég gef engum eit- ur, mér var gefið eitur, þessvegna er ég svona. Ég flýtti mér að drekka, en hún vildi ekki láta mig fara strax, og áður en ég kvaddi hana ,gaf ég henni tvær krónur fyrir svaladrykkinn. Hún horfði ýmist á mig eða aur- ana og allt í einu beigði hún af og tárin runnu niður hrukkótta vangana og með sinni hásu sérkennilegu rödd, bað hún guð að blessa mig. Ég varð að lofa lienni J)ví að konia við hjá henni, Jtegar ég kæmi aftur úr kaupavinnunni. Ég flýtti mér heim á gistihúsið. Guð- rún vinkona mín var þar komin með J)rjá til reiðar að sækja mig. Við bjuggum upp á hestana í snatri. Jón var líka að leggja af stað út í sveit, þó í aðra átt. Mér fannst hann hafa elzt mikið. Raunasvipur var á and- litinu og gleðihreimurinn var horfinn úr röddinni. Við drukkum saman kaffið, þökkuðum hvort öðru fyrir samveruna og við stöllur settumst á hestana og þeystum af stað. Við áttum nokkuð langa leið fyrir höndum og J)að var tekið að kvölda. Náttþokan huldi jörðina og bæirnir voru eins og J)úfur upp úr þokunni. Við liægðum ferðina Jiegar við vorum komnar góðan spöl upp úr J)orpinu og þá fyrst gátum við farið að spjalla saman. Eitt af því fyrsta, sem Guðrún spurði mig um var, hver hann -hefði verið þessi myndarlegi maður, sem ég hafði kvatt svo vinalega. Ég sagði henni sem var. Guðrún varð skrítinn á svipinn. — Jæja, svo þetta er Jón kennari. Hann hefur mig alltaf langað til að sjá, ég hef aldrei séð hann fyrr, en því meir heyrt hans getið. Hann á sína sögu eins og fleiri. Ég bað Guðrúnu að segja mér við hvað hún ætti með þessum orðum, og hún svaraði mér blátt á- fram: — Ég get svo sem vel sagt þér hvað ég á við. Jón ólst hér upp í þorpinu hjá læknishjónunum, þau tóku hann munaðarlausan. Hann var mesti efnispilt- ur og öllum þótti vænt um hann. Eitt haust kom ung slúlka á heimilið, ættuð hér úr sveitinni. Hún var elzt margra systkina og það mun liafa verið fátæktin, sem rak foreldrana til að láta hana í vist. Sólveig var fall- eg stúlka, elskuleg í framkomu og myndarleg í verk- um sínum. Húsbændum hennar féll vel við hana og 5

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.