Nýtt kvennablað - 01.11.1952, Qupperneq 7
Þessi mynd er úr nýjustu kvikmyndinni af Davíð
konungi og Batsebu. Leikin af Gregory Peck og Susan
Hayward.
Enginn þarf að fara í grafgötur um efni myndar-
innar. Davíð konungur í ísrael sendi Hetítann Uría
í bardagann þar, sem hann var harðastur og tók liina
fögru konu hans. Þetta er endalaust yrkisefni skáld-
anna, en sem betur fer er farið með það á ýmsan hátt.
Birtum við hér á eftir kvæði eftir Jóti Þorsteinsson á
Arnarvatni: Davíð konungur og Oría og brot úr kvæði
Davíðs Stefánssonar: Batseba. -
Það urðu fagnaðarfundir með okkur. Þeir báðu mig
að hlaupa og ná í hrossin, þau voru þar rétt hjá, svo
lögðu þeir á og létu upp klyfjarnar, kvöddum við svo
sjómanninn okk,ar og héldum af stað heim. Hann fór
aftur til Drangeyjar. Okkur gekk vel á heimleiðinni,
ekkert bar til tíðinda, sem ég man eftir annað en það,
að á melunum fyrir neðan Ósland benti pabbi mér
frameftir og sagði að þarna væri Hjaltadalurinn. Ég
man enn eftir þokuslæðingi, sem var í fjöllunum. Við
komum heim um háttatíma og höfðum þá verið rétt-
an sólarhring í burtu. Ég var orðin ósköp þreytt og
varð fegin að komast í rúmið.
Nú er sagan á enda. Það sem ég keypti í Grafarósi
er fyrir löngu komið í glatkistuna eins og við er að
búast, tindátarnir voru hafðir í spengur á matarílát,
þegar ég var hætt að leika mér að þeim, en hnap]>ana.
sem ég fann á ég enn í dag. Það er eins og þessi einsk-
isverðu gler hafi ekki getað týnzt.
Ég hef oft farið í kaupstað þessi 80 ár, sem liðin
eru síðan þetta gerðist, enga þá ferð man ég eins vel
og þessa. Una SigurSardóttir, KálfsstöSum.
NÝTT KVENNABLAÐ
Davíð konungur og Úría
Aldrei mundi Uría
orðið hafa viðskila,
hefði ekki Batseba
baðað sig við lindina,
Davíð með sinn kvæðaklið
klifrað upp á húsþakið,
litið þenna sómasið.
Svona er stundum hreinlætið!
Símaði Jóab heim í hlað:
„Hetítinn er orðinn spað!“
Ýmsir heyrðu eftir það
öðling spila margraddað.
Jón Þorsteinsson.
Batseba
.... I kvöld þarftu ekkert að óttast,
þó leiki ég á hörpuna
Ijóð til þín.
Batseba, Batseba mín.
Loftið var áfengt af ilmi.
Af hallarþakinu
þig eg sá.
í lindinni lékstu þér nakin,
ljómandi af æsku og þrá.....
Heyrir þú grátið við gluggann?
— Af hamingju grætur
hörpunnar sál.....
Heyrir þú Uría hrópa?
Harpan kallar —
hlustaðu vel —:
Frá í dag ertu í draumi og vöku
drottning í ísrael...
Heyrir þú sverðin syngja?
í strengjunum dynur
dauðans ljóð.
Yfir ást mína rignir
Urías hjartablóð.....
Drottinn má dæma mig sekan;
þau fyrirgefa mér,
faðmlögin þín
Batseba, Batseba mín.
DavíS Stefánsson.