Nýtt kvennablað - 01.12.1952, Page 10

Nýtt kvennablað - 01.12.1952, Page 10
Minning Bjargar Sigmundsdóttur, Sleðbrjót VíSar en í siklingssölum svanna fas er prýSi glœst. Mörg í vorum djúpu dölum drottning hefur bónda fœ'Sst. Þann 26. febrúar s.l. andaðiít húsfreyjan Björg Sigmundsdóttir, að heimili sínu Sleðbrjót í Jökulsár- hlíð, eftir að hafa átt við mikla vanheilsu að stríða meira en eitt ár. Við lát hennar varð hljótt hjá vinum hennar og vandamönnum, já, þegar við höfðum fengið vissuna fyrir því að jarðvist þessarar óvenjulegu ágætiskonu væri lokið, því allir, sem kynntust henni háru síðar lotningarfullan hlýhug til hennar og geyma minning- una um hana sem sólríkan sumardag. Björg Sigmundsdóttir var fædd að Gunnhildargerði í Hróarstungu 13. marz 1884. Hún var elzta barn hjónanna þar, Guðrúnar Sigfúsdóttur og Sigmundar Jónssonar, en þau eignuðust alls tíu börn. Björg ólst upp hjá foreldrum sínum í hinum stóra og glaða systkinahóp, er allur unni henni og virti mikils. Þann 4. ágúst 1906 giftist Björg Stefáni Sigurðs- syni, hreppsstjóra, frá Geirastöðum. Reistu þau bú að Sleðbrjót í Jökulsárhlíð og bjuggu þar mesta mynd- ar- og rausnarbúi til ársins 1931 að Stefán andaðist. Var fráfall hans mikið áfall fyrir Björgu, því sam- búð þeirra var öll hin ástúðlegasta, og voru þau ætíð samhent, í blíðu og stríðu. Þau hjón eignuðust fjög- ur mannvænleg börn: Magnhildi húsfreyju í Grófár- seli, gifta Birni Kristjánssyni, Guðrúnu húsfreyju í Hofteigi, gifta Karli Gunnarssyni, Sigurð bónda að Breiðumörk, kvæntan Sigurbjörgu Björnsdóttur og Geir, sem býr á Sleðbrjót eftir foreldra sína, kvænt- an Elsu Björgvinsdóttur. Einnig ólu þau upp tvö fósturbörn, Frímann Jakohsson, bónda í Krossavík, kvæntan Ingihjörgu Sigmarsdóttur og Ingu Péturs- dóttur saumakonu á Akranesi. Fyrstu árin eftir að Björg missti mann sinn, bjó hún áfram á Sleðbrjót með aðstoð barna sinna, en eins og lögmál lífsins krefur, skildust leiðirnar, en börnin héldu öll uppi merki foreldra sinna og „reistu sér byggðir og bú í blómgvuðu dalanna skauti.“ Eft- ir nokkur ár lét hún af búskap og tók þá Geir sonur hennar við og hjá honum átti Björg heimili til ævi- loka. Þá hafði Sigurður fyrir nokkru byggt nýbýlið, Breiðumörk, í landi Selðbrjóts. I þann tíma, sem Björg bjó á Sleðbrjót var þai alU- af mannmargt heimili því jörðin var stór og umfangs- mikil. Sumt af vinnuhjúunum dvaldist þar svo ár- um skipti, og eiunig voru þar margir unglingar og börn, lengri og skemmri tíma. En þá er þó ótalið eitt sem kom í hlut heimilis hennar að annast, en það var hinn mikli gestastraumur, er þar var, því þeir voru margir, sem áttu erindi við hreppstjórann á þeim árum, en óvíst er þá livort þeir voru færri, sem þurftu að finna húsfeyjuna. En það virtist sem J>eim hjón- um væri það mest ánægja að liðsinna sem flestum á einn eða annan hátt. Sleðbrjótur er vel í sveit settur og stendur í þjóð- braut, þar er þingstaður hreppsins. Ferja var á Jök- ulsá undan Sleðbrjót og því lá þar um garð leið flestra þeirra, sem vestur yfir Jökulsá fóru, yzt af Héraði, en Jieir voru nokkuð margir í Jrá daga. Á bú- skaparárum þeirra hjóna var reist ný kirkja að Sleð- brjót og þar byggði ungmennafélag sveitarinnar sér félagsheimili. Má af þessu marka að oft hlýtur að hafa verið gestkvæmt á Sleðbrjót, eins og áður er sagt, og var eins og ferðalöngum þætti sjálfsagt að gista þar, enda mun það fljótt hafa borist, að þar væri gesta- herbergið ávallt til reiðu og viðtökur með ágætum svo sem bezt væri á kosið. Björg var mjög vel gefin kona bæði til líkama og sálar, enda var hún vel lesin og fróð um marga hluti. En Jjað, sem einkenndi hana mest og lyftir henni haist í endurminningunum er þó hin óviðjafnanlega fram- koma og hinn mikli og sterki persónuleiki, sem hún hafði til að bera fram yfir flesta, ef ekki alla aðra, sem ég hef kynnzt. Þó Björg væri skapmikil kona, mun fæstum þeim, er henni kynntust, hafa verið það ljóst, því svo vel kunni hún með það að fara, en skilningsríkari og betri félaga var vart að finna, hvort sem var í gleði NÝTT KVENNABLAÐ 8

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.