Nýtt kvennablað - 01.12.1952, Blaðsíða 12

Nýtt kvennablað - 01.12.1952, Blaðsíða 12
Jólakjólarnir. Einmana. Ég er sjúk og særö og þreytt, sorgin hugann lamar. Nú tek ég aldrei tryggö viS neitt í tilverunni. framar. Lilja Björnsdóttir. Fékk ákafan hjartslátt eftir fjörugan dans. Ég þyrjti ekfci helstríð að heyja og hlyti slrax sœlunnar votl, ej fengi ég dansandi aö deyja. Ó, Drottinn minn, það vœri golt. Lilja BJörnsdóttir. Svefninn og fegurðin Læknir nokkur sagði að augun væru sér einskonar loftvog eða mælikvarði á aldur fólks og heilsu. Ég mætti í gær fallegri konu, sagði hann, sem leit út fyrir að vera um þrítugt. Þegar ég dáði hennar bjarta litarhátt sagðist hún vera „amma,“ og þegar ég efaði það, tók hún upp passann sinn og sýndi mér fæðingardaginn. Hún var 46 ára gömul. Hún hlaut þá að ver nýkomin úr „fegrunarkúr.“ Hefur fengið fiör- efna innsprautingar, eins og farið er að nota erlend- is, hugsaði ég, og spurði: Hver er leyndardómurinn? — Hann er aðeins sá, að ég sef! Hún sagði mér þá, að hún leitaðist við að sofa 10 tíma í sólarhring. Fengi sér miðdagshvíld í limmu herbergi í fullkominni ró. Það eru ekki allir, sem geta, hvorki starfs síns vegna eða frá smábörnum, sofið svo lengi, en margir ættu að geta séð á hak tveim kvöldum í viku og farið isnemma að sofa. Það eitt myndi fljótt yngja útlitið, mýkja húðina og endurnýja taugarnar. 10 Arg. 1952 lýk ur me'ð þessu blaði. — Kœrar þakkir, kaupendur! GLEÐILEG JÓL! NÝTT KVENNABLAÐ Ilenlug og falleg krakkaföt. Eg vildi Eg vildi geta bundið bragamál, er bergmálaði á hverri þöglri stund, svo inn í hverri ódauðlegri sál yxi kærleiksrós sem blóm á grund. Eg vildi geta bundið bragamál, er bræðralagsins kcnndi réttu trú, og upp er rætti allt það svika tál, er alhcimsmenning þjakar sífellt nú. Eg vildi geta bundið bragamál, er blómin fölnuð vekti upp af grund, hvo móðurjörðin öll, við sund og ál, ætti fagran beykiskógar lund. Eg vildi geta bundið bragamál, er brytist fram með þungum orku nið, og kvcikti ljós í hverri þeirri sál, er kolsvart myrkur gcfur engan frið. Eg vihli geta bundið bragamál, svo bölið jarðar hyrfi á skammri stund, og kveiti í hjörtum kærleiks-trúar bál svo kærleiksmáttur græddi liverja und. Eg vildi geta bundið bragamál, er bryti í sunclur hverja manndrápsvél, svo cnginn liræddist ófriðarins bál og engan, fyrir tímann nísti hel. Eg vildi geta bundið bragamál, það bragamál, sem kallast gæti list, þá list, er allra læstist inn í sál með lífshamingju og trú á Jesúm Krist. lioftur Bjarnason.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.