Nýtt kvennablað - 01.01.1953, Page 4

Nýtt kvennablað - 01.01.1953, Page 4
Gu&rún Símonardóttir. ÞRJAR ISLENZKAR ÖPERUSÖNGKONUR Þuríður Pálsdóttir. GuSmunda Elíasardóttir. Listhneigð einstaklingsins verður æ stærri þáttur í lífi hans og þjóðarinnar í heild. Söng- og tónlistar- konurnar okkar hafa unnið stóra sigra á árinu, sem leið. Fjórar konur hafa haldið sjálfstæðar málverka- og listsýningar í Reykjavík, fyrir utan þátttöku kvenna i öllum fjöldasýningum ársins. Bækur eftir þessa kvenrithöfunda komu út á árinu: Guðrún frá Lundi: Tengdadóttirin, fyrra bindi, El- ínborg Lárusdóttir: Miðillinn Hafsteinn Björnsson, Anna frá Moldnúpi: Förukona í París, Arnfríður Sig- urgeirsdóttir: Séð að heiman, æfisöguþættir, minni og ljóð, Ragnheiður Jónsdóttir: Dóra sér og sigrar, Eva Hjálmarsdóttir: Margt er smátt í vettling manns, Sóley í Hlíð: Maður og mold, önnur útgáfa, Ólafía Jóhannsdóttir: Daglegt ljós, önnur útgáfa, Margrét Jónsdóttir: sönglagatextar, við Tíu sönglög, eftir J. S. Bach, Úndína (Helga Baldvinsdóttir) : Kvæði. — Þá má bæta við: Sendibréf frá íslenzkum konum. — Þess- um konum öllum vill blaðið óska til hamingju með verk sín. — Fleiri konur hafa á öðrum sviðum unnið þrekvirki: Móðirin, sem óð út í sjóinn, ósynd, og bjargaði barninu sínu með fádæma snarræði, Ungu stúlkurnar, sem læra og vinna fyrir sér samtímis, svo og ýmsar konur innan félagasamtakanna, og allar þær, sem í kyrrþey iðja og biðja. * Gleðilegt-ár, íslenzka þjóð! „£g er svo feimin, að nafn mitt er aðeins Sœrún". Yfir kalda feSra fold feta má ég lúin. Líkami minn leggst í mold, þá lífs er krajtur búinn. Mig hefur lífið leikiS grátt, lamaS sálarþróttinn. Kysi ég helzt aS kœmi brátl kvöld og hinzta nóttin. Þegar jarSlífs bresta bönd, búin er lífsins vaka. LjáSu mér drottinn líknarhönd, lát mig ekkert saka. Sofna ég nú í sælli ró, sorgir engar þjaka. Af þeim verSur eflaust nóg, er aftur byrjar vaka. Skömmtunarnefndin (stofnauki 13) Flutt hefur nefnd sú flest úr skorSum, framlengdi enn, áS gömlum siS. Nú eigum viS eins og Eva forSum aSeins aS nota laufblaSiS. Scerún. 2 NtTjKVENNABLAÐ -

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.