Nýtt kvennablað - 01.01.1953, Page 7

Nýtt kvennablað - 01.01.1953, Page 7
allt í einu. Þangað til móðir hans, grannvaxin og faguríimuð, kom hlaupandi og kallandi eins og ung hæna og sótti hann. Á bekkjunum og grænu stóhin- um sat einnig fólk, en næstum alltaf hið sama sunnu- dag eftir sunnudag, og ungfrú Brill hafði tekið eftir l>ví, að það var eitthvað kátlegt við það allt saman. Það var skrítið, þegjandalegt, næstum allt gamalt, og það pírði eins og það væri nýkomið út úr dimmri herbergiskytru eða jafnvel — jafnvel skáp. Bak við hljómsveitarpallinn stóðu grannvaxin tré með gulu, hnípnu laufi, á milli trjánna sást rönd af hafinu, en yfir hvelfdist blár himinninn með gullnum skýjum. Tum—tum—tum—tidd—tum!-— Tum—tidd—tum— tum—ta! sagði hljómsveitin. Tvær ungar stúlkur, rauðklæddar, gengu fram hjá, og tveir ungir sjóliðar í einkennisbúningum mættu þeim, og þau hlógu og gengu hurt og leiddust tvö og tvö. Tvær bóndakonur með skringilega stráhatta löbh- uðu fram hjá, alvarlegar á svip, og teymdu fallega dökkgráa asna. Kuldaleg, fölleit nunna skundaði hjá. Fögur kona kom á vettvang, missti fjóluvöndinn sinn, og drenghnokki hljóp á eftir henni og rétti henni hann, en hún tók fjólurnar og fleygði þeim, eins og þær hefðu verið eitraðar. Drottinn minn dýri! Ungfrú Brill vissi ekki, hvort hún átti að dást að þessu eða ekki. Og nú mættust beint fyrir framan Iiana kona með hreysikattarskinnshatt og gráklæddur herra. Hann var hár vexli, virðulegur, en stirfinn, og hún var með hreysikattarskinnshattinn, sem hún hafði keypt, meðan hár hennar var glóbjart. Nú var allt, hárið , andlitið, jafnvel augun með sama lit og tötra- legt hreysikattarskinnið, og hanzkaklædd höndin, sem hún lyfti til að þerra varirnar, var eins og örlítil gul- leit loppa. Ó, hvað hún var glöð að sjá hann — him- inlifandi! Hún hafði hálfvegis húizt við að mæta honum. Hún lýsti því, hvar hún hefði verið — hérna og þarna/ allstaðar með fram sjónum. Hvort honum fyndist veðrið ekki dásamlegt? Og mundi hann kannski ekki vilja . .. . ? En hann hristi höfuðið, kveikti sér í sígarettu, blés hægt frá sér stórum reykjarmekki framan í hana, fleygði eldspýtunni og gekk burt, meira að segja á meðan hún lét dæluna ganga hlæjandi. Konan með hreysikattarskinnshattinn stoð ein eftir; hún brosti glaðlegar en nokkru sinni fyrr. En jafnvel hljómsveitin virtist finna, hvernig henrti var innanbrjósts, því að hún lék hægara og viðkvæmara, og trumban drundi. „Dóninn! Dóninn!“ aftur og aftur. Hvað mundi konan nú taka til bragðs? En meðan ungfrú Brill var að velta því fyrir sér, sneri konan sér við, veifaði hendinni, eins og hún NÝTT KVENNABLAÐ Galdravísur Or: iiú skal eff fremja firn og undnr.... hylja mig: þokn hvœsa f tundur or: tauta yfir öllu dauðu or- öllu, sem lifir. Frjór er akurinn fáir vaka Rjlittir svefntýra í fi:luR:R:a, staka. í KkuRRjinum er eR: æ á erli, enR:ir vita að cr: cr á ferli. — Gróðurinn sverðinum sefur undir dumb er hans vitund, djúpur lians blundur .... Valdið er mitt — það skal mafinast or: hrífa í myrkrinu hvessi efi efifijar or: hnífa .... l»ví enffinn þekkir hans vöxt or: veff, nema einn, einn. Efi. Hildur úr Illíð. hefði séð annan langtum geðfelldari hinum megin á götunni, og tiplaði burt. Og hljómsveitin breytti aft- ur um, Iék hraðara og fjörugra en áður, og gömlu hjúin, sem sátu á bekknum hjá ungfrú Brill, stóðu á fætur og strunsuðu burt, og liinn skringilegi karl með síða vangaskeggið hökti eftir hljómfallinu og var næstum kominn um koll, þegar hann rakst á fjórar stúlkur, sem gengu ^amhliða. Ó, hvað það var hrífandi! Hve hún naut þess að sitja hér og horfa á. Þetta var eins og á leiksviði. Það var nákvæmlega eins og á leiksviði. Hver gat trúað því að himinninn á bak við væri ekki málaður? En þegar mórauður kjölturakki trítlaði rólega út á göt- una og drattaðist síðan silalega hurtu eins og svo- lítill leikhúshundur, sem gefið hefur verið inn róandi 'yf, þá fyrst uppgötvaði ungfrú Brill, hvað það var, sem gerði þetta allt svo æsandi. Fólkið var allt á leik- sviðinu. Það var ekki einungis áhorfendur. Það var allt að leika. Hún hafði sjálf hlutverk, meira að segja, og kom á hverjum sunnudegi. Án efa hefð'i einhver veitt því athygli, ef hún hefði ekki verið þarna; hún var einn leikarinn, ef ölju var á hotninn hvolft. Und- arlegt, að hún skyldi aldrei hafa hugsað út í það fyrr. Og samt gaf það skýringu á því, hvers vegna hún lét sig það miklu skipta að leggja af stað að heiman á sama tíraa í hverri viku .. . eins og hún vildi ekki verða of sein á leiksýninguna — og það var einnig skýringin á því, hvers vegna hún var svo einkennilega 5

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.