Nýtt kvennablað - 01.01.1953, Page 10
Heimatilbúin sápa
2í/2 kg. feiti; y2 kg. vítissódi; 1^4 1. vatn.
Sódinn er leystur upp í köldu vatni, við það liitnar
upplausnin, látið kólna. Feitin brædd, síuð og síðan
kæld niður í ca. 20° C, eða þar til maður finnur að-
eins velgju er fingurinn er settur ofan í. Sódaupp-
lausninni, sem orðin er köld er hrært út í feitina og
hrært vel í þar til þykkt er orðið. Þá setjum við sáp-
una í grunnt ílát, t.d. ofnskúffu eða fat, sléttum sáp-
una að ofan og látum Iiana híða yfir nótt þá er hún
skorin í hæfilega stór stykki. Samlagist sápan ekki
er hún hituð upp að suðu og síðan látin kólna aftur
og hrært annarslagið á meðan. (Alla feiti má hafa
í sápu t. d. flot ofan af öllu soði, hro~safitu, lýsis-
afganga, og hafi feiti brennst má nota hana.)
Heimatilbúin sápa á að vera föst í sér og ljós, en
stundum vilja stykkiri gulna í rendurnar, er það þá
af því að fitan hefur ekki verið vel góð. Sápuna skal
geyma á vel þurrum stað og bezt að nota hana ekki
fyrr en eftir y2—1 mánuð.
Vegna íyrirspurna
Allt efni, ásamt stækkuðu mynztri með litaskýr-
ingum, í veggteppið, sem myndin var af í síðasta blaði,
kostar kr. 375.00. — Minna teppið, sem getið var um
kostar um kr. 300.00. Jafinn í páfuglinn, sem ætlað-
ur er í púða, kostar ca. 38 krónur, miðað við að tekið
sé yfir 2 þræði. Þeir sem ekki leggja í að sauma hann
í eðlilegum litum, sauma hann með einum lit, t.d. með
ljósgulu í dökkbláan eða brúnan jafa, eða hvítan.
Garnið kostar ca. 20 krónur. Ekki þarf að sauma um-
gjörðina frekar en hver vill — og vissulega getur hann
verið veggmynd.
Gáta
Tvær systur fæddust síðastliðið ár: Á sama stað. sama
dag, á sama tíma.Þær áttu sama föður og sömu móð-
ur ,en voru þó ekki tvíburar. Hvernig mátti það ske?
(RáSning í nœsta bláði).
★
Eflaust minni örgu lund
yrði það til bóta,
ef ég mætti eina ntund
ástar þinnar njóta.
Óþckkt stúlka.
TFL ALDURIINIGINS VINAR
Aldrei stunu uppi bar
eða volið jarðvistar.
Einatt skinið öðrum var
eins og ^ömlu stjörnurnar.
G.St.
8
UM FATAHREINSUN
Algengasta.og auðveldasta aðferðin við að hreinsa
föt er að þvo þau, en það er ekki nærri öll efni, sem
þola þvott og verður því að grípa til annarra ráða.
Algengast er nú að hreinsa föt með einhverjum kem-
iskum efnum t.d. benzíni o.fl. Öll föt óhreinkast mest
á vissum stöðum t.d. kraga, hálsmáli og ermum, en
þar að auki eru oft blettir í flíkum, sem komið liafa
af óhöppum. Sé svo að nauðsynlegt sé að hreinsa alla
flýkina er réttast að senda hana í hreinsun, ef tök eru
á því, en sé um smábletti að ræða er oftast auðvelt
að hreinsa þá í heimahúsum, þó getur það mistekist,
því að sum fataefni nú á dögum eru þannig að ó-
mögulegt er að hreinsa J)au, því þau þola ekki neitt.
Sjálfsagt er og nauðsynlegt að hreinsa óhappa-
blettinn strax, því ef þeir eru lengi í efninu festast
þeir og er þá illmögulegt að ná þeim úr. — Það er
NÝTT KVENNABLAÐ