Nýtt kvennablað - 01.01.1953, Qupperneq 12

Nýtt kvennablað - 01.01.1953, Qupperneq 12
geyma þau í vel lokuðum flöskum og þær svo aftur á góðum stað svo að börn nái ekki til þeirra. Föt má aldrei lireinsa í eldhúsi eða þar sem hætta er á að einhver eldhætta sé. — Blettirnir eru mjög mismun- andi eins og gefur að skilja og því mismunandi að- ferðir notaðar til að ná þeim úr. Fara nokkur ráð hér á eftir: \ Blekblettir: Blekbletturinn er fyrst þveginn úr volgu vatni, síð- an má reyna að ná honum úr með sítrónusýru, súr- mjólk eða smátt skornum rabarbara. Ef súrmjólkin er notuð verður oft að bítta um mjólk, eftir því sem hún litast, en ef notuð er sítrónusýra þarf að hella sjóð- andi vatni á blettinn annað slagið. Þessi efni notum við aðallega á mislitt tau. En til þess að ná blekblettum úr hvítu taui er bezt að nota kaliumpermangarrat (K Mn 04). Þetta efni fæst í apótekum sem rauðir kristallar og þarf því að Ieysa þá upp. 1/2 matskeið kaliumpermanganat er leyst upp í l/(> 1. af sjóðandi vatni. Þetta sett á flösku og geymist lengi, því að aðeins eru notaðir nokkrir dropar á hvern blett. Flíkin sem bletturinn er i á að vera hrein og vot. Bletturinn lagður yfir disk eða skál, nokkrir dropar af þessu efni settir á blettinn, eða þar til hann er alveg orðin rauður. Iátið híða í 5—10 mín. Þvegið úr volgu vatni og verður þá brúnn bletturinn eftir sem er riðblettur. I Riðblettir: Riðbletti er hægt að taka úr þvotti með sýrusalti. Sýrusalt fæst í apótekum sem hvítir kristallar og leysist upp í heitu vatni fyrir notkun. 3 matsk. sýru- salt og 1 1. sjóðandi vatn. Flíkin skal vera blaut og hrein. Séu fleiri en einn riðblettur eru þeir teknir sam- an í totur, þeim síðan difið ofaní upplausnina sem er alveg við suðu, en má ekki sjóða. Bezt er að hafa blettina á stöðugri hreyfingu í upplausninni þá losna þeir fyrr. Þegar riðbletturinn er farinn er flíkin skol- uð vel úr hreinu vatni. Riðblettum úr ekta mislitu taui er náð úr á sama liátt og úr hvítu taui, en á óekta mislít skal nota volga sýrusaltupplausn. f Ávaxtablettir: Til þess að ná úr nýjum ávaxtablettum er bezt að nota sjóðandi vatn. Flíkin er strengd yfir fat eða fötu, sjóðandi vatni hellt yfir, þannig að há buna myndast. Við þetta hverfur bletturinn oftastnær, en ef eitthvað er eftir hverfur það við þvott. Þetta er bezt að gera áður en fh'kin er soðin. Á sama hátt má ná kaffi og teblettum. Gamlír ávaxtabltttir eru teknir eins og blek- blettir með (K. Mn. 04) kalíumpermanganat og sýru- salti, séu þeir fáir, annars er flíkin bara lögð í blæ- vatn. Fitublettir. Til þess að ná fitublettum úr flíkum notum við benzín, einnig má nota kartöflumjöl. Flíkin sem hreinsuð er verður að vera þurr. Mjúkt stykki haft undir blettinum og mjúkur klútur hafður til að nudda benzíninu yfir blettinn, nuddið vel útlínur blettsins og nuddið þar til benzínið er allt gufað upp, ef þetta er ekki gert er hætt við að far komi í flíkina eftir benzínið. Á ljós efni má nota kartöflumjöl. Því er stráð yfir blettinn í þykkt lag, látið liggja dálítinn tíma, þá á að dusta mjölið af og ef eitthvert far er eftir þá að strjúka yfir það með benzíni. Málningablettir: Nýja málningu úr ullartaui er bezt að taka úr með benzíni, en það tau sem þolir þvott er smurt með grænsápu, látið bíða í 1 sólarhring og síðan þvegið og soðið á venjulegan hátt. — Þannig er t. d. bezt að fara með stafi sem ná þarf úr pokum. Líka má leggja þá í steinolíu yfir nóttina, þvo þá síðan og sjóða. Ef um gamla málningabletti er að ræða, skal fyrst bleyta blettinn í terpentínu, láta bíða um stund og taka síðan blettinn með benzíni, þoli efnið þvott er það þvegið. Rjóma og mjólkurblettir: Fyrst er farið með blettinn eins og ef um fitublett væri að ræða, en fari hann ekki með því móti, er hann nuddaður með volgu, soðnu vatni og strokinn þar til hann er þurr. jH' :- • V axblettir: Vaxið er skafið af efninu með volgum hníf, síðan er þerripappír lagður undir og yfir blettinn og straujað yfir með heitu járni. Þerripappírinn færður til eftir því sem hlettir koma á hann, svona er haldið áfram þar til vaxið er horfið og enginn blettur kem- ur á þerriblaðið. Sé einhver fitublettur eftir er hann tekinn með benzíni eða þvptti. Myglublettir: Þeir eru teknir eins og gamlir ávaxtablettir með K.Mn04 og sýrusalti eða með blævatni. Einnig má bleykja þá í sól. Er þá tauið breitt út á völl og látið liggja þanuig dálítinn tíma sé gott sólskin. S.Á. 10 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.