Nýtt kvennablað - 01.11.1953, Blaðsíða 11
manaðarkaup karla kr. 1830.00 (hvort tveggja grunn-
laun). Konur ná þar ekki einu sinni fullkomlega 2/3
af kaupi karla. Þó virðist hlutur kvennanna vera einna
lakastur á verzlunar- og viðski])tasviðinu. einmitt þar
sem segja mœtti, að auðveldast og eðlilegast væri að
koma við fullkomnum launajöfnuði .... Við venju-
lega erfiðisvinnu er kaup karlmanna hér í Reykjavík
samkvæmt taxta Verkamannafélagsins Dagshrúnar kr.
9.24 til kr. 12.00 á klst. eftir tegund vinnunnar (grunn-
kaup), en kaup kvenna samkvæmt samningi Verka-
kvennafélagsins Framsóknar kr. 6.60 til 6.90 á klst.
eftir tegund vinnunnar, eða nokkru hetur en 2/3 af
karlmannskaupi, miðað við þann vinnuflokkinn, sem
algengastur er.
•
Frumvarpið lofar miklu í garð kvennanna, allra er
vinnu stunda utan heimilis. Þætti Nýju kvennablaði
vænt um að þér kynntuð yður það og létuð bréflega í
ljósi álit yðar.
Krummi krunkar úti
Hver ætli verið til þess fyrstur að safna saman. i eina
bók, vísunum um hrafninn?
Við vorum að handleika ljóðabókina „Fósturlands-
ins freyja“, sem varð til upphaflega vegna draums,
er Kára í Víðikeri dreymdi. Dr. Guðmundur Fiun-
bogason lét drauminn rætast. Það rætist ekkert og ger-
ist ekkert í þessum efnum, nema menn láti það gerast.
„Fósturlandsins freyja“ er skemmtilegri heldur en
hvað hún úr útbreidd. Söknum við þó gamankvæðis
Arnar Arnarsonar um frú Hansen:
Þjóðleikhúsið sýnir„Sumri hailar“
Katrín Thors fór með
hið vandasama hlutverk
prestsdótturinnar.
Leiðiidegt og sorglegt er að vita stúlku vera á eftir
karlmanni, en það er uppistaða leikritsins „Sumri
hallar." Strax í barnaskóla verður prestdóttir hugfang-
in af skólabróður sínum, læknissyni, sem býr í næsta
húsi við hana, og hefur misst móður sína. Vakin og
sofin fylgist hún með tiltektum hans. Önnur verður
þó konuefnið, meðlætisbarnið, en mótlætið hennar
megin. Óvenjuleg eru úrslitin ekki, en bersögli er mik-
il: K’jufalegt hjartalag stúlkunnar og dýrslegt innræti
mannsins , meðferð leikaranna er afbragðs góð. Það
er bara spurningin, hvort það þarf að gera karlamnn-
inn svona svínslegan. Er það ávinningur fyrir nokk-
urn?
Eg geng um Eyrar, götur.
Æ, guð komi til Hvað er það,
sem skyggir á hálfan himininn?
Er það hattur eða hvað?
Nú, hér er ei neitt að hræðast!
Frú Ilansen er þar á ferð
með hatt, sem var keyptur i Kaupmannahöfn
og kostaði jarðarverð.
En heyrið þér mig, frú Hansen!
Er hátignarsvipurinn
líka keyptur í Kaupmannahöfn?
Hvað kostaði meterinn?
„Fósturlandsins freyja“ hefst á samnefndu kvæði,
eftir Matthías, og öll kvæðin í bókinni eru um konur,
en ekki ástaljóð. Sum þeirra jafnvel beztu kvæði okkar
l)eztu höfunda, en önnur eftir lítið þekkla ljóðasmiði
og er næsta einkennilegt að sjá jrennan skáldnhóp í
einni runu. Næsta draumbókin ætti að heita: Krummi
krunkar úti.
NÝTT KVENNABLAÐ
Infija ÞórSardóttir. •
Fyrsta vetrardag sýndi Þjóðleikhúsið hinn bráð-
skemmtilega gamanleik: Einkalíf. Vitanlega er ])að þó
leikur Ingu Þórðardóttur, sem veldur því, að hægt er
að segja svo. Hennar glettna augnaráð, svipbrigði og
léttleiki.
9