Nýtt kvennablað - 01.01.1954, Blaðsíða 3
NYTT
KVENNABLAD
15. árgangur.
1. tbl. janúar 1954.
Stjörnurnar
Hún vakti mig aj værum svefni.
Venus hét hún þá.
Kvöldstjarnanna nöjn ei 'nefni,
sem nóttin kveikti á.
Þœr voru fögur fyrirheil
um frið og sœld,
en áhrif þeirra á innra manninn
aldrei mœld.
Þœr fylgdu okkur stjörnurnar
um farinn, langan veg,
aldrei neitt sem út af bar
en ástúS fyllileg.
Samt kepptust menn að bola þeim
með brög&um frá,
breiSa fyrir gluggana
°g oyrgja þá.
Hættu að gcra á réltu og röngu mun,
reyndu á8 sefa hugáns sút.
— Svo skeði þaS af skœrri tilviljun
ég skyggndist út.
Skinu' ekki nema stjörnurnar,
alveg eins og var,
fátœkum og ríkum
til fagnaSar.
G. St.
Frú Georgía Björnsson,
fyrrum forsetafrú — sjötug
Fyrir skÖmmu síðan sátum við hjónin kvöldstund
í fremur lítilli stofu í Reykjavik og blöðuðum í göml-
um myndum, ásamt húsfreyjunni.
„Þessar eru frá Grikklandi — þessar frá ltalíu -r-
þessar frá Spáni — þessar frá Danmörku . .. ." og
]>annig hélt hún áfram að rekja sögur og minningar
frá fjarlægum stöðum, dre]>a á atburði, er tengdir
voru ýmsu því, er ísland og íslenzku þjóðina varðaði
hvað mestu á tímabilinu frá aldamótum til hinnar
síðari heimsstyrjaldar. Ekki voru þetta myndir frá
skemmtiferðum auðkýfings, er ferðaðist til þess að
láta tímann líða, heldur voru þær allar tengdar starfL
er unnið var af óþreytandi samvizkusemi og elju með
hag íslands fyrir augum.
Hvert sem auga er rennt um þessa slofu, slaðnæmist
það við kjörgripi — listaverk, minjagripi qg húsbún-
að, er aflað hefur verið víða um álfur. öllu er þar
hagað af þroskaðri smekkvísi.
NtTT KVENNABLAD
I