Nýtt kvennablað - 01.01.1954, Side 5
Ólöí lIHga S. Brekkan,
tannlu'knir.
María Sigurðardóttir,
viðskiptafræðingur.
Kristín Elísabet Jónsdóttir,
lu'knir.
merkur og hóf tannlæknisnám sitt þar í eitt ár, en
hvarf síðan heim og nam 4 ár við Háskóla íslands,
lauk ]>rófi 23. maí 1953. Hefur hún síðan verið áð-
stoðartannlæknir, fellur starfið mjög vel og hyggst
að halda því áfram.
Frú Elín gifli sig meðan á náminu stóð, 1951, Jóni
Ingimarssyni, lögfræðingi, og á hálfsannars árs gaml-
an son. En lét ekkert tefja sig frá settu marki.
Frú Ólöf Iielga S. Brekkan er dóttir Sigríðar Guð-
mundsdóttur og Sigurðar Hólmsteins Jónssonar. Varð
stúdent 1948. Innritaðist í Háskólann sama haust og
útskrifaðist tannlæknir 23. maí 1953.
Aðeins ein kona hafði útskrifast úr tannlæknadeild-
inni við Háskóla íslands á undan þeim Elínu og Ó1
öfu. Fimm kventannlæknar voru starfandi í Reykja-
vík, .þar af 3 íslenzkar, tvær þeirra lærðu erlendis. Nú
eru þeir þá orðnir sjö.
Frú Ólöf giftist 1950 Ásmundi Brekkan, lækni, og
á tveggja og hálfsárs gamlan son. En ekkert lengdi það
námstímann. Hún hyggst að stunda tannlækningar eft-
ir því sem henni verður unnt, frá heimilinu, fellur
starfið vel.
Ber frúnum saman um að tannlækningar séu erfilt
nám. Skólatíminn langur daglega, frá kl. 8 á morgn-
ana til kl. 4 á daginn og oft lengur. Verklega námið
er svo mikið. En mikið skal til mikils vinna.
Kristín Elísabet Jónsdóttir, læknir, f. 28/1 1927.
Foreldrar: Kristín Guðmundsdótlir og Jón Guðmunds-
son, fyrrv. bóndi á Hafrafelli, Eyr. N.-Is. Hún tók
stúdentspróf 1946 frá Menntaskólanum í Revkjavík.
Lauk embættisprófi í læknisfraíði voiið 1953, frá
Háskóla íslands.
María Sigurðardóttir er fædd 18/1 1928. Foreldrar
hennar eru: Þuríður Pétursdóttir og Sigurður Árna-
son. Hún lauk stúdentspófi úr Menntaskóla Reykja-
víkur vorið 1948. Byrjaði háskólanám ári síðar, eða
haustið 1949 og lauk embættisprófi í viðskiptafræði
vorið 1953. Hún er fyrsti kvenviðskiptafræðingur,
sem útskrifast frá Háskóla íslands.
Adda Bára Sigfúsdóttir,
veðurfræðingur.
Adda Bára er dóttir Sigríðar Stefánsdóttur og Sig-
fúsar Sigurhjartarsonar, f. 30/12 1926. Stúdentsprófi
lauk hún frá Menntaskólanum í Reykjavík 1946.
Fór til Noregs 1947 og lauk emhaittisprófi í veður-
fræði frá Háskólanum í Osló 1953. Hún er fyrsti ís-
lenzki kvenveðurfræðingurinn.
Nýtt kvennablað óskar öllum þessum miklu náras-
konum til hamingju með embættisprófið.
NÝTT KVENNABLAÐ
3