Nýtt kvennablað - 01.02.1955, Blaðsíða 3

Nýtt kvennablað - 01.02.1955, Blaðsíða 3
NÝTT KVENNABLAD 16. árgangur. 2. tbl. febr. 1955. Anna i.í Moidnupi: pí|agrímsferq fj| graíar Niglitiiigale og Síoney-Cross Einu lífverurnar, sem ég sá úti í þessu litla þorpi, voru tveir karlar, sem sátu og ræddu saman í sólskin- inu og nokkrir kettir, sem flatmöguðu í kringum hús, þar sem te var auglýst. Ég snéri þangað. Stór kona fremur óhrein kom hrosandi á móti mér. En þegar ég nefndi kaffi, hvarf brosið fyrir alvörusvip, því að hún hafði ekki neitt kaffi. Rétt neðan við brekkuna sá ég standa mjög voldugt veitirgahús. En að spyrja þar um kaffi var að fara í geitarhús að leita ullar. Ég spurði þá ofur mæðuleg, hvort að hvergi mundi vera hægt að fá kaffi þar í þorpinu. „Jú, líklega í gertahúsi Maríu. hcrna spölkorn lengra með veginum,“ sagði stúlkan, sem stóð í „barnum“ og skenkti tveimur mönnum freiðandi öl. Ég ske'ðaði á stað til hennar sankti Maríu minnar, því þaðan vænti ég mér nú alls þess góða í þessu þorpi eða þá, að ég skyldi ekki hafa neitt af því. Þarna stóð þá gestahús Maríu, á vinstri hönd við veginn, hvítt og yndislegt. umvafið þeim fegurstu og stærstu blómum, er ég hef augum litið. Þetta líktist mest undur-fögru ævintýri. Og þama kom María sjálf á mót'- mér, Þ'úf og björt eins og liliublóm. Kaffi skvldi ég sannaHega fá. Og hún leiddi mig til stofu, sem hafði hann vegginn næstum af tómu gÞri, sem út í blómarrarðinn snéri. Vart hafði ég komið á fegurri og friðsælli s?að, þar sem dauðlegum og svnd- ugum mönnum var ætlað að búa. Ég hafði heldur aldrei á æfinni sniakkað annað eins kaffi eins og hað, sem hún María mín kom nú með. Ég lét mig hafa að bið:a um tvo skammta. Ég var ekki komin heim og það var ekki víst að slíkt góðgæh yrði á vegi mínum fyrst um sinn. María mín þekkti fólk, sem hafði ferðast um ísland. og það harði látið hið hezta yfir öllu saman hjá okkur. Furðu létt í lund og kvik í spori lagði ég nú lrið mína gegnum himinháan furuskóg, sem liggur með- fram veginum milli Emery-Down og Stoney-Cross. Það vissi ég um þennan skóg, að furan hafði verið gróður- sett þarna fyrir 70 árum og að sumar fururnar voru sagðar að hafa náð 150 feta hæð. Þær báru nú líka við heiðbláan himininn. En það sá ég brátt, að lang hæstar voru þær í skjólinu í nágrenni Emery-Down. Ég var einasta manneskjan, sem rann þarna eftir veg- inum. En allt umhverfis mig var fullt af iðandi og suðandi lífi. Skógurinn ómaði af margrödduðum fugla- söng, baul: nautgripa, hneggi hrossa og allar mögu- legar raddir úr ríki náttúrunnar bárust að eyrum mér. Ég vissi að í skóginum bjuggu margs konar lífverur, svo sem svört svín og hirtir, sem þó eru þar orðnir fágætir. Ég hafði ekki dug í mér til þess að fara út af veginum og skyggnast um í skóginum, nema þá rétt utan við vegar röndina. Alls staðar voru brómberja- runnar og ég tíndi mér til matar á göngunni. Ég hugs- aði um það, hve gaman væri að leggjast út í New- Forest, dálítinn tíma í september, ef hægt væri að fá einhvern samhentan sér til félagsskapar. Það væri, gott að hafa aðsetur í einhverju þorpinu. En leggja upp í könnunarferðir að deginum til, því alls staðar er hægt að fá vagnferðir milli staða við og við. Mörg hús eru hér og þar um heiðina, það sá ég, því áður en langt leið varð skóglausl mér á vinstri hönd. Ég þóttist viss um, að ég væri senn komin til Stoney- Cross, bæði af því, að ég vissi að þangað voru tæpar

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.