Nýtt kvennablað - 01.02.1955, Qupperneq 12
þá á því þó kærastan mín kyssi mig,“ sagði Bensi.
Sigga kafroðnaði. „Ég vildi helzt að þú segðir engum
það,“ sagði hún lágt.
„Þú þarft hvorki að skammast þín fyrir að kyssa
mig eða óttast að ég segi frá því. Það er ekki annað
en það, sem öll kærustupör gera, að kyssast öðru hvoru.
Og þú mátt vera viss um að það verðum við einhvern-
tíma, raunveruleg kærustupör. Og vertu svo sæl, Sigga
mín. Hafðu það gott.“ Svo fór hann út hlæjandi.
Bína í Móunum mætii honum í dyrunum. Hún leit
oft inn til Siggu og sagði henni það markverðasta, sem
bar fyrir augu og eyru inn í Víkinni. Þar var hún í
vist og passaöi tvo l.tla krakka. Henni sár leiddist, en
það var þó mikil bót að fá að sofa heima hjá mömmu
sinni. Nú hafði hún þær fréttir að færa, að prófasts-
strákarnir væru komnir úr sveitinni. Þeim hefði leiðst
svo mikið. Svo höfðu þeir strítt Siggu Jónudóttur svo
mikið, að hún vildi ekki vera þar lengur. Nú væri hún
farin að salta fisk með mömmu sinni og væri heldur
vesældarleg, greyið litla. „Jæja,“ sagði Sigga. „Jóna
þarf þá 'ekki mikið að rausa yfir mínum vesældar-
hætti, fyrst Sigga hennar hljóp úr vistinni líka.“ Ilenni
þótti næstum vænt um þessar fréttir.
Svo leið að því, að Signý færi í sveitina. Hún ætlaði
með kúna með sér og Munda litla. Náttúrlega ætlaði
hún sér að vinna fyrir töðu handa kúnni, því maður
hennar var á sjónum ennþá og kæmi sjálfsagt ekki í
land til að fara í kaupvinnu, eins og hann var vanur,
því aflin var svo góður. Sigga var borin ofan að
Nausti. Þar var rúmiS hennar látið við gluggann. en
útsýnið var ekk: eins gott og í Bjarnabæ. Það sást ekki
inn í kaupstaðinn. Samt kunni hún vel við sig þar.
Eftir hálfan mánuðu var mamma hennar komin beim
aftur, hálfu armæðulegri en vanalega. Hún sagðist hafa
fundið, að hún væri engin manneskja til að standa á
blautum engiunum. Sér hefði liðið sæmilega meðan
unnið var heima á túninu. Svo hefðu krakkarnir verið
svo hlálegir við drenginn, að hún hefði hreint ekki
getað átt við þetta lengur. „Ekki spyr ég að dugnað-
inum og þrautsegjunni,“ heyrði Sigga að Þorbjörg
sagði við Hallfríði í Bakkabúð. Hún vissi, að hún var
að tala um mömmu hennar, en reiddist samt ekkert
við hana. Hún hafði verið henni svo góð og dekrað svo
við hana í mat, að hún hafði fitnað mikið. Hún var
borin heim að Bjarnabæ aftur, og nú stytti spegillinn
henni oftar stundirnar en í Nausti. Nú fóru dagarnir
að styttast. Hún hlakkaði til haustsins, þá kæmi pabbi
heim og sæti hjá henni og segði henni sögur. Hún var
búin að lesa allar bækur, sem Hallfríður í Bakkabúö
átti. ASrir áttu ekki bækur þar í nágrenninu. Pabbi
hennar átti eitthvað af riddarasögum, en hún hafði
Hildur Högnadóttir
Hefndin sat í öndvegi
og aldir liðu hjá.
Hildur Högnadóttir sat og horfði upp á.
Snemma rœnd að heiman,
en Högni sverði brá.
Hildur Högnadóttir sat og horfði upp á.
Á móti barðist Héðin,
svo hvinu eggjar blá.
Hildur Högnadóttir sat og horfði upp á.
I>au, fóstbrœðranna cinvígin
fleiri en telja má,
Hildur Högnadóttir sat og horfði upp á.
Er Kjartan henti sverðinu
og síðan veginn lá,
hún táraðist, hún Ilildur, og aldrei ncma þá.
Vfst kjarkmikil var I»orgerður
og kvcið ei hefndum ná.
Hildur Högnadóttir sat og horfði upp á.
Eagt gegnum Bolla sverðinu
og Guðrúnu sagt frá.
Hildur Högnadóttir sat og horfðl upp á.
Enn, kappann Helga Harðbcinsson
hirtinguna fá
Hildur Högnadóttir sat og horfði upp á.
Og sáran, Þorglls Hölluson
svikin goðans hrjá.
Hildur Högnadóttir sat og horfði upp á.
Síðu-Hall að lokum
fyr* sjónir hcnnar brá.
Eoksins Hildur Högnadóttir horfið gat frá.
Siður nýr f landi
og lftið til að sjá.
G.St.
litla skemmtun af þeim. I þeim voru bardagar og
manndráp. Það fannst henni bræðilegt. Einn morgun-
inn í hálfrökkrinu vaknaði hún við, að einhver kom
inn í baðstofuna og tautaði um, að hér væri þó bless-
aður vlur. Þetta var Jóna frænka. Hún hafði ekki litið
inn til systur sinnar allt sumarið. Signý kom inn með
vegglampa í hendinni. Jóna beilsaði systur sinni með
kossi. ,.Það or nýtt að sjá þig hér, Jóna mín,“ sagði
Signý ...Ó-já, ég sagði manni þínum það í sumar, að
ég skvldi ekki troöa bans heimili um tær á næstunni.
Við töluðum saman hérna inn í Víkurkróknum. Það
10
NÝTT KVENNABLAÐ