Morgunblaðið - 19.07.2009, Síða 29
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 2009
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELÍN ÓLÖF JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis
Miðtúni 3,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð sunnudaginn
12. júlí.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðju-
daginn 21. júlí kl. 13.00.
Helga J. Guðbrandsdóttir,
Kristín G. Guðbrandsdóttir, Reynir Gunnlaugsson,
Sigurður H. Guðbrandsson,
Guðmundur K. Guðbrandsson,
Jón I. Guðbrandsson, Lilja Þ. Tómasdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUNNAR PÉTURSSON,
Eyrarholti 6,
Hafnarfirði,
andaðist á St. Jósefsspítala aðfaranótt þriðju-
dagsins 14. júlí.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
22. júlí kl. 15.00.
Guðbjörg Helga Guðbrandsdóttir,
Jóhanna Valdemarsdóttir,
Númi Arnarson, Þóra Birna Ásgeirsdóttir
Helga Björg Arnardóttir, Andrés Björnsson,
Alexander Örn Númason.
✝ Birgitta Eng-ilberts fæddist í
Kaupmannahöfn 4.
nóvember 1934. Hún
lést á Droplaug-
arstöðum 28. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Tove Engil-
berts, f. í Kaup-
mannahöfn 14. jan-
úar 1910, d. 1. okt.
1995 og Jón Eng-
ilberts málari, f. í
Reykjavík 23. maí
1908, d. 12. febrúar
1972. Tvíburasystir Birgittu var
Amý Engilberts, hún er látin. Ár-
ið 1958 giftist Birgitta Jóhanni
Gunnari Halldórssyni hljómlista-
manni, f. 28. júní 1928, d. 2. júní
l996. Þau eignuðust eina dóttur,
Gretu Engilberts kennara og
förðunarfræðing, f. 20. apríl
vík ásamt foreldrum sínum við
mikið menningarlegt atlæti.
Birgitta lauk prófi í snyrti-
fræði frá Jean de Grasse 12.11.
1953 og meistaranámi í líkams-
nuddi sama ár. Útskrifaðist í
fótaaðgerð frá Fótaaðgerðar- og
snyrtistofu Fjólu Gunnlaugs 30.5.
1969. Meistarabréf í snyrtifræði
1986. Birgitta var stofnfélagi í
Félagi íslenskra snyrtifræðinga.
Hún var virkur félagi og sótti
fjölda námskeiða í faginu þ.á m.
Cidesco World Congress í Lond-
on 1973 og á Grikklandi 1975.
Árið 1979 sótti hún nám í Lond-
on hjá Eve Taylor professional
Beauty. Árið 1999 var hún gerð
að heiðursfélaga snyrtifræðinga,
fyrir að vera elsti starfandi fé-
lagsmaður.
Birgitta vann í 12 ár við nudd
á Gufubaðstofu Jónasar Halldórs-
sonar á Kvisthaga en lengst af
rak hún Snyrtistofu Birgittu að
Flókagötu 17.
Útför Birgittu fór fram 14. júli
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
1959. Þau skildu.
Greta er gift Guð-
mundi Hilmarssyni
flugstjóra hjá
Cargolux og eiga
þau tvö börn, Ellen
Engilberts, f. 1993,
og Jón Engilberts,
f. 1998. Fyrir átti
Greta dótturina
Birgittu Engilberts
kvikmynda-
fræðinema, f. 1986.
Birgitta giftist
ekki aftur en átti í
mjög nánum vin-
skap við Svein Björnsson listmál-
ara og lögreglumann eftir að
hann varð ekkjumaður og varði
það samband hátt á annan ára-
tug á meðan Sveinn lifði en hann
lést í apríl 1997.
Birgitta bjó lengst af í Engla-
borg að Flókagötu 17 í Reykja-
Ég minnist Birgittu, eða Biggu
eins og hún var oftast nefnd, á nán-
asta æviheimili hennar, „Englaborg“,
Flókagötu 17. Bigga er mamma
Gretu æskuvinkonu minnar og þær
mæðgur bjuggu þar með foreldrum
Biggu, þeim Tove og Jóni Engilberts
listmálara og er mér tamt að hugsa
um þau öll í einu. Englaborg var ólík
öðrum heimilum í Norðurmýrinni og
fyrir mér ævintýraheimur. Amma
Gretu var dönsk, afi Jón listmálari.
Þetta var hús málarans, hann var
með vinnustofu á efri hæðinni sem
gaf húsinu þann lit og ljóma sem hans
heittelskuðu mæðgur nutu til fulls.
Birgitta var með sína snyrtiaðstöðu í
kjallaranum.
Danska var að mestu töluð á heim-
ilinu og mikil kátína ríkti innanhúss,
tvíræðnin í fyrirrúmi og húmörinn
aldanskur.
Bigga var falleg kona, það geislaði
frá henni hlýja og glaðværð, og svo
var hún svo dásamlega rómantísk.
Það sem mér fannst svo sjarmerandi
við hana var að annað auga hennar
var blátt og hitt brúnt.
Eftir að Bigga og Gunnar slitu
samvistir flutti Bigga aftur heim í
Englaborgina með Grétu, Gulldrop-
ann, nafnið sem afi Jón gaf henni og
þau dekruðu við hana öll þrjú. Við
Gréta urðum góðar vinkonur því stutt
var á milli húsa í Norðurmýrinni ég
varð fljótt heimagangur í Englaborg-
inni. Bigga tók alltaf á móti mér bros-
andi og glöð, hældi mér á hvert reipi
og var eins og þær amma Tove hefðu
vart getað beðið þess að fá mig í heim-
sókn að spjalla við og veita góðgjörð-
ir. Svo skröfuðum við saman eins og
við værum allar á sama árinu. María
Callas var óperustjarna hússins og
hljómaði frá vinnustofu Jóns oft dag-
ana langa. Gestkvæmt var á heim-
ilinu, margir þjóðkunnir listamenn
komu í heimsókn. Fjölskyldan sótti
flesta listviðburði og lét fátt fram hjá
sér fara í leikhúslífinu. Og frá því að
Gréta gat staðið í fæturna var hún
tekin með. Fjölskyldan var mjög
samrýnd og Bigga var einstök dóttir,
hún bókstaflega lifði fyrir foreldra
sína og dóttur. Jón lést fyrir aldur
fram 1972. Þá tók Bigga yfir hússýsl-
una og varð móður sinni stoð og
stytta að geta haldið heimilinu áfram í
húsinu þeirra. Þær mæðgur héldu
sínu striki, sóttu listsýningar áfram,
fóru til Danmerkur og víðar um
heiminn. Hún hugsaði fyrir öllu að
gleðja mömmu sína og létta henni líf-
ið án Jóns. Tove gat ekki nógsamlega
lofað að eiga þær mæðgur að eftir að
Jón lést og geta fyrir þeirra tilstilli
búið í eigin húsi til endadægurs.
Bigga var í ástvinarsambandi við
Svein Björnsson listmálara hin síðari
ár. Hann var henni mikill og góður
vinur og félagi og varð henni harm-
dauði þegar hann lést árið 1997.
Tove lést 1995 og þá flutti Bigga úr
Englaborginni. Síðustu árin bjó hún í
Mýrarásnum til að geta verið nær
dóttur, tengdasyni og heittelskuðum
barnabörnunum, Birgittu, Ellen og
Jóni Engilberts.
Síðustu árin hefur Bigga átt við
heilsuleysi að stríða. Hún var búin að
skila sínu og kraftar hennar voru
þrotnir. Gréta er búin að reynast
mömmu sinni aðdáanlega vel. Þetta
mæðrasamband í þrjá ættliði var
bæði sterkt og einstaklega fallegt.
Ekki má ég láta ótalda artarsemi
þessarar góðu fjölskyldu í gegnum
tíðina, og á tyllidögum í lífi mínu
mundu mæðgurnar ávallt eftir mér.
Það er dýrmætt að eiga í minning-
anna sjóði þær móttökur sem mér
mættu á þessu einstaka heimili.
Blessuð sé minning Birgittu Engil-
berts.
Anna Margrét (Anna Magga).
Til móður minnar
Tek ég úr gleymsku myrkri, móðir,
minninganna spjöld,
það er eins og englar góðir
að mér svífi í kvöld,
ástar stjarna eilíf skíni
inn í myrkrið svart,
er sem kalinn hugur hlýni,
húmið verði bjart.
Man ég alla ástúð þína,
öll þín tryggðabönd,
yfir barnabresti mína
breiddirðu milda hönd,
stundum vil ég vera góður
vænsta yndið þitt.
Það er svo gott að eiga móður
sem elskar barnið sitt.
Hver þekkir mátt, er móðir veitir,
mild og kærleiksrík?
Allri sorg í unað breytir,
engin er henni lík.
Hvar finnst vinur hlýr, svo góður,
hjartans mýkja sár?
Hvað er betra en blíðrar móður
bros og hryggðartár?
(Kristján Jónsson frá Skarði.)
Við hittumst á ströndinni hinum
megin.
Þín dóttir
Greta.
Við fráfall Birgittu Engilberts,
tengdamóður minnar, langar mig að
setja hér niður nokkur kveðjuorð um
þessa sérstæðu konu, sem nú hefur
lokið sinni göngu með okkur, södd líf-
daga.
Ég kynntist Birgittu þegar leiðir
okkar Gretu lágu saman og ekki varð
aftur snúið, örlögin tóku völdin og vill
ég þakka henni þá gjöf sem örlögin
gáfu mér þá.
Birgitta talaði af mikilli hlýju um
bernsku sína, foreldra og vini. Hún
sagði vel frá atburðum sem markað
höfðu spor í lífi hennar. Hún bjó í
Kaupmannahöfn ásamt foreldrum
sínum þeim Tove og Jóni Engilberts
og systur til 6 ára aldurs. Í septem-
ber 1940 fór fjölskyldan með hópi Is-
lendinga í gegnum Svíþjóð og Finn-
land til Petsamo. Ástæðan var seinni
heimsstyrjöldin. Sú nöturlega ferð
stóð fram í nóvember. Siglt var heim
með Esjunni. Eflaust hefur sú ferð
markað spor í barnssálina.
Eftir heimkomuna til Íslands var
fljótlega farið í að byggja Englaborg
þar sem Birgitta bjó lengst af. Mikið
menningarheimili og fullt af ást og
hlýju en þá sögu hafa aðrir ritað. Út
hafa komið margar bækur um þetta
merka fólk þar á meðal „Hús mál-
arans“ eftir Jóhannes Helga og
„Eins manns kona“ eftir Jónínu
Micaelsdóttur.
Birgitta bjó alla tíð með Gretu
dóttur sinni í Englaborg og hefur
Greta oftsinnis talað um hversu rík
hún sé að hafa alist þar upp. Þar ríkti
gleði og ást og hefur það svo sann-
arlega skilað sér til barna okkar.
Eftir fráfall Tove flutti Birgitta
nær litlu fjölskyldunni í Árbænum,
þá voru komin til sögunnar börnin
okkar Birgitta, Ellen og Jón. Hún
var stolt af sínu fólki og elskaði skil-
yrðislaust og fór ég ekki varhluta af
því.
Þegar ég kynntist Birgittu var í lífi
hennar Sveinn Björnsson listmálari
og lögreglumaður. Þau voru glæsi-
legt par sem gaman var að vera með
og áttum við fjölskyldan margar góð-
ar stundir saman bæði heima og í
Krísuvík. Sveinn dó því miður fyrir
aldur fram og fannst mér tengda-
móðir mín aldrei verða söm eftir frá-
fall hans. Sveinn var börnum okkar
sem besti afi.
Birgitta var gæfukona um margt í
lífinu þó að stundum gæfi á bátinn.
Hún skilaði góðu ævistarfi í þágu
nudd- og snyrtifræðinnar sem er
skráð í þar til gerðar bækur.
Allra síðustu árin reyndust
tengdamóður minni nokkuð erfið á
köflum. Líkaminn var farinn að gefa
eftir og hin skarpa hugsun og minni
farið að daprast. Síðustu árin bjó hún
hjá okkur í Mýrarásnum og var það
okkur öllum til mikillar ánægju. Í
febrúar ágerðust veikindin og eftir
erfiða skurðaðgerð í á Landspítalan-
um átti hún ekki afturkvæmt heim og
fór í framhaldi til dvalar á Droplaug-
arstöðum þar sem hún andaðist 28.
júní sl. Þar var vel annast um hana og
viljum við aðstandendur þakka um-
hyggju og gott viðmót starfsfólksins
þar.
Nú er stígurinn á enda. Skarð er
hökkvið í okkar litlu fjölskyldu. Ég
vil þakka Birgittu, tengdamóður
minni, hjartanlega fyrir samfylgd-
ina.
Guðmundur Hilmarsson.
Í stofunni heima er fallegasta
mynd sem til er í heiminum, af þér,
elsku amma. Það er mynd sem afi
Jón teiknaði við ljóð Jónasar Hall-
grímssonar, þar sem þú, fallega
amma, kyssir þröstinn góða. Ljóðið
var uppáhalds ljóðið þitt og verður
nú líka okkar.
Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi ísa,
að fósturjarðar minnar strönd
og hlíðum.
Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins
ást og friði.
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum
fríðum.
Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!
Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf,
í peysu.
Þröstur minn góður, það er
stúlkan mín.
Nú flýgur þú á fund ástvina og
kyssir þröstinn góða. Við óskum þér
góðrar ferðar og hittum þig seinna á
ströndinni hinum megin ásamt fleiri.
Þín
Birgitta, Ellen og Jón.
Birgitta Engilberts
Ólafía Kristín
Jónsdóttir
✝ Ólafía KristínJónsdóttir (Lóa)
fæddist í Hafnarfirði
27. ágúst 1936. Hún
lést á Líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi 18. júní sl.. For-
eldrar hennar voru
Jón Halldórsson skipstjóri, f. 17.5. 1904,
d. 1.6. 1963 og Eggertína S. Sigurð-
ardóttir, f. 7.10. 1908, d. 3.2. 1979.
Systkini Ólafíu: 1) Sigrún Eydís, f. 26.5.
1931, maður hennar Pétur Ingason, þau
eiga tvö börn. 2) Guðrún, f. 15.10. 1934,
d. 8.6. 1975, maður hennar Ronald Le-
nahan (látinn), þau eignuðust tvær
dætur. 3) Þorsteinn Sævar, f. 6.11. 1947,
d. 23.3.2008. 4) Pétur Einarsson fóst-
urbróðir, f. 27.8. 1946, kona hans Ragn-
heiður Jónsdóttir, þau eiga þrjú börn.
Ólafía giftist 31.12. 1954 í Laugarnes-
kirkju Sigurði H. Sigurðssyni, f. 3.6.
1936. Foreldrar hans voru Sigurður
Kristjánsson listmálari, f. 14.2. 1897, d.
28.11. 2001, og Kristjana Bjarnadóttir, f.
3.9. 1910, d. 5.5. 2008. Ólafía og Sig-
urður eignuðust fjögur börn: 1) Jón
Halldór, f. 26.8. 1953, maki Margaret,
börn þeirra Alan Jón, maki Elaine, De-
rek Halldór og Anna Kristín. 2) Sveinn
Kristján, f. 15.8. 1958, maki Anne Mu-
riel, börn þeirra Kristján Stuart, dóttir
hans Sophie, Davíð og Jóhann Scott. 3)
Hulda Hreindal, f. 29.11. 1959, maki
Hannes Sölvi (skilin), börn þeirra Sig-
urður Örn, Hörður Heiðar og Ólafur
Kristinn. 4) Nína Björg, f. 11.3. 1969,
maki Flóvent, börn þeirra Aron og Al-
bert.
Útför Ólafíu Kristínar fór fram frá
Fossvogskapellu 25. júní í kyrrþey.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni til
Morgunblaðsins – þá birtist valkost-
urinn Minningargreinar ásamt frek-
ari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Greinar, sem berast eftir að útför
hefur farið fram, eftir tiltekinn skila-
frests eða ef útförin hefur verið gerð
í kyrrþey, eru birtar á vefnum.
Minningargreinar