Nýtt kvennablað - 01.12.1961, Síða 8
NYJASTA TÍZKA
(Hlý og falleg vetrarkápa)
*\vww\wwwvwv\\vw\vwwwww\wv\vwvvvwvwvw\\w\\vw\wwv\\vw\\w\\vwvvv\\\vvwvv
LEIÐRÉTTING
í greininni „Til Barðastrandar“, í síðasta blaði, er
vísa um Þingmannaheiði. Blaðið hefur fengið áminn-
ingu úr fleiri stöðum út af því, að fyrripartur vís-
unnar sé ekki réttur, og þar eð greinarhöf. baðst eftir
því að þetta yrði leiðrétt, en engir tveir aðsendir fyrri
helmingar vísunnar voru eins, leituðum við til dóttur
skáldsins, sem vísuna orti, frú Svanhildar Þorsteins-
dóttur. Og sagði hún, að móðir sín hefði kennt sér
hana þannig:
Þess eins bið ég Guð, ef ég á nokkra sál,
og ef hann vill tyfta hana í reiði,
að senda’ hana í ís eða bik eða bál,
en bara ekki á Þingmannaheiði.
OTSÖLUKONUR
Um leið og blaðið þakkar af alhug ykkar miklu fyr-
irgreiðslu og ómetanlega hjálj) til að ná til kaupenda,
óskar það eftir að janúar og febrúarblöö 1960 og 1961,
sem kynnu að liggja óseld, verði send afgreiðslunni í
Reykjavík, sem fyrst.
Nýtt kvennablaS, Fjölnisvegi 7, Rvík.
TVUIT PEYSA
tvœr mismunandi stœrðir.
Efni: 250—300 gr. dökkt garn — 200—250
gr. bvítt. Lykkjufjöldi jöfn tala.
Mynztur:
1. pr.: dökkt, prjónaður r.
2. pr.: dökkt, x 1 r. 1 patent (setja bandið yfir
vinstri pr. taka 1 1. sn. óprjónaða og samtímis lausa
bandið) endurt. frá x út prjóninn, enda á 2 1. r.
3. pr.: hvítt, 1 r. x 1 sn. 1 patent (prjóna nú lykkju
og band saman) endurt. frá x, enda á 1 r.
4. r.: hvítt, 2 r. x 1 patent, 1 r. endurt. frá x út
prjóninn.
5. pr.: dökkt, 1 r. x I patent, 1 sn., endurt. frá X,
endar á 1 r.
6. pr.: dökkt, x 1 r., 1 patent, endurt. frá X,
endar á 2 r. — Prjóna næst 3. pr., og koll af kolli
4. 5. og 6. pr. Þessir fjórir prjónar síendurteknir.
Bak: Fitja upp 80—88 1. með dökku garni á pr.
nr. 31/2 og prjóna 4 cm. snún. 1 r. 1 sn. Skipta um
pr., taka nr. 41/£ og byrja á mynztrinu. Fækka með
jöfnu millib. um 14 1. á prjóninum (66—74).
bakið mælist 14 cm. er 1 I. aukið í hvoru megin
6. hvern cm. þrisvar sinnum. Er það er 34—37 cm.
felldar af 2 1. hvoru megin, þá tekin úr 1 1. hvoru megm
á hverjum ])r., þrisvar sinnum, eftir það alltaf annan
hvorn og þriðja hvorn prjón til skiptis unz 16—18 L
eru eftir. Þær geymdar á þræði.
Framst.: Fitja upp 80—90 1. með dökku, prjóna
Frarahald á 13. siðu.