Morgunblaðið - 30.07.2009, Blaðsíða 43
Menning 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2009
Söluaðilar AGA Gasol:
SELFOSS: Vélaverkstæði Þóris, s. 482 3548
SAUÐÁRKRÓKUR: Byggingavörudeild KS, s. 455 4626
REYÐARFJÖRÐUR: Heildverslunin Stjarna, s. 474 1114
ÍSAFJÖRÐUR: Þröstur Marsellíusson hf., s. 456 3349
AKUREYRI: Sandblástur og málmhúðun hf., s. 460 1515.
* Kópavogsbraut 115, Kópavogi
IS
A
-3
5
2
–
ÍD
E
A
g
ra
fí
sk
h
ö
n
n
u
n
Heimsendingarþjónusta
FRÉTTIR af Michael Jackson
verða bara skrítnari og skrítnari eft-
ir því sem lengra líður frá dauða
hans. Fyrir skemmstu var greint frá
því að poppkóngurinn hefði fyrir
löngu misst nef sitt og neyðst til
þess að ganga með gervinef síðast-
liðinn áratug. Nú birtir fréttastofa
Adweek þá undarlegu frétt að skart-
gripasamsteypan LifeGem í Chi-
cago ætli sér að setja á markaðinn
demanta sem gerðir eru úr hári
poppkóngsins. Þannig geti aðdá-
endur Jacksons eignast skartgripi
sem innihaldi DNA-kóða popp-
kóngsins.
Hárið sem verður notað í demant-
agerðina var fengið af tökustað
Pepsi-auglýsingarinnar þar sem
söngvarinn lenti í slysi fyrir um
tveimur áratugum þegar sviðs-
sprengja kveikti í hári hans. Fram-
leiðandi auglýsingarinnar John
Reznikoff stal hárinu á sínum tíma
og hefur geymt það alla tíð.
Fyrirtækið hefur áður skapað
demanta úr hári frægra einstaklinga
en árið 2007 gaf það út demantalínu
er gerð var úr hári Beethovens.
Fyrirtækið safnar hári úr látnu
frægu fólki og gerir úr demanta.
Þannig segja talsmenn fyrirtækisins
að þeir eigi á lager hár úr Abraham
Lincoln, Albert Einstein og Marilyn
Monroe.
Michael Jackson Óvenjulegur í
dauða sínum sem og í lifanda lífi.
Hári Jack-
sons breytt í
demanta
HRYLLINGSROKKARINN Mari-
lyn Manson hótaði á bloggi sínu að
myrða þá tónlistarblaðamenn er
dirfðust að birta lygasögur um sig.
Þar sagðist hann ekki þurfa að
verja sig gegn slúðri en hótaði þó að
mæta óboðinn heim til þeirra blaða-
manna er skálduðu um hann sögur
og myrða þá. Hann hvatti einnig
aðdáendur sína til þess að refsa því
fjölmiðlafólki sem skrifaði um hann
lygar. Bloggið kom í kjölfar viðtals
er birtist við hann í LA Weekly þar
sem því var haldið fram að Manson
væri háður kókaíni.
„Ef einn eða fleiri „blaðamenn“
skrifa yfirlætislegar fullyrðingar um
mig eða hljómsveit mína, mun ég
persónulega, eða með aðstoð aðdá-
enda, mæta heim til þeirra bara til
þess að leiða í ljós hversu mikið þeir
trúi á málfrelsi. Ég mana ykkur alla
til að skrifa einn hlut í viðbót um mig
sem þið þorið ekki að segja beint við
mig. Því ég mun neyða ykkur til þess
að segja það. Að því leyti er þetta
hótun.“
Gott að hann skilur ekki íslensku.
Hótar að
myrða
blaðamenn
Marilyn Manson Sagt er að væni-
sýki fylgi kókaínfíkn.
KVENNAGULLIÐ Leonardo DiCaprio daðr-
aði við Ashley Roberts úr Pussycat Doll á al-
þjóðlegum pólódegi í Windsor á sunnudag-
inn var og skemmtu þau sér saman í London
á eftir.
Eftir pólóleikinn var partí á næturklúbbi í
London og þar var DiCaprio umkringdur
fögrum fljóðum. Hann eyddi háum upp-
hæðum í kampavín handa aðdáendunum en
virtist þó hafa mestan áhuga á að tala við
Roberts.
DiCaprio hefur dvalið í London und-
anfarið og í síðustu viku sást til hans og
leikkonunnar Cameron Diaz njóta góðra
stunda saman á einum bresku klúbbanna.
Þau drukku saman kampavín og virtist líða
vel í návist hvort annars.
Umkringdur fögrum fljóðum
Leonardo DiCaprio Ashley Roberts Cameron Diaz
Reuters