Morgunblaðið - 14.08.2009, Qupperneq 18
Afgerandi Hægt er að leika sér
endalaust með þessa klippingu.
Smá lengd í hliðunum og topp-
urinn rokkaður.
Möguleikar Þessi herraklipp-
ing býður upp á bæði dag- og
kvöldgreiðslu. Hægt er að
gela hárið vel aftur að kvöldi
en hafa greiðsluna sportlegri
á daginn. Toppurinn er frekar
síður sem eykur möguleikana.
Dökkt Allir hárlitir
ganga í haust.
Margar vilja litina
náttúrulega en aðr-
ar hafa þá meira af-
gerandi.
Fjölbreytni Síðan topp
má greiða fram á enn-
ið jafnt sem aftur.
ORÐATILTÆKIÐ að vera mjúkur maður hefur
öðlast nýja merkingu undanfarin misseri því nú
er vinsælt að vera mjúkur jafnt að innan sem
utan. Karlmenn á öllum aldri flykkjast bók-
staflega á snyrtistofur til að láta fjarlægja lík-
amshár. Hárin sem körlum finnast óæskileg eru
yfirleitt á bringu, baki, í kringum og á kyn-
færum og jafnvel rassi, þ.e. hið margumtal-
aða brasilíska vax. Vaxmeðferðirnar eru
sérstaklega vinsælar á sumrin enda vilja
þá margir geta fækkað fötum og sýnt
hárlausan (og stundum stæltan) líkam-
ann.
Fræga fólkið hefur væntanlega gefið
tóninn, ekki stingandi strá sést á bringu
flestra leikara, sérstaklega þeirra
yngri, svo halda mætti að stökkbreyt-
ing hefði átt sér stað milli kynslóða. En
skýringin felst annars vegar í tísku-
straumum og hins vegar í því að hár-
eyðingarmeðferðir eru orðnar mun
aðgengilegri og þægilegri.
Frábært að fjarlægja
„Hárvöxtur hefur í gegnum tíðina
farið fyrir brjóstið á mörgum karl-
mönnum en nú finnst þeim frábært að
geta fjarlægt hárin með þeim árangurs-
ríku meðferðum sem í boði eru,“ segir
Erna María Eiríksdóttir, snyrtimeistari á
snyrtistofunni Verði þinn vilji.
Vax á baki er langvinsælasta meðferðin
en sífellt fleiri kjósa hárlausa bringu.
Erna María segir vaxið ekki lengur
feimnismál hjá körlum. Þeir fari sumir í
fyrstu meðferðina þegar verið er að steggja þá
og halda svo áfram að koma reglulega eftir
það.
„Þeir koma sjálfir, það eru ekki kærustur eða
eiginkonur sem senda þá,“ segir Erna María.
Glansandi bringa og bossi
„Þeir eru alls ekkert feimnir við að koma. Hár-
eyðingin er orðin hluti af þeirra líkamsumhirðu
og ekkert til að skammast sín fyrir.“
Fyrsta vaxmeðferðin getur verið nokkuð sárs-
aukafull. Annað skiptið er strax mun þægilegra.
Einnig er boðið upp á súkkulaðivax sem er ekki
eins sársaukamikið og venjulegt vax. Súkkulaðið
er helst notað á viðkvæmari svæði, eins og í
kringum kynfæri. „En við notum súkkulaðivaxið
mikið á karlmenn, sérstaklega þá sem eru að
koma í fyrsta skipti,“ segir Erna María. Hún tel-
ur að tilkoma súkkulaðivaxins hafi snaraukið
áhuga karlmanna á háreyðingu – einmitt vegna
þess að sársaukinn er minni.
Til að halda líkamanum hárlausum er gott að
fara í vaxmeðferð á 4-6 vikna fresti. Margir kjósa
þó að fara mun sjaldnar í meðferð.
Vaxmeðferð á baki eða bringu tekur um 15-20
mínútur og kostar á bilinu 2.500-5.500 kr.
Brasilíska vaxið tekur um 30 mínútur og kost-
ar á bilinu 5.000-8.700 kr.
www.vilji.is
Vaxmeðferð endist mun betur en rakstur því
hárin eru tekin með rótum.
Ekki þykir sérstaklega sexí þegar hárbroddar
eftir rakstur fara að sjást á bringunni eða baki.
Meiri kláði og jafnvel kláðabólur geta fylgt
rakstrinum.
Vaxmeðferð hægir á hárvexti og hárin sem
vaxa aftur eru mýkri en eftir rakstur.
Vax eða rakstur?
18 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
Slekkurðu á útvarpinu þegar ástar-
lögin hljóma? Sendirðu fyrrverandi
stanslaust sms og tölvupóst? Ertu
að því komin/kominn að njósna um
ferðir hans/hennar? Æfirðu stöðugt
í huganum hvað þú myndir segja ef
þú rækist á hann/hana af tilviljun?
Og ef það gerist fer allt í handa-
skolum, þú segir ranga hluti og end-
ar á barmi taugaáfalls?
Vanti þig hjálp við að vinna hjarta
þíns eða þinnar fyrrverandi aftur er
lausnina hugsanlega að finna á
vefnum wantmyexbacknow.com (ég
vil minn/mína fyrrverandi aftur ekki
seinna en strax). Þar er kynnt bókin
The Magic of Making up. Höfund-
urinn, T.W. Jackson, er fyrrverandi
hermaður sem býr yfir ýmsum
kænskubrögðum.
Jackson fullyrðir að næstum öll-
um samböndum sé hægt að bjarga.
Aðeins þurfi að nálgast viðfangs-
efnið á ákveðinn hátt: Með því að
vera með pottþétta áætlun. Fyrsta
skrefið sé að koma sjálfri þér/
sjálfum þér í jafnvægi. Það er ekk-
ert sérlega aðlaðandi að bresta í
grát eða hrópa í hvert sinn sem sá
eða sú fyrrverandi birtist. Hitt sé
síðan barnaleikur.
Fróðleg heimasíða
Að vinna hjarta
þíns fyrrver-
andi aftur
Breakbeat.is heldur „All Nighter“-
tjútt á Jacobsen í kvöld þar sem fjöl-
margir tónlistarmenn og plötusnúðar
koma fram. Dagskráin hefst á efri
hæð Jacobsen um miðnætti með tón-
leikum hljómsveitarinnar The Zuck-
akis Mondeyano Project en að þeim
loknum taka Leópold og Ewok við í
house- og groove-fíling fram eftir
nóttu.
Á neðri hæðinni verða bumbur,
bassar og brotnir taktar að hætti
Breakbeat.is. Fastasnúðar Break-
beat.is sjá ásamt góðum gestum
um að kokka fram úrvals dubstep-
og drum&bass-tóna.
Aðgangur er ókeypis.
Tónleikar á Jacobsen
Tjútt í alla nótt
Risastórt 90’s
partí með DJ Kiki-
Ow og DJ Curver
verður haldið á
Nasa við Aust-
urvöll annað
kvöld.
Síðastliðin
fjögur ár hafa
plötusnúðarnir
Kiki-Ow og Curver haldið sín vinsælu
90’s partí og kvöldin þeirra hafa ver-
ið gríðarlega vel sótt. Þeir sem vilja
dansa ættu endilega að skella sér í
rave-gallann á morgun og fara á Nasa
því þar verður pottþétt dansstuð.
Stuðið hefst klukkan 1 eftir mið-
nætti og er 20 ára aldurstakmark.
Miðaverð er 1.500 kr., miðasala er á
www.midi.is og í verslunum Spútnik.
Útvarpsstöðin FM957 verður með
sérstakan 90’s dag á morgun í tilefni
partísins á Nasa.
Dans, dans, dans
90’s partí á
morgun
Hvað viltu lesa? Sendu okkur
tölvupóst á daglegtlif@mbl.is
Því er haldið fram að
maður eigi ekki að
dæma bók eftir
kápunni, fólk eft-
ir útliti og gjafir
og því um líkt eftir
umbúðunum. Þetta er góð speki þótt ekki megi
hunsa þær ótvíræðu vísbendingar sem þetta gef-
ur: Bók með mynd af þrýstnu pari í faðmlögum á
kápunni er jú sennilega ástarsaga og sæt stúlka
er sennilega ofboðslega skemmtileg og með frá-
bæran persónuleika. Mjúkir pakkar sökka.
Fara verður varlega í að draga ályktanir af kápum, útliti og
umbúðum. Það er mjög ergjandi að vera dreginn afdráttarlaust
í dilk eftir þessu og öðru, til dæmis fatavali eða stjórnmálaskoð-
unum. Fólk er oft afgreitt í einu vetfangi án annarra sönn-
unargagna: „Já, þú ert svona týpa.“ Óþolandi. Alveg.
Sjálfum finnst mér verst að vera dæmdur eftir tónlist-
arsmekk. Ég poppa ekki E þótt ég hlusti á Daft Punk og
bryð ekki Zoloft þótt ég hlusti á Nick Cave. Ég er ekki
alltaf rammskakkur þótt ég hlusti á Dylan. Þaðan af
síður laðast ég að körlum þótt ég hlusti á Pál Ósk-
ar eða ræni kaupmanninn á horninu þótt ég
hlusti á NWA. Fráleitt er að telja mig meðlim
Ku Klux Klan þótt Lynyrd Skynyrd rati endr-
um og eins í spilarann.
Dilkadráttur með þessum hætti er ekki af
hinu góða. Hann er einföldun einfeldningsins á flóknu og
gjarna áhugaverðu fólki í margslungnum heimi. Aukinheldur
eykur þessi hugsunarháttur hleypidóma hjá okkur þröngsýni
og rýrir ánægju okkar af öðru fólki. Notum höfuðið, sjáum
heildarmyndina.
Á föstudegi Skúli Á. Sigurðsson
’Fráleitt er að teljamig meðlim Ku Klux
Klan.
Hárlaus
Hægt er að
spegla sig í
bringunni á
leikaranum
Ryan Rey-
nolds.