Morgunblaðið - 14.08.2009, Síða 24
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
Fleiri minningargreinar um Þór-
arinn I. Ólafsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝ GuðmundurMagnússon bygg-
ingameistari fæddist í
Reykjavík 3. mars
1927. Hann lést á
Akranesi 31. júlí
2009. Foreldrar hans
voru hjónin Magnús
Ásbjörnsson bifvéla-
virki í Reykjavík, f. á
Akranesi 1901, d.
1963, sonur hjónanna
Ásbjörns Sigurðs-
sonar og Sigríðar
Helgadóttur, og Ingi-
björg Guðmunds-
dóttir húsfreyja á Akranesi, síðar í
Kaupmannahöfn, f. á Akranesi
1904, d. 1983, dóttir hjónanna Guð-
mundar Hanssonar trésmiðs á
Akranesi og Marsibilar Þ. Gísla-
dóttur. Systkini Guðmundar eru
Garðar P. vélstj., f. 1924, d. 4. 1991,
Ásbjörn bifreiðastj., f. 1925 og Est-
her R., húsfreyja í Þýskalandi, f.
1928. Þegar Guðmundur var 2ja
ára var honum komið í fóstur til
afasystur sinnar, Valgerðar Hans-
dóttur, en þar bjó fyrir móðursystir
hans Hansína Guðmundsdóttir.
Guðmundur ólst upp hjá Valgerði
til 17 ára aldurs.
Guðmundur kvæntist 8.4. 1950
Ástríði Þóreyju Þórðardóttur, f. á
Akranesi 8.3. 1929. Foreldrar
hennar eru hjónin Þórður Þ. Þórð-
arson, bifreiðastj. og framkv.stj. á
Akranesi, f. á Leirá í Leirársveit
1899, d. 1989 og Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. á Sólmundarhöfða í
Innri Akraneshreppi 1910. Börn
Guðmundar og Ástríðar eru: 1)
Emil Þór, f. 28.4. 1956, maki Guð-
björg Kristjánsdóttir. Börn þeirra
eru Telma Kristín, Viktor Orri og
Sara Margrét. Fyrir átti Emil Þór:
a) Guðmund, móðir Hjördís Sím-
onardóttir, unnusta Þóra Sigríður
Torfadóttir, dóttir þeirra er Sædís
Heba, Guðmundur átti fyrir Emil
Þór, b) Melissa Ástríður, móðir
Auður Matthíasdóttir, unnusti Jón-
as Pétur Ólason, þeirra dóttir er
Tinna Diljá, og c) uppeldissonur
Símon. Áður átti Guðbjörg Kristján
Örn. 2) Sigríður, f. 19.4. 1958, maki
Gunnar Sigurðsson. Börn Sigríðar
og Páls I. Pálssonar eru: a) Guð-
mundur Þór, unnusta Fanney Ýr,
börn hans eru Andri Már og Embla
Sól og fyrir á Fanney
Ísabellu Ýr. b) Páll
Indriði, unnusta Anna
Kvaran. c) Maríanna,
unnusti Kári Daní-
elsson, dóttir þeirra
Karen. Fyrir átti
Gunnar börnin Ellu
Maríu og Örn. 3) Ingi-
björg, f. 13.6. 1963,
maki Jón B.G. Jóns-
son. Börn þeirra eru
a) Ástríður Þórey,
unnusti Sveinn Ómar
Sveinsson, b) Unnur
Tara, unnusti Roni
Leimu, og c) Heiðrún Hödd. Sonur
Ingibjargar og Óla Páls Engilberts-
sonar er Óli Ingi, unnusta Elsa
Birgisdóttir, og fyrir á Jón Hlyn. 4)
Þórey Guðmunda, f. 3.1.1969, maki
Leifur Eiríksson. Börn þeirra eru
Hildur María, Magdalena Sara, og
Eiríkur Alexander. Fyrir átti Leif-
ur Kristófer Júlíus.
Samvist þeirra Guðmundar og
Ástríðar náði yfir 64 ár. Guð-
mundur nam húsasmíði hjá Jóni
Guðmundssyni frá Guðnabæ, og
varð í framhaldi af því húsasmíða-
meistari. Hann teiknaði og byggði
sér einbýlishús á lóð sem nú heitir
Suðurgata 99. Guðmundur 23 ára
og Ástríður 21 árs fluttu í nýtt hús-
ið fullgert á brúðkaupsdaginn
þeirra og bjuggu á þar í 45 ár.
Hann var frumkvöðull á mörgum
sviðum byggingatækni og mann-
virkjagerðar á Akranesi. Byggði
sér iðnaðarhús við Stillholt 21, og
rak þar trésmíðaverkstæði og
byggingastarfsemi, Trésmiðju
Guðmundar Magnússonar í 44 ár,
einnig Byggingavöruverslun Akra-
ness, og Skagaplast, framleiddi
steinsteypu og rak útgerð vinnu-
véla og vörubifreiða. Guðmundur
byggði á annað hundrað íbúða á
Akranesi og útskrifaði 39 sveina í
húsasmíði. Hann var einn af stofn-
endum Golfklúbbs Akraness síðar
Golfklúbbsins Leynis, í Bygging-
arnefnd Akraneskaupsstaðar og fé-
lagi í Oddfellowstúkunni nr. 8 Eg-
ill.
Guðmundur verður jarðsunginn
frá Akranesskirkju í dag, föstudag-
inn 14. ágúst, og hefst athöfnin kl.
14.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku pabbi.
Þetta gerðist allt svo ótrúlega
hratt. Það liðu aðeins sex vikur frá
þú greindist með illvígan sjúkdóm
þar til þú varst dáinn. Þú sem varst
svo heilbrigður bæði á sál og líkama.
Ég er samt þakklátur fyrir að hafa
verið þér við hlið með mömmu þegar
þú kvaddir.
Ég trúi því að hinum megin taki
vel á móti þér þeir ástvinir sem á
undan eru farnir, amma Ingibjörg,
afi Magnús, afi Þórður á Hvítanesi,
Aage Emil og Þórður frændi. Mig
grunar að þú sért þegar byrjaður að
skoða þig um, athuga að hverju megi
dytta og hvort ekki megi laga eitt-
hvað.
Ég minnist þín sem dugnaðar-
forksins og frumkvöðulsins, sem
teiknaðir og reistir þér einbýlishús
við Suðurgötuna og fluttir inn í það
aðeins 23 ára gamall, á giftingardag-
inn ykkar mömmu þann 8. apríl árið
1950. Á Suðurgötunni bjugguð þið
mamma síðan í 45 ár. Þú teiknaðir
einnig og byggðir þér stórt iðnaðar-
hús við Stillholt á Akranesi fljótlega
eftir að þú kláraðir nám þitt í húsa-
smíði hjá Jóni í Guðnabæ. Þú stofn-
aðir Trésmiðju Guðmundar Magn-
ússonar í iðnaðarhúsinu þínu, og
síðan eftir að hafa tvöfaldað stærð
þess húss nokkrum árum seinna þá
stofnaðir þú Byggingavöruverslun
Akraness, þaðan sem þú seldir
byggingarefni um allt land og enn
nokkrum árum seinna stofnaðir þú
fyrirtækið Skagaplast sem fram-
leiddi einangrunarplast til bygginga.
Þessi fyrirtæki voru öll rekin undir
sama þaki við Stillholtið í 44 ár.
Á meðan þú varst að læra húsa-
smíðina þá keyrðir þú einnig leigubíl
og ótrúlegt til þess að hugsa að þú
hafir á sama tíma verið að byggja
húsið ykkar við Suðurgötuna, eng-
inn tími fór til ónýtis. Draumur þinn
var að fara til Danmerkur og læra
arkitektúr eða tæknifræði en senni-
lega hefurðu bara ekki mátt vera að
því, naust þess að gefa framtaks-
seminni lausan tauminn og þú hlífðir
þér hvergi í því að byggja upp þín
fyrirtæki. Eftir eldsvoða sem varð á
Stillholtinu árið 1966 þar sem allt
brann til kaldra kola byggðir þú allt
upp aftur og enn stækkaðir þú allt
iðnaðarhúsið, nú í þriðja sinn.
Meðan þú rakst byggingafyrir-
tæki þitt þá tókstu að þér nema í
húsasmíði og samtals urðu nemarnir
hjá þér 39. Þú teiknaðir og byggðir
einnig fjölda bygginga og íbúða á
Akranesi, nokkur húsanna sem þú
byggðir eru kennileiti á Akranesi
eins og Íþróttahúsið við Vesturgötu,
Landsbankahúsið við Skuldartorg
og fleiri ótalin hús sem bera þér
vitni um þá vandvirkni sem þér hafði
lærst.
Þú varst einn af stofnfélögum
Golfklúbbs Akraness sem síðar
hlaut nafnið Golfklúbburinn Leynir
og þú gerðist einnig félagi í Odd-
fellowreglunni, í stúku nr. 8: Egill.
Eftir að mesta annríkinu lauk
byggðir þú ykkur mömmu sælureit
uppi í Stóra Fjalli, þar sem þið
dvölduð oft, stundum langdvölum.
Þú og mamma elskuðuð að eyða
sumrinu saman þar og á veturna
voruð þið oft bara tvö á svæðinu,
sitjandi fyrir framan arininn á köld-
um vetrarkvöldum, alltaf jafn ást-
fangin, rétt eins og þið hefðuð bara
kynnst í gær.
Elsku pabbi, þakka þér fyrir allt
Guðmundur
Magnússon ✝ Þórarinn Ingi-bergur Ólafsson
fæddist í Grindavík
24. ágúst 1926. Hann
lést á dvalarheimilinu
Víðihlíð 4. ágúst sl.
Hann var sonur
hjónanna Helgu Þór-
arinsdóttur hús-
móður, f. 6.7. 1903, d.
27.5. 1989, og Ólafs
Jónssonar sjómanns í
Hraunkoti og
Bræðratungu í
Grindavík, f. 24.1.
1897, d. 10.10. 1954.
Alsystkin Þórarins eru Hulda Sig-
ríður, f. 20.8. 1927, Guðmundur, f.
22.10. 1928, Guðbergur Hafsteinn,
f. 20.9. 1929, Jóna Sólbjört, f. 17.4.
1932, Aldinía Ólöf, f. 23.7. 1934,
Helgi Óli, f. 19.11. 1936, Sigurður
Ragnar, f. 2.2. 1951, og hálfbróðir
Albert Egilsson, f. 13.06. 1923, d.
16.11. 1953.
Hinn 1.1. 1950 kvæntist Þórarinn
Guðveigu Sigurlaugu Sigurð-
ardóttur frá Bjarnabæ í Garði, f.
9.12. 1931, dóttur Sæunnar Bjarn-
veigar Bjarnadóttur, húsfreyju í
Grindavík, f. 17.6. 1911, d. 6.8. 1981,
og Sigurðar Magnússonar, verk-
stjóra í vegavinnu, Reykjavík, f. 6.9.
1983, d. 10.1. 1976.
Börn Þórarins og Guðveigar eru
1) Sævar Baldur, f. 21.6. 1950, sam-
býliskona Edda Axelsdóttir. Börn
Sævars og Ragnhildar Guðjóns-
dóttur, sem er látin, eru Gunn-
1965 tók hann svo við nýjum bát,
Þorbirni II, sem hann var með í tvö
ár. 1967 keypti hann 220 tonna bát,
Eldborg frá Hafnarfirði, sem var
gefið nafnið Albert GK 31. Bátinn
keypti hann í félagi við Helga, bróð-
ur sinn, og Helga Hjartarson. Hluta-
félag um útgerðina hlaut nafnið
Þróttur. Næstu árin var hann að
jafnaði aflahæstur og mestan afla á
einni vertíð fékk hann 1.604 tonn í
68 sjóferðum. Árið 1972 seldu Þór-
arinn og félagar hans bátinn og
keyptu annan, Birting frá Neskaup-
stað, sem hlaut einnig nafnið Al-
bert. Þórarinn keypti síðan hlut
meðeigenda sinna. Auk hefðbund-
inna vetrarvertíða stundaði Þór-
arinn veiðar á síld og síðar loðnu.
Sævar, sonur hans, var síðar með
bátinn með föður sínum og var með
bátinn síðustu árin, sem hann var
gerður út og gekk inn í félagið með
foreldrum sínum. Útgerð Alberts
gekk alla tíð vel og var skipið ætíð
með aflahæstu skipum. Albert var
seldur árið 1996 en ári seinna
keypti hlutafélagið Þróttur fisk-
verkun í Grindavík og rak Þórarinn
hana ásamt Guðveigu, eiginkonu
sinni, Sævari, syni sínum, og Þór-
arni, dóttursyni sínum, til dauða-
dags.
Þórarinn var mikill söngmaður
og söng í kirkjukór Grindavíkur í
tæp 60 ár. Hann var einnig um ára-
bil í sóknarnefnd Grindavíkur. Hon-
um var annt um kirkjuna og styrktu
þau hjónin hana mikið, einkum org-
elsjóð hennar. Útför Þórarins fer
fram frá Grindavíkurkirkju í dag,
14. ágúst, og hefst athöfnin klukkan
13.
laugur, Albert og
Steinþóra. 2) Helga, f.
1.10. 1952, maki
Hjörtur Gíslason.
Börn Helgu og Ólafs
Arnberg Þórðarsonar
eru Þórarinn, Guð-
veig Sigurlaug og
Þórunn Halldóra. 3)
Ólöf, f. 17.1. 1955, d.
19.11. 1998. Börn
hennar eru Sigríður,
Ingibergur Þór, Berg-
vin Friðberg og Fjóla
Kristín. 4) Ingibjörg,
f. 5.10. 1958. Börn
hennar eru Már Hall, Thomas Sean
og Alexander Stardal. 5) Svala, f.
2.3. 1967. Maki Thomas Heller.
Dætur Svölu eru Birna Mjöll og Ni-
cole Elisabeth. Alls eru afkomendur
Þórarins og Guðveigar 37.
Þórarinn fór ungur til sjós með
föður sínum en var síðan með Gunn-
ari Gíslasyni á Ægi og síðar stýri-
maður á Sæborgu með Óskari Gísla-
syni. Formennsku byrjaði hann á
litlum bát, Mugg, en næstu árin var
hann með ýmsa báta, svo sem Óðin,
Vísi og Hafrenning, en alls var hann
til sjós í 48 ár. Hann fór í Stýri-
mannaskólann og aflaði sér réttinda
á 120 tonna skip 1958 og lauk fiski-
mannaprófi 1965. 1958 tók hann við
75 tonna bát, Þorbirni. Varð hann
þrisvar sinnum aflahæstur Grinda-
víkurbáta á vetrarvertíð og var
Þórarinn jafnframt meðal afla-
hæstu skipstjóra á síld á þeim tíma.
Það syrtir að er sumir kveðja.
Hann pabbi minn er dáinn. Ég
sakna hans. Ég sakna allra áranna
með honum. Sakna þess þegar hann
kom af sjónum og lék við okkur
systkinin, sagði okkur sögur, söng
okkur í svefn og fór með bænirnar
með okkur. Hversu þreyttur sem
hann var eftir erfiðan róður. Við átt-
um saman nærri sextíu ár og alltaf
reyndist hann mér og mínum vel. Ég
á svo margar góðar minningar um
hann. Síðustu árin var hann farinn
að þreytast og var kominn á dval-
arheimili. Þá daga sem ég komst
ekki til að heimsækja hann töluðum
við saman í síma. Ert þetta þú væna
mín, sagði hann þegar við komum í
heimsókn eða ég hringdi í hann. Nú
er hann farinn bak við fjöllin háu, en
mig langar samt til að hringja í hann
og heyra í honum röddina, þó síma-
sambandið sé kannski ekki upp á það
besta.
Ég þakka Guði fyrir það að hafa
heimsótt hann daginn sem hann var
tekinn frá okkur. Ég kom til hans
með mömmu og Hirti rétt fyrir
kvöldmat. Hann hafði sofið fram á
borðið sitt í matsalnum. Hann var
dálítið þreyttur, en jafnaði sig fljótt.
Við spjölluðum svolítið saman og
þegar við vorum að kveðja hann var
verið að bera matinn á borðið. Hann
var spurður hvort hann vildi hníf
með matnum. Hvað er í matinn,
spurði hann þá. Það eru fiskibollur,
var svarið. Hver þarf hníf með fiski-
bollum, svaraði hann að bragði.
Kímnigáfan yfirgaf hann ekki. Hann
yfirgaf okkur þremur tímum síðar.
Pabbi var mikill maður, ekki bara
að umfangi. Hann var mun stærri að
innan en utan. Betri pabba, afa og
langafa var ekki hægt að hugsa sér.
Það er gott að ylja sér við allar góðu
minningarnar, góðu stundirnar og
samveruna.
Missir okkar allra er mikill, ekki
síst þinn, elsku mamma mín. Guð
veri með þér og þínum og styrki okk-
ur á þessum erfiða tíma.
Það syrtir að er sumir kveðja.
Bless pabbi minn.
Kvölin kennir mér að hlúa
að þeim kærleik sem ég finn.
Það að þakka fyrir allt
sem áttum við.
Því verð ég að vona og trúa
að við sjáumst eitthvert sinn,
að ég hitti þig á himnum
pabbi minn.
(Þórunn Lárusdóttir)
Helga.
Elsku afi Þóri.
Þó svo að maður hafi vitað í hvað
stefndi hjá þér átti ég ekki von á
þessu svona snöggt elsku afi. Það er
sennilega mikill léttir að fá að fara
heldur en að vera rúmliggjandi á elli-
heimili og geta sig hvergi hreyft,
maður fann það hjá þér að þú varst
orðinn þreyttur og þráðir sennilega
að fá að fara úr því þetta var orðið
svona.
En það eru margar og góðar
minningar um þig elsku afi. Þú varst
alvörugefinn, en það var nú ekki
langt í prakkarann í þér og gaman að
vera í kringum þig þegar þú varst að
segja okkur sögur frá fyrri tíma. Það
var strax tómlegt í vinnunni þegar
þú hættir að koma þangað vegna
veikinda og enginn afi að spila með
köllunum í kaffinu eins og tíðkast
þar og þú áttir þitt sæti þar. En núna
er þú kominn á góðan stað og hvílist
þar, og þangað til næst er við hitt-
umst kveð ég þig með söknuði elsku
afi Þóri.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Elsku amma Stella, mamma mín
Helga og systkini hennar, guð veri
með ykkur og styrki ykkur á þessum
tímamótum í lífi okkar.
Guðveig Sigurlaug Ólafsdóttir.
Þórarinn Ólafsson, skipstjóri í
Grindavík, margfaldur aflakóngur,
er látinn 82 ára. Hann var ættaður
frá Hraunkoti, litlu húsi á lágum hól
undir háum sjávarkambi þar sem
grænu túnin á vorin mæta gráu
hraunbreiðunni allan ársins hring
austast í Þorkötlustaðahverfinu.
Þórarinn kynntist snemma sjó-
mennskunni sem varð síðan að ævi-
starfi. Fyrsta vetrarvertíð hans var
þegar hann var 14 ára. Á þeim árum
var róið á opnum vélbátum úr Nes-
inu. Hann var þar háseti á Vininum.
Í Sjómannadagsblaði Grindavíkur
1996 rifjaði hann upp fyrstu sex vetr-
arvertíðir sínar og segir: „Ef ég ætti
að velja mér aftur ævistarf mundi ég
endurtaka allt nema fyrstu vertíð-
ina.“ En ekkert verður endurtekið
úr lífshlaupi manns, aðeins er hægt
að rifja upp það liðna, eitthvað sem
áður var. Það gildir líka um Þóra. Og
um hann er allt gott að segja. Sam-
starf okkar hófst árið 1966, þegar
hann var að byrja í eigin útgerð á Al-
bert GK 31 og vantaði vélstjóra sem
hefði réttindi. Á þessum árum var ör
fjölgun nýrra útgerða og skipstjórar
með reynslu höfðu náð árangri í því
að fiska með Astiktækjum og kraft-
blökkinni. Þeir voru venjulega í fé-
lagi með tveimur eða þremur öðrum
sjómönnum og útgerð hringnótabáta
Íslands var í eigu þannig manna.
Þórarinn var þegar hér var komið
sögu orðinn skipstjóri og kom frá út-
gerð Hraðfrystihúss Þorkötlustaða
h/f. Hann hafði tekið þar við stjórn á
tveimur nýsmíðuðum skipum og
varð aflakóngur Suðurnesja. En
hugurinn stóð ætíð til að eiga eigin
útgerð. Þess vegna sagði hann oft: „Í
minningunni tók ég fljótt eftir því,
sem barn í Þorkötlustaðahverfinu,
að þeir sem áttu bát höfðu betri af-
komu en hinir.“ Við vorum saman á
sjó samfleytt í sextán ár. Á þeim
tíma urðu bátarnir hans Þóra, Al-
bertarnir, stöðugt stærri og öflugri.
Sú var krafa tímans og hagstjórnin
þannig. Þótt bátarnir stækkuðu
stöðugt náði Þóri samt alltaf til okk-
ar, enda var hann raddsterkur skap-
maður. Aldrei fór á milli mála hver
var maðurinn í brúnni og hvað hann
vildi. Þórarinn Ólafsson var mikill að
vallarsýn, þrekinn, æðrulaus og
framgangan á allan hátt þess manns
sem er en sýnist ekki. Við sem
þekktum hann best bárum virðingu
fyrir honum, skoðunum hans, lífsvið-
horfi og framgöngu. Við höfum misst
aldraðan góðan vin, en missir eigin-
konu hans, Guðveigar Sigurðardótt-
ur og fjölskyldunnar er mestur. Hjá
henni er hugur okkar og samúð.
Ég þakka ótaldar ánægjustundir á
liðnum árum og segi: Blessuð sé
minning Þórarins Ólafssonar, skip-
stjóra og bátanna hans.
Hinrik Bergsson.
Þórarinn I. Ólafsson