Morgunblaðið - 14.08.2009, Síða 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
Sudoku
Frumstig
8
2 3
7 6
8 9 2 4
5 4
3 8 5 7
8 6
5 7 9 3 8
4 8 9 1
6
8 5 7
9 2
6
2 1
1 2 5 8 7
4
4 5 9 8
7 9 3
8
2 9 5
5 6 8
1 5 2
6 9
4 7 5
8
4 9 3 8
9 1 6
2 7 3 1 8 9 5 4 6
9 4 1 5 3 6 7 8 2
5 6 8 2 7 4 9 1 3
7 1 6 3 5 2 4 9 8
8 5 9 6 4 7 3 2 1
4 3 2 8 9 1 6 5 7
6 8 4 9 2 3 1 7 5
3 9 5 7 1 8 2 6 4
1 2 7 4 6 5 8 3 9
6 1 4 5 7 9 3 2 8
8 5 2 3 4 6 7 1 9
3 7 9 8 2 1 6 5 4
1 8 6 4 3 7 5 9 2
2 4 7 9 1 5 8 3 6
9 3 5 6 8 2 1 4 7
7 9 3 1 6 4 2 8 5
4 6 1 2 5 8 9 7 3
5 2 8 7 9 3 4 6 1
7 2 9 1 5 6 4 8 3
8 1 4 9 3 7 2 5 6
6 5 3 4 2 8 7 1 9
3 4 1 6 8 9 5 7 2
5 8 6 7 1 2 3 9 4
2 9 7 5 4 3 8 6 1
1 7 5 3 6 4 9 2 8
9 3 8 2 7 1 6 4 5
4 6 2 8 9 5 1 3 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röð-
inni.
Í dag er föstudagur 14. ágúst,
226. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra
yður illt, ef þér kappkostið það sem
gott er? (1Pt. 3, 13.)
Sigurður Þ. Ragnarsson veður-fræðingur á Stöð 2 eða Siggi
stormur eins og hann er kallaður á
hrós skilið fyrir að vekja athygli á
dæmalausri þjónustu tannlækna á
höfuðborgarsvæðinu á frídegi
verslunarmanna.
x x x
Ég lít ekki lengur á tannlæknasem lækna,“ var haft eftir
veðurfræðingnum í DV í vikunni.
„Þetta eru bara viðgerðarmenn sem
vinna bara þegar þeim hentar. Eini
munurinn á þessum viðgerðar-
mönnum og til að mynda bílavið-
gerðarmönnum er að það er vakt all-
an sólarhringinn hjá Félagi íslenskra
bifreiðaeigenda. Ég hefði getað látið
laga bílinn þarna um nóttina en fékk
ekki aðstoð fyrir barnið mitt.“
x x x
Tildrög málsins eru þau að 10 árasonurinn fékk heiftarlega tann-
pínu og þegar leitað var eftir aðstoð
var hana hvergi að fá. Neyðarþjón-
usta tannlækna var nafnið eitt og
ekki boðið upp á tannlæknaþjónustu
á slysadeild Landspítalans. Ekki
heldur á læknavaktinni í Kópavogi og
ekki hvarflaði að fjölskyldutann-
lækninum að slíta sig frá sólbaði til
að aðstoða. Svo fór að Sigurður skar
sjálfur á meinið til að lina þjáningar
sonarins.
x x x
Tannlæknafélag Íslands og tann-læknadeild Háskóla Íslands
buðu börnum og unglingum ókeypis
tannlæknaþjónustu fjóra laugardaga
í vor. Þá kom fram að þegar þrengdi
að fjárhagnum sparaði fólk gjarnan
við sig tannviðgerðir og eftirlit. Í til-
kynningu kom fram að stjórnvöld
hafi dregið stórlega úr þátttöku í
kostnaði vegna tannheilsu barna og
við blasti hætta á tannskemmdum og
vanlíðan.
x x x
Er ekki eitthvað að þegar enginntannlæknir er á vakt á höf-
uðborgarsvæðinu eða eru þetta bara
viðgerðarmenn sem hafa engar sið-
ferðislegar skyldur og vinna aðeins
þegar þeim hentar? víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hengingaról, 4
spakur, 7 afhendi, 8
meðulin, 9 dýrbít, 11
hluta, 13 reykir, 14
grunar, 15 einlægni, 17
snjólaust, 20 fálm, 22
hnikar, 23 viðurkennir,
24 flokk, 25 náskyldar.
Lóðrétt | 1 uppgerð-
arveiki, 2 endurtekið, 3
fæðir, 4 grunnflötur, 5
asna, 6 stelur, 10 skora
á, 12 nöldur, 13 gruna,
15 þoli, 16 ósætti, 18
kvendýrið, 19 hreinar,
20 klifur, 21 skaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kindarleg, 8 vinnu, 9 móður, 10 nes, 11 rjúka,
13 arinn, 15 svöng, 18 skúra, 21 ryk, 22 ruddi, 23 eilíf,
24 hrikalegt.
Lóðrétt: 2 innbú, 3 druna, 4 romsa, 5 eyðni, 6 sver, 7
hrun, 12 kyn, 14 rík, 15 sori, 16 öldur, 17 grikk, 18 skell,
19 útlæg, 20 alfa.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Bg5 e6 3. e4 h6 4. Bxf6
Dxf6 5. Rc3 d6 6. Dd2 g5 7. Rf3 g4 8.
Rg1 h5 9. f4 Bh6 10. g3 Rc6 11. O-O-O
Bd7 12. Df2 h4 13. Kb1 Bg7 14. e5 dxe5
15. Re4 De7 16. dxe5 O-O-O 17. Re2
Kb8 18. R2c3 Db4 19. Be2 hxg3 20.
hxg3 Hxh1 21. Hxh1 Bc8 22. Hd1 Hg8
23. a3 Df8 24. Rb5 f5 25. Rec3 Hh8 26.
Rd4 Rxd4 27. Dxd4 a6 28. Df2 De7 29.
Bf1 Bf8 30. Bg2 Dc5 31. Dd2 Be7 32.
De2 Hh2 33. Df1 Da5 34. Hd3 Db6 35.
Ka2 c6 36. Ra4 Db5 37. Rc3 Dc4+ 38.
b3 Dc5 39. b4 Dc4+ 40. Kb2 a5 41. Dg1
axb4 42. Dxh2 bxc3+ 43. Hxc3 Dd4 44.
Kb3
Staðan kom upp á alþjóðlegri
skákhátíð sem lauk fyrir skömmu í
Kaupmannahöfn. Alþjóðlegi meist-
arinn Bragi Þorfinnsson (2.377) hafði
svart gegn Preben Dahlberg (2.088).
44. …Bxa3! og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Oddur baldni.
Norður
♠108
♥632
♦DG1065
♣Á106
Vestur Austur
♠Á7642 ♠DG53
♥754 ♥D1098
♦K2 ♦73
♣753 ♣DG4
Suður
♠K9
♥ÁKG
♦Á984
♣K982
Suður spilar 3G.
Ein er sú varnarregla sem á mis-
jöfnu fylgi að fagna meðal keppnisspil-
ara, kölluð „oddball“ af Terence Reese.
Íslenskir spilarar gætu talað um „Odd
inn baldna“. Spil dagsins er úr Spin-
gold-leik Jacobs og Schermer. Þrjú
grönd voru spiluð á báðum borðum eft-
ir lokaðar sagnir og útspilið var smár
spaði á gosa austurs og kóng suðurs.
Sagnhafi spilaði laufi á ás og tók mis-
heppnaða tígulsvíningu. Nú skipti ann-
ar vesturspilarinn yfir í hjarta, en hinn
hitti á að spila spaða.
Hvernig kemur „oddball“ hér við
sögu? Ef til vill þannig: Samkvæmt
reglunni sýnir há fylgja í lit sagnhafa í
slag tvö áhuga í útspilslitnum. Hvor-
ugur austurmaðurinn tímdi laufgos-
anum (skiljanlega) og því túlkaði annar
vesturspilarinn ♦7 síðar kom sem
hjartakall (og ♣4 sem spaðafrávísun).
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þér hefur vegnað vel og mátt því
svo sannarlega gleðjast yfir árangrinum
með þínum nánustu vinum. Mundu að
lítið bros getur dimmu í dagsljós breytt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú vinnur jafnt og staðfastlega að
einhverju bakvið tjöldin og aðrir kunna
vel að meta framtak þitt. Hafðu það hug-
fast og gefðu þér tíma til þess að sinna
hugðarefnum þínum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú finnur fyrir einhverjum
draugagangi í kringum þig og ættir að
ræða málið við náinn vin. Reyndu að láta
aðra um eins mikið og hægt er og sinntu
sjálfur bara því stóra.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er ýmislegt sem getur byrgt
manni sýn þótt maður haldi að allir hlut-
ir séu á hreinu. Rómantískar tilhneig-
ingar þínar eru hins vegar ekki byggðar
á raunsæi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það eru fyrst og fremst fjármálin
sem þú þarft að gefa gætur þessa dag-
ana. Næsta mánuðinn munu samstarfs-
félagarnir sýna þér mikinn stuðning.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú átt ekki að reka á eftir málum,
nema þú sért tilbúinn til að hlusta á lykt-
ir þeirra. Partí, daður, vetrarleyfi og
þátttaka í uppákomum mun veita þér
ánægju.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ekki leyfa rökhugsuninni að afneita
fyrirbærum á borð við töfra og heppni.
Að lifa vel er listform og þú hefur náð
fullkomnum tökum á því.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Vertu þolinmóður, að öðrum
kosti getur þú skapað meiri ringulreið en
þú ræður við. Húrra fyrir litlum hlutum!
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Peningavandræði og ágrein-
ingur við ástvin koma hugsanlega upp í
dag. Haltu þig við heilsuprógrammið,
líka þegar aðrir reyna að freista þín.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er hætt við að þú bíðir
lægri hlut ef þú reynir að standa uppi í
hárinu á þeim sem eru ofar settir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einhverra hluta vegna tekst
þér ekki að einbeita þér að því sem máli
skiptir. Láttu engan binda þig nauðugan
í hlekki vanans.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ef þú ert að skipuleggja langferð
gengur þér vel í dag. Sættu þig við það
sem þú færð ekki breytt og leggðu þig
fram um að auðga líf þitt.
Stjörnuspá
14. ágúst 1784
Suðurlandsskjálftar. Miklir
landskjálftar urðu þennan dag
og tveimur dögum síðar í Ár-
nessýslu og Rangárvallasýslu.
Hundrað bæir hrundu til
grunna, margt fólk var grafið
upp úr rústunum og þrír
týndu lífi. Þetta eru taldir
mestu jarðskjálftar hér á
landi, sá stærsti hefur verið
áætlaður 7,5 stig. Flest hús í
Skálholti skemmdust og í kjöl-
farið voru skóli og biskups-
stóll fluttir til Reykjavíkur.
14. ágúst 1942
Bandarískar herflugvélar
skutu niður þýska sprengju-
flugvél sem stefndi til Reykja-
víkur. Þetta var fyrsta óvina-
flugvélin sem bandarískir
hermenn skutu niður yfir Evr-
ópu í síðari heimsstyrjöldinni.
14. ágúst 1975
Sverrir Runólfsson lagði slit-
lag á vegarkafla á Kjalarnesi
með aðferð sem nefnd var
blöndun á staðnum.
14. ágúst 1982
Furstahjónin af Mónakó,
Grace Kelly og Rainer, komu í
heimsókn til Íslands. Tvö börn
þeirra, Carolina og Albert,
komu með þeim. Grace lést í
bílslysi mánuði síðar.
14. ágúst 2000
Rafmagnslaust var í Útvarps-
húsinu við Efstaleiti í hálfa
klukkustund vegna skemmd-
arverks á rafmagnstöflu. Út-
sendingar útvarps og sjón-
varps féllu niður vegna þess
að vararafstöð fór ekki í gang.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„ÞAÐ stendur ekkert sérstakt til í tilefni dagsins,
enda er ég ekkert mikið fyrir afmælishald,“ segir
Edda Geirsdóttir, grafíklistakona og spákona í
hjáverkum, sem í dag verður 55 ára. Rifjar hún
upp að hún hafi sem barn alltaf verið í sveit á þess-
um tíma árs og allir þar haft nóg að gera við
heyannir. Sökum þessa hafa lítið orðið úr hvers
kyns afmælisstandi. Edda útilokar ekki að hún
grípi spilin í dag eða kíki í kaffibolla til að sjá fyrir
afmælisdeginum og hugsanlega munu einhverjir
vinir líta í heimsókn í tilefni dagsins í dag.
Af eftirminnilegum afmælum í tímans rás nefnir
Edda annars vegar fertugsafmæli sitt og hins vegar 26 ára afmæli
sitt. Það síðarnefnda stendur upp úr í minningunni þar sem föður-
bróðir Eddu var jarðaður á þessum degi og þótti henni það afar erfitt.
Fertugsafmælið er hins vegar með ánægjulegri afmælisdögum að
sögn Eddu. „Það var í eina skiptið sem afmælissöngurinn var sunginn
fyrir mig. Þetta var á sunnudegi og ég hafði farið í messu á vegum
Chapel of Light. Að messu lokinni fór ég ásamt messugestum í Nor-
ræna húsið þar sem við drukkum kaffi og þau færðu mér blóm og
sungu fyrir mig.“ silja@mbl.is
Edda Geirsdóttir grafíklistakona 55 ára
Ekki mikið fyrir afmælishald
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is