Morgunblaðið - 14.08.2009, Page 32
32 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
SAFNARARNIR Bragi Guð-
laugsson og Sverrir Krist-
insson verða með leiðsögn um
sýninguna Safn(arar) í Hafnar-
borg á sunnudag kl. 15 ásamt
sýningarstjóranum Ólöfu K.
Sigurðardóttur. Sýningunni
lýkur um helgina, en á henni
eru valin verk úr listaverkagjöf
Sverris Magnússonar og konu
hans Ingibjargar Sigurjóns-
dóttur til Hafnarborgar og
verk úr einkasöfnum Gunnars Dungal og Þórdísar
Öldu Sigurðardóttur, Braga Guðlaugssonar, Ing-
unnar Wernersdóttur og Sverris Kristinssonar.
Öll eiga þau áhugaverð listaverk sem mörg eru
meðal perla íslenskrar listasögu.
Myndlist
Leiðsögn safnara
í Hafnarborg
Ólöf K.
Sigurðardóttir
RÓMANTÍSKIR tónar munu
óma í stofu Nóbelskáldsins á
sunnudag kl. 16, þegar Eyjólf-
ur Eyjólfsson tenórsöngvari
og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir píanóleikari flytja Dich-
terliebe (Ástir skáldsins), op.
48 eftir Robert Schumann við
ljóð Heinrich Heine á Gljúfra-
steini. Dichterliebe er einn
helsti ljóðaflokkur róman-
tískrar sönglistar, ásamt ljóða-
flokkum Schuberts, Vetrarferðinni og Malara-
stúlkunni fögru. Eyjólfur hefur sungið með
nafntoguðum hljómsveitum og píanóleikurum hér
heima og erlendis, og Anna Guðný er handhafi ís-
lensku tónlistarverðlaunanna í ár.
Tónlist
Ástir skáldsins
á Gljúfrasteini
Eyjólfur
Eyjólfsson
EINN fremsti konsertorg-
anisti heims, Susan Landale,
leikur á lokatónleikum Al-
þjóðlegs orgelsumars í Hall-
grímskirkju á sunnudag kl. 17.
Landale er skosk að uppruna
en er búsett í Frakklandi. Eftir
hana liggur fjöldi upptaka sem
hlotið hafa mikið lof. Hún er
einnig mjög virtur kennari og
er nú prófessor við Konung-
lega tónlistarháskólann í Lond-
on. Susan Landale er reglulegur gestur Al-
þjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju og mikill
fengur að fá hana hingað til lands. Á efnisskránni
eru verk eftir Bach, Mendelssohn, Brahms,
Samuel S. Wesley og Petr Eben.
Tónlist
Susan Landale
á Orgelsumri
Susan
Landale
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
DAGSKRÁ Þjóðleikhússins
fyrir næsta leikár liggur fyrir.
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóð-
leikhússtjóri segir hrun ís-
lensks efnahagslífs í fyrra
hafa minnt menn á mikilvægi
listarinnar og leikhússins á
ólgutímum.
„Þjóðleikhúsið frumsýndi
Hart í bak eftir Jökul Jakobsson skömmu eftir
hrunið, og skyndilega fékk þetta hálfrar aldar
gamla verk um áfall í sögu þjóðar, spurningar
um sekt og ábyrgð og baráttu einstaklinga við
breyttar aðstæður, nýjan og óvæntan slagkraft
og rataði beint að hjarta almennings. Hart í bak
gekk fyrir fullu húsi allan veturinn.
Verkefnaval þessa leikárs endurspeglar að
vissu leyti umrótið í samfélaginu. Við sýnum eitt
magnaðasta ádeiluverk tuttugustu aldarinnar,
Brennuvargana eftir Max Frisch, sígilt verk
sem fjallar um breyskleika mannsins og sam-
félagslega ábyrgð á bráðfyndinn og magnaðan
hátt. Við lítum einnig til fortíðar og leitumst við
að varpa ljósi á þann hugarheim og þá hug-
myndafræði sem skapar okkur sem þjóð sér-
stöðu,“ segir Tinna. Í þeim tilgangi verði svið-
sett tvö af öndvegisverkum Halldórs Laxness,
þess rithöfundar sem hefur með hvað áhrifa-
mestum hætti fjallað um íslenska þjóð, Gerpla í
leikgerð Baltasars Kormáks sem verður jólasýn-
ingin og Íslandsklukkan í nýrri leikgerð Bene-
dikts Erlingssonar. Íslandsklukkan verður af-
mælissýning leikhússins, í apríl á næsta ári
verða liðin 60 ár frá opnun þess.
„Gerpla er hörð ofbeldis- og stríðsádeila og
óvægið uppgjör við hetjudýrkun og mikil-
mennskuhugmyndir á öllum tímum, meðan Ís-
landsklukkan fjallar um þær tilvistarspurningar
sem lítil þjóð stendur frammi fyrir. Í því þjóð-
félagslega umróti sem við lifum nú eiga þessi
stórvirki brýnt erindi við okkur og kalla á að
vera skoðuð í nýju samhengi á nýjan hátt,“ segir
Tinna. Jóhannes Haukur Jóhannesson og Björn
Thors fara með hlutverk helstu kappanna í
Gerplu, en Ingvar Sigurðsson fer með hlutverk
Jóns Hreggviðssonar í Íslandsklukkunni og
Snæfríði Íslandssól leikur nýútskrifuð leikkona,
Lilja Nótt Þórarinsdóttir. Fyrsta frumsýning
leikársins verður hins vegar nýtt leikverk eftir
Brynhildi Guðjónsdóttur, Frida … viva la vida,
um myndlistarkonuna mexíkósu Fridu Kahlo, og
fjölskyldusöngleikurinn sígildi Oliver! verður
frumsýndur í febrúar.
Hænuungar hverfa
Þrjú ný verk verða frumsýnd í Kassanum,
nýtt leikrit eftir Braga Ólafsson, Hænuungarnir,
sem Tinna segir bráðfyndið en það fjallar um
hvarf nokkurra hænuunga úr frystikistu í sam-
eign í fjölbýlishúsi og afleiðingar þess, í leik-
stjórn Stefáns Jónssonar. Þá verða sýnd tvö ný-
stárleg verk, annars vegar
„heimilistækjasirkusinn“ Af ástum manns og
hrærivélar, þar sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir og
látbragðsleikarinn Kristján Ingimarsson bregða
á leik, og hins vegar Völva, þar sem nýjasta
tækni í leikhúsi er nýtt til að túlka Völuspá.
Tinna segir að boðið verði upp á fjölbreytt úr-
val leiksýninga fyrir börn í Kúlunni, m.a. nýtt
leikrit um barnabókapersónuna Fíusól og nýtt
verk eftir Áslaugu Jónsdóttur, Sindra silfurfisk.
Þá verði boðið upp á danssýningu og tónlistar-
leikhús fyrir yngstu börnin. Af þeim leikurum
sem verða hvað mest áberandi í vetur má nefna
Brynhildi Guðjónsdóttur, Ólaf Darra Ólafsson,
Eggert Þorleifsson, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur,
Jóhannes Hauk Jóhannesson, Björn Thors, Örn
Árnason, Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur, Stefán Hall
Stefánsson og Ingvar Sigurðsson. Atli Rafn Sig-
urðarson leikstýrir í fyrsta sinn fyrir Þjóðleik-
húsið og Kristín Jóhannesdóttir, sem stýrði Ut-
an gátta á síðasta leikári (sýningin hlaut sex
Grímuverðlaun), stýrir í haust Brennuvörg-
unum. Selma Björnsdóttir tekst svo á við söng-
leikinnn Oliver! og Vigdís Jakobsdóttir leikstýrir
Fíusól.
Aðspurð segist Tinna vera bjartsýn á aðsókn-
ina í vetur, þrátt fyrir kreppuna. „Listin á alltaf
erindi við okkur, ekki síst á tímum umbrota og
óvissu.“ Spurð út í samkeppnina við Borgarleik-
húsið svarar hún: „Þjóðleikhúsið og Borgarleik-
húsið vinna að sameiginlegum markmiðum, að
laða sem flesta að leikhúsunum. Að því marki
eru þau samherjar og samstarfsaðilar. Vel
heppnuð leikhúsferð skilar sér í löngun til að
fara oftar og sjá meira.“
Frida... viva la vida Þjóðleikhúsið frumsýnir verk Brynhildar Guðjónsdóttur um Fridu Kahlo.
Leiklistin á ólgutímum
Þjóðleikhúsið setur upp tvö verk eftir Laxness í vetur „Verkefnaval þessa
leikárs endurspeglar að vissu leyti umrótið í samfélaginu,“ segir þjóðleikhússtjóri
Um áramótin lýkur fimm ára ráðningartíma
þjóðleikhússtjóra og hefur Tinna sótt um að
halda starfinu út árið 2015. Blaðamaður spurði
Tinnu að því hvort hún fyndi fyrir stuðningi við
þá umsókn innan Þjóðleikhússins.
„Já, ég hef orðið vör við góðan og mikinn
stuðning starfsmanna, en það er sjálfsagt ekki
einhlítt. Starf og áherslur þjóðleikhússtjóra
hljóta alltaf að vera umdeilanlegar, það fylgir. Ég
get þó fullyrt að staða þjóðleikhússins er sterk
um þessar mundir, við höfum verið að auka að-
sóknina og nemur sú aukning um 20% síðast-
liðin þrjú ár, reksturinn er í góðu jafnvægi, þrátt
fyrir kreppu og niðurskurð og húsið hefur aldrei
verið í betra ásigkomulagi.“
Tinna segist hafa lagt megináherslu á að auka
og efla starf í þágu barna og ungmenna annars
vegar og nýja, innlenda leikritun og nýsköpun
hins vegar. Sérstakt barnasvið hafi verið opnað í
Kúlunni og boðið upp á sýningar fyrir yngstu
gesti leikhússins og leikhúsið staðið fyrir leik-
ferðum í framhaldsskóla úti á landi og sam-
starfsverkefnum á landsbyggðinni á seinustu
þremur árum. Þá sé ríflega helmingur verkefna á
dagskrá leikhússins innlend leikrit og leikgerðir
en einnig hafi sérstakur höfundasjóður, Prolo-
gos, verið stofnaður og þegar verið veitt úr hon-
um til sjö höfunda og fimm leiksmiðjuverkefna.
„Brátt fer afrakstur þessara styrkja að skila sér
upp á leiksvið,“ segir Tinna að lokum.
Starf og áherslur þjóðleikhússtjóra alltaf umdeilanlegar
NÝ plata þar sem Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands leikur Sinfóníu nr. 2
eftir franska tónskáldið Vincent
d’Indy hlýtur afar lofsamlega dóma í
heimspressunni um þessar mundir.
Fyrir skömmu var hún valin ein af
bestu plötum mánaðarins í tímarit-
inu Gramophone, en fyrsta platan í
sömu útgáfuröð hljómsveitarinnar
hlaut einnig mikið lof og var tilnefnd
til Grammy-verðlauna á síðasta ári.
Nýja platan fær fjóra og hálfa
stjörnu af fimm mögulegum í Musi-
cal Opinion og
þar segir gagn-
rýnandinn að
flutningur hinnar
„afar góðu“ Sin-
fóníuhljómsveitar
Íslands á verkum
franska tón-
skáldsins sé einkar áhrifamikill.
„Greinilegt er að þessi útgáfuröð
mun setja ný viðmið þegar kemur að
flutningi þessara verka, og tilhlökk-
unarefni að hinar sinfóníur tón-
skáldsins skuli brátt bætast í hóp-
inn,“ segir gagnrýnandinn. Þá
hrósar hann sérstaklega upptökunni
sem Georg Magnússon tæknimaður
hjá Ríkisútvarpinu stýrði.
Litríkur og þróttmikill leikur
Í júníhefti BBC Music Magazine
fær platan fjórar stjörnur af fimm
mögulegum. Gagnrýnandinn, Ro-
bert Maycock, segir Sinfóníuhljóm-
sveitina leika með björtum tóni og
þótt strengjasveitin hefði gjarnan
mátt vera stærri einkennist leik-
urinn af þrótti og nákvæmni. SÍ fær
einnig fjórar stjörnur í breska dag-
blaðinu Telegraph, og þar segir Ge-
offrey Norris að flutningurinn sé
öruggur en einnig sveigjanlegur í
hraða og hendingamótun. Þá segir
Norris að hljómur sveitarinnar sé
einstaklega litríkur og að blæbrigði
tónsmíðarinnar komist vel til skila.
Í International Record Review
skrifar Stephen Pruslin og lofar Ru-
mon Gamba sérstaklega fyrir að vita
hvernig eigi að láta hljóm tónlistar-
innar njóta sín til fulls, og segir að
hljómur Sinfóníunnar minni á „mun
hlýrri staði en Reykjavík“.
Sinfóníuhljómsveitin hljóðritar
þriðju plötuna í d’Indy-röðinni nú í
september.
Sinfó fær
stórgóða
dóma fyrir
d’Indy
Hljómsveitarstjórinn Tónlistin
nýtur sín til fulls hjá Rumon Gamba.
Tinna
Gunnlaugsdóttir
BANDARÍSKI
þjóðlagasöngvar-
inn Mike Seeger
er látinn. Ásamt
Pete bróður sín-
um var hann einn
áhrifamesti tón-
listarmaður
bandarískrar
þjóðlagatónlistar
og hafði gríðar-
mikil áhrif á stjörnur þjóðlagabylgj-
unnar á 7. áratugnum, eins og Bob
Dylan og Joan Baez.
Mike Seeger
er látinn
Mike Seeger
...sem betur fer er
margt merkilegra í
lífinu en skrautfjöður frá
forsetaembættinu. 35
»