Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 12

Morgunblaðið - 20.09.2009, Page 12
Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is F létturnar eru marg- slungnar og óvæntar í heimildarmynd Kim- berly Reed, Efn- ispiltum eða „Prodigal Sons“. Ef til vill verð- ur ekki hjá því komist þegar uppleggið er þannig, að hetjan úr fótboltaliði menntaskólans mætir á hátíð gamalla nemenda, eftir að hafa látið sig hverfa í tólf ár, – sem kona. En flækjurnar eru fleiri og á meðal þeirra sem koma við sögu eru Orson Welles og Rita Hayworth. Talar norsku Þegar blaðamaður nær tali af Kim- berly Reed, sem kallar sig Kim, er hún að slaka á heima hjá sér í Tri- BeCa-hverfinu í New York, „í kyrrð og rólegheitum, sem er óvenjulegt fyrir Manhattan“. Hún segir að sig langi til Íslands, enda hafi hún lengi haft áhuga á Norðurlöndum og raunar verið skiptinemi í Noregi. Svo talar hún norsku! „Það skýrist af því, að ég á norska og sænska ættingja, þar sem margir bændur frá Norðurlöndum settust að í Minnesota, Dakota og Montana,“ segir hún. „En það spilaði líka inn í að myndin var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Þessalóníku og vann aðalverðlaunin þar, FIPRESCI. Ég hitti stjórnanda hátíðarinnar, Dimitri Eipides, sem einnig er dagskrárstjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, og hann fékk mig til að taka boðinu.“ – Við hverju mega bíógestir búast af myndinni? „Þeir geta búist við því óvænta. Jafnvel þó að þeir hafi lesið lýsinguna á myndinni, þá er margt óvænt í henni, óvæntir hnútar og fléttur. Ef ég hefði sett þetta í skáldsögu, þá held ég að fólk hefði ekki trúað því. En sannleikurinn er um margt furðu- legri en skáldskapur og ég held að myndin sýni það.“ Mikið ferðalag – Var erfitt að opinbera svona einkalíf sitt á hvíta tjaldinu? „Já, það var mjög erfitt. En ég gerði mér grein fyrir að með því að deila persónulegum augnablikum úr ævi minni og fjölskyldu minnar, þá myndi ég hjálpa mörgum. Við segjum sögu sem margir geta samsamað sig og dregið lærdóm af og það var mér hvatning við gerð myndarinnar.“ – Hvernig var að snúa aftur á heimaslóðir? „Margt kom á óvart. Ég bjóst við mótlæti sem aldrei varð, en mætti öðru sem kom mér á óvart. Ég hélt að viðtökurnar yrðu erfiðar í mínum gamla heimabæ og meðal skólafélag- anna, en mér var tekið mjög vel. Ég komst hins vegar að öðru, sem ég held að margir uppgötvi á ein- hverjum tímapunkti í lífi sínu, að öll eigum við flókna sögu og fortíð hvað fjölskylduna varðar, og þar er margt sem þarf að leysa úr. Ég hafði ekki áttað mig á því, ekki síst flóknu sam- bandi við bróður minn.“ – Þú hafðir horfið úr lífi þessa fólks? „Það spilaði inn í og ég áttaði mig á að með því gerði ég mér erfiðara fyrir en þörf var á. Líklega bjóst ég við sterkari viðbrögðum en nokkurn tíma hefði orðið raunin. Víst er það algengt að fólk ljúki menntaskóla, fari í háskólanám og breytist mikið, komist að því hvaða mann það hefur að geyma og hvert það vill stefna. Á hinn bóginn breyttist ég meira en flestir á mínum aldri, breytingin var ansi mikil, en það var engu að síður bara ýkt útgáfa af því sem við göng- um öll í gegnum og getum því lifað okkur inn í.“ – Þetta varð mikið ferðalag, ekki aðeins fyrir áhorfendur heldur líka þig. „Þetta þróast í frásögn af ferðalagi mínu og það er forvitnilegt að setja áhorfendur í þá stöðu að sjá heiminn frá sjónarhorni einhvers, sem þeir héldu að þeir myndu aldrei horfa út frá, sögumanni sem í þessu tilfelli er ég. Fyrir mig var mikilvægt að vekja hluttekninguna sem því fylgir.“ – Hvernig viðbrögð hefurðu fengið persónulega? „Myndin er persónuleg, tilfinn- ingarík og hrá. Og það eru orðin sem ég heyri þegar fólk kemur til mín eft- ir að hafa séð myndina. Þeir tala líka um óttaleysi og hugrekki. Það er yndislegt að heyra þessi orð frá fólki sem hefur séð myndina og lifað sig inn í hana. Oft er þetta rússíbani fyrir áhorfendur og þeir vita ekki alveg hvað þeir eiga að segja, en mér nægir að sjá blikið í augunum – það þarf ekki að segja neitt. Stundum faðmar það mig bara – og það er frábært! Sem kvikmyndagerðarmaður er ég heppinn að vera í þeirri stöðu að geta fylgst með áhorfendum bregðast við myndinni; það væri erfiðara með 300 síðna skáldsögu!“ – Þú gerðir áður stuttmynd sem nefndist Svipmyndir af föður mínum grátandi. „Það er stuttmynd eftir smásögu Donalds Barthelmes, sem ég gerði í kvikmyndaskóla. Hún markar ákveð- ið upphaf, því í titlinum er tekist á við staðalmyndir af kynjunum – pabbar gráta ekki.“ – Átti það alltaf fyrir þér að liggja að verða kvikmyndagerðarmaður? „Þegar ég leiðrétti kyn mitt, þá venti ég kvæði mínu í kross og í stað þess að fara í kvikmyndagerð, þá fór ég að skrifa í og ritstýra tímariti um kvikmyndagerð. Það var nokkuð sem ég þurfti að gera til að ná stöðugleika í líf mitt. Í Bandaríkjunum eru marg- ir lausráðnir og ekki með góða heilsu- tryggingu. Mér fannst nauðsynlegt að vera í föstu starfi og vera tryggð á meðan ég gekk í gegnum þetta ferli. Það er hins vegar erfitt fyrir kvik- myndagerðarmann, sem er nýút- skrifaður. Ég tók því þá þekkingu og nýtti hana í þágu tímaritsins, en það reyndi á þolrifin að skrifa og tala um kvikmyndir, en fá ekki að gera þær. En er ég komin heim aftur.“ – Af hverju ákvaðstu að gera heim- ildarmynd um þetta efni? „Þó að ég hefði ekki hugmynd um hvernig þróunin yrði, þá vissi ég að þegar ég færi heim að hitta gömlu skólafélagana, þá yrðu flækjur bæði á því augnabliki og eins þegar farið yrði að grufla í fortíðinni. Það er gott þegar eitthvað óvænt gerist við gerð heimildarmyndar; það Öll viljum við breyta Óvenjuleg heimildarmynd um Kimberly Reed er sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, þar sem komið er inn á leiðrétt- ingu á kyni, togstreitu í fjölskyldum, geðræn vandamál og óvæntan skyldeika við Orson Welles og Ritu Hayworth. Leikstjórinn Kimberly Reed býður í ferðalag með hnútum og fléttum. 12 Heimildarmynd MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.