Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 17
17 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 B andaríkjamenn velta því nú fyrir sér hvers vegna þekkt fólk lætur kurteisi lönd og leið og brestur á með reiðilestri og upp- hrópunum af minnsta tilefni. Það er víðar en á Íslandi sem fólk tekur stórt upp í sig. Í Banda- ríkjunum hafa nokkur tilfelli und- anfarið gefið mönnum tilefni til að furða sig á framkomu fólks. Tónlistarmaðurinn Kanye West þótti gera sig að fífli þegar hann rauk upp á svið, reif hljóðnemann af sveitasöngkonunni Taylor Swift og lýsti því yfir að Beyoncé væri miklu betur komin að MTV- verðlaunum fyrir besta mynd- bandið. Tennisstjarnan Serena Williams vakti litla lukku þegar hún sýndi óíþróttamannslega framkomu á opna bandaríska meistaramótinu um síðustu helgi. Hún var ósátt við línuvörð og öskraði: „Ef ég gæti myndi ég troða þessum helv … bolta niður um helv … hálsinn á þér!“ hrópaði stjarnan og varð svo að hverfa á brott með skömm og sekt. Þingmaðurinn Joe Wilson gat heldur ekki stillt skap sitt þegar Barack Obama forseti hélt ræðu í þinginu og hrópaði að hann færi með lygar. Skortur á mannasiðum Blaðamaður Los Angeles Times, Robin Abcarian, velti þessum uppá- komum fyrir sér í grein í blaði sínu á miðvikudag. Hann segir almenn- ing eðlilega furða sig á, hvers vegna þetta gerist. Sumir telji þetta ekki einangruð tilvik, heldur vísbendingar um félagslega röskun. Ýmsar skýringar hafa verið nefndar, t.d. að mannasiðir hafi verið á undanhaldi allt frá síðari hluta 7. áratugarins, þegar fólk reis upp gegn valdboði. Frá þeim tíma hafi gripið um sig andúð á yfirvaldi og stofnunum. Þessa sjái stað í samskiptum barna og foreldra, nemenda og kennara og hví skyldi slík hegðan ekki líka koma í ljós á tennisvellinum eða undir ræðu for- setans? Aðrir segja reiðiköst aðeins varpa ljósi á þann einstakling sem undir býr og enn aðrir vilja tengja uppákomurnar við kynþáttamál. Í tilviki Kanye þá vegna þess að hann hafi verið ósáttur við að hvíta sveitasöngkonan fékk verðlaunin en ekki hin svarta Beyoncé, Serena hin svarta var að keppa við hvíta konu, en línuvörðurinn var af asísk- um uppruna og hvíti þingmaðurinn gerði hróp að svarta forsetanum. Nú sé hins vegar ekki viðunandi að sýna óvild sína í garð annars kyn- þáttar á opinn hátt, en hún brjótist þá út með þessum hætti í staðinn. Svo eru þeir líka til, sem finna einfaldari skýringar, eins og sá við- mælandi Los Angeles Times, sem sagði að Kanye hefði ósköp einfald- lega viljað athygli. Einn viðmælenda blaðsins bendir á, að opinberar persónur búi sér oft til ákveðna ímynd. Stundum bresti áferðarfalleg myndin og ef fólk sé ekki ljúflingar að eðlisfari brjótist hið sanna sjálf fram með heldur leiðinlegum afleiðingum. Ekki blasir alltaf við að skapköst af þessum toga hafi afleiðingar í för með sér, sem varla er til að halda aftur af fólki. Reyndar þurfti Se- rena að borga háa sekt, en það kom ekki í veg fyrir að hún stigi á svið næsta kvöld og gerði grín að öllu saman. Hún er enn fræg tenn- ishetja, þrátt fyrir dónaskapinn. Þingmaðurinn Joe Williams er ekki fordæmdur alls staðar fyrir hróp sín að forsetanum, þótt hann hafi fengið áminningu á þingi. Þvert á móti, ýmsir íhaldssamir hópar hylla hann sem hetju og kosningasjóðir hans tútna út. Einn viðmælenda Los Angeles Times segir raunar að Obama forseti hafi látið sér gullið tækifæri úr greipum renna. Hann hafi verið í miðri ræðu um nauðsyn þess að ná breiðri sátt um heilbrigðismál, þegar Williams hrópaði á hann og í stað þess að láta sem ekkert væri hefði hann átt að biðja manninn, sem sakaði hann um lygar, um að standa upp, svo allir gætu séð hann. Sú staðreynd að hann gerði það ekki gefi and- stæðingunum ástæðu til að herða enn á dónalegri framkomu sinni. Kanye West fékk reyndar að kenna á bálreiðum bloggurum fyrir framkomuna við sveitasöngkonuna. Hann sá sitt óvænna og hefur nú beðist margfaldlega afsökunar. Sumir efast þó um að honum sé eins leitt og hann lætur því dóna- skapurinn kom honum þrátt fyrir allt í heimspressuna. rsv@mbl.is Bölvaður dónaskapur er þetta! Reuters Dóni Serena Williams hótaði línuverðinum og fékk háa sekt fyrir. Reuters Ruddi Kanye West rífur hljóðnemann af Taylor Swift, sem var í miðri ræðu. TUTTUGASTA september 1853 seldi Elisah Graves Otis fyrstu lyft- una með neyðarbremsu, sem hann hafði þá nýlega hannað, en hún kom í veg fyrir að lyftan félli stjórnlaust til jarðar ef meginvírinn slitnaði. Þar með opnaði hann dyrnar að blómleg- um lyftuiðnaði og um leið möguleik- unum á að reisa hærri og hærri hús. Fram að 1850 voru hús sex hæða hið mesta en bremsubúnaður Otis skóp möguleika á hærri húsum; skýja- kljúfar okkar tíma teygja sig á ann- að hundrað hæða til himna. Þegar lyftufárið skall á starfaði Otis sem verkstjóri hjá fyrirtæki sem framleiddi rúm og vann að bremsubúnaðinum í verkstjóra- kompunni. Hann gerði sér enga grein fyrir þeirri byltingu sem neyðarbremsan hans var og var því með öllu óundirbúinn. Reyndar var hann á leið vestur til Kaliforníu til þátttöku í gullæðinu þar, en þegar honum bárust pantanir í tvær vöru- lyftur með öryggisbremsum hætti hann við vesturferðina og fékk syni sína; Charles og Norton í lið með sér við framleiðsluna. Heimssýningin gerði útslagið Þegar bið varð á fleiri pöntunum fékk Otis sýningaraðstöðu á fyrstu heimssýningunni í New York. Þar sýndi hann að neyðarbremsan virk- aði eins og henni var ætlað og þar með tóku hjólin að snúast. Tveimur árum síðar seldi Otis 27 lyftur. Otis vissi að lyftan hentaði ekki síður til fólksflutninga en fyrir vörur og neyðarbremsan varð til þess að fólk var óttalaust í lyftum, þótt í „háum“ húsum væri. 1857 setti Otis upp fyrstu fólkslyftuna í verzl- unarhúsi E.V. Haughwout & Comp- any í New York. Hún var gufuknúin. Fyrstu lyfturnar voru með sætum og þeim stjórnaði lyftustjóri. Frá fjórum lyftum til 252 Bygging Home Insurance Comp- any í Chicago, sem William Le Bar- on Jenneys hannaði og var upp á tíu hæðir, er almennt talin fyrsti skýja- kljúfurinn. Hún var reist 1885 með stálbitagrind. Í henni voru fjórar lyftur. Í Woolworth-byggingunni sem reis 1913 voru lyfturnar 26 og 58 voru þær í Empire State- byggingunni sem reis 1931. Fyrsta sjálfvirka lyftan var sett upp í Dallas 1950. Í hvorum tvíburaturni í New York voru 252 lyftur og 71 rúllustigi frá Otis-fyrirtækinu. Elisha Otis fæddist 3. ágúst 1811 í Halifax, Vermont. Hann lézt 8. apríl 1861. reysteinn@mbl.is Á þessum degi... 20. SEPTEMBER 1853 ÖRUGGA LYFTAN © Royalty-Free/CORBIS Frjálst fall Lyftur voru skelfilegar áður en Otis fann upp hemilinn. Uppfinningamaður Elisah Graves Ot- is, sem Otis-lyftur eru kenndar við. ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 47 28 5 09 /0 9 * Innifalið: Flug ásamt flugvallarsköttum, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútuferðir til og frá flugvelli erlendis, einnig í Jónshús og í „Fisketorvet“. Skoðunarferð um Kaupmannahöfn, kvöldverður á Copenhagen Corner, aðgöngumiði í Tívolí og “julefrokost” á Restaurant Kronborg og fararstjórn. Uppgefið verð getur breyst til samræmis við hækkun á eldsneytisgjaldi og álögðum sköttum og gjöldum. Verðið m.v. gengi 27. ágúst 2009. KAUPMANNAHÖFN AÐVENTUFERÐIR FYRIR ELDRI BORGARA VERÐ 99.200 KR.* Á MANN Í TVÍBÝLI (AUKAGJALD FYRIR EINBÝLI: 17.700 KR. Ferðadagar: 15.–18. og 22.–25. nóvember. Íslenskir fararstjórar: Erla Guðmundsdóttir / Emil Guðmundsson + Bókanir á www.icelandair.is/hopar. (Númer hópa er 1207). Nánari upplýsingar hjá Hópadeild Icelandair í síma 50 50 406 eða með tölvupósti á hopar@icelandair.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.