Morgunblaðið - 20.09.2009, Síða 44

Morgunblaðið - 20.09.2009, Síða 44
44 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 Sudoku Frumstig 5 8 1 1 3 7 2 3 4 9 2 6 6 1 8 9 4 5 7 3 6 8 6 9 3 3 9 2 7 5 7 5 8 5 8 1 4 2 6 4 9 1 3 2 5 4 7 6 1 8 5 7 3 6 3 1 4 9 2 7 1 8 6 2 6 5 9 2 7 9 3 9 5 2 1 7 6 4 8 7 4 6 9 3 8 5 1 2 8 2 1 5 4 6 9 7 3 2 6 3 1 7 9 4 8 5 9 7 8 4 5 2 1 3 6 1 5 4 8 6 3 7 2 9 4 1 9 3 8 5 2 6 7 5 8 7 6 2 1 3 9 4 6 3 2 7 9 4 8 5 1 1 8 3 5 7 2 6 9 4 9 7 5 6 4 1 3 8 2 4 2 6 8 9 3 7 1 5 5 4 2 7 1 8 9 6 3 3 1 8 9 6 5 2 4 7 7 6 9 2 3 4 8 5 1 8 9 1 3 5 7 4 2 6 6 5 7 4 2 9 1 3 8 2 3 4 1 8 6 5 7 9 6 2 3 5 4 8 9 1 7 7 5 8 3 9 1 4 6 2 4 9 1 6 7 2 3 8 5 1 4 9 8 2 7 6 5 3 2 6 5 9 1 3 7 4 8 8 3 7 4 6 5 1 2 9 3 1 2 7 8 6 5 9 4 9 7 6 2 5 4 8 3 1 5 8 4 1 3 9 2 7 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er sunnudagur 20. september, 263. dagur ársins 2009 Orð dagsins: En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. (I.Kor. 13, 13.) Víkverji býr yfir þeirri sérstökureynslu að hafa náð einstökum tengslum við tæki sem hann tók með tímanum að líta á sem vinkonu. Þetta gerðist þegar Víkverji tók ástfóstri við fyrsta farsímann sem hann eign- aðist. Þetta var lítil Nokia, kannski ekki mikið fyrir augað en sterkbyggð og traust og brást aldrei á mik- ilvægum augnablikum. Víkverji gat vel hugsað sér að eyða ævinni með henni. x x x Svo gerðist það, tveimur árum eftirþessi góðu kynni, að Nokian gaf frá sér lítið andvarp og leið út af fyrir fullt og allt. Víkverji reyndi ítrekað að blása í hana lífi en án árangurs. x x x Litla þrautseiga Nokian hafði í tvöár þolað alls kyns hnjask og harðræði. Hún hafði dottið í götu, fallið af borði og jafnvel orðið fyrir bleytu en staðið allt af sér. Víkverji hélt að hún myndi alltaf verða til. En svo andaðist hún snögglega og varð mikill harmdauði. x x x Víkverji hefur átt aðrar Nokiur enengin þeirra hefur unnið hjarta hans á sama hátt og þessi fyrsta. Vík- verji minnist hennar enn með blíðu og trega. Hún var sérstök. x x x Nýlega eignaðist Víkverji flatskjásem hann er einkar ánægður með. Einstaka sinnum hvarflar þó að honum sú hugsun að flatskjárinn mætti vel vera stærri. Því stærri flatskjár því flottari, hugsar Víkverji með sér. Svona hefði hann aldrei hugsað um litlu Nokiuna sína forðum daga og ekki skipt á henni fyrir stærra og fínna tæki. Sennilega merkir þetta að Víkverja þykir ekki nægilega vænt um flatskjáinn sinn og lítur einungis á hann sem hvern ann- an nytjahlut. Sem er sennilega alveg eðlilegt. Það er kannski ónormalt að þykja vænt um fyrstu Nokiuna sína en Víkverji er bara mannlegur og ræður ekkert við tilfinningar sínar, fremur en aðrar mannlegar verur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 mýraljós, 8 lýkur, 9 sælu, 10 hrós, 11 mæla fyrir, 13 líkams- hlutann, 15 ullarsnepla, 18 smákornið, 21 eykta- mark, 22 sverð, 23 rán- dýrs, 24 trassafenginn. Lóðrétt | 2 hrotti, 3 tæp- lega, 4 ull, 5 var fastur við, 6 sálmur, 7 kven- fugl, 12 erfiði, 14 háttur, 15 hægur gangur, 16 tapi, 17 dáið, 18 krók, 19 nísku, 20 boli. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fjörs, 4 hadds, 7 nældi, 8 lófar, 9 get, 11 regn, 13 engi, 14 andar, 15 fálm, 17 rusl, 20 arg, 22 kopar, 23 arður, 24 reisa, 25 tórði. Lóðrétt: 1 fánar, 2 öflug, 3 seig, 4 holt, 5 dofin, 6 sorti, 10 eldur, 12 nam, 13 err, 15 fákur, 16 Lappi, 18 urðar, 19 lerki, 20 arða, 21 galt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 e5 4. Rf3 Rbd7 5. Bc4 Be7 6. O-O O-O 7. He1 c6 8. a4 a5 9. Ba2 h6 10. h3 Rh7 11. Be3 Rg5 12. De2 Rxf3+ 13. Dxf3 Bg5 14. Had1 De7 15. Re2 g6 16. Rg3 Kg7 17. De2 Rf6 18. Dd2 Rh7 19. f4 exf4 20. Bxf4 Bd7 21. Hf1 h5 22. Hde1 Bxf4 23. Hxf4 Rg5 24. h4 Re6 Staðan kom upp í keppni yngri og eldri stórmeistara sem lauk fyrir skömmu í Amsterdam í Hollandi. Hin 15 ára Yifan Hou (2584) hafði hvítt gegn Alexander Beljavsky (2662) frá Slóveníu. 25. Rf5+! gxf5 26. exf5 d5 27. f6+ Dxf6 28. Hxf6 Kxf6 29. c4 hvít- ur er nú með unnið tafl. Framhaldið varð eftirfarandi: 29…dxc4 30. Bxc4 Hg8 31. Df2+ Ke7 32. d5 cxd5 33. Dc5+ Kd8 34. Dxd5 Kc8 35. Bb5 Bxb5 36. axb5 Kc7 37. Hf1 Hg7 38. Hxf7+! Hxf7 39. b6+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Blaður. Norður ♠ÁG3 ♥G ♦KG1076 ♣KG87 Vestur Austur ♠10842 ♠D97 ♥862 ♥D9753 ♦D85 ♦-- ♣642 ♣ÁD1053 Suður ♠K65 ♥ÁK104 ♦Á9432 ♣9 Suður spilar 6♦. Tígulslemma var sögð á báðum borðum í HM-úrslitaleik Ítala og Bandaríkjamanna. Slemman er stórfín, þarf aðeins trompið í hús til að vinnast og á því eru góðar líkur fyrirfram. Í 78% tilvika fellur tígullinn 2-1 og svo er allaf möguleiki að finna drottninguna í 3-0 legunni. Giorgio Duboin var ekki með miðið rétt stillt. Hann fékk út spaða, sem hann drap heima og spilaði smáu trompi á kónginn. Æ, æ. Á hinu borðinu kjaftaði Lauria frá legunni með vafasamri innákomu. Þar vakti Meckstroth í suður á 1♦ og Rod- well krafði í geim með 2♦ á móti. Í þessari stöðu er tilgangslítið að berjast í AV, en Lauria skaut samt inn hjarta- sögn. Af því dró Meckstroth réttilega þá ályktun að austur væri líklegri til að vera stuttur í tígli og lagði niður ásinn heima. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú þarft að hafa augun hjá þér og vera á varðbergi gagnvart smáatriðum, sem geta komið fyrirvaralaust í bakið á þér. Leitaðu aðstoðar ef eitthvað vefst fyrir þér. (20. apríl - 20. maí)  Naut Nú er kominn sá tími að þú getur haldið áfram með verk sem hefur legið í láginni í nokkurn tíma. Ekki fara ófögrum orðum um náungann. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú vilt ekki taka þátt í vissu verkefni, það er ekki spennandi og þú munt ekkert græða á því. Hvernig sem þú verð peningum þínum í dag muntu njóta góðs af því til langframa. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er ekki allt gull sem glóir og margt fyrirheitið fer fyrir lítið þegar til kastanna kemur. Treystu sjálfum þér til að takast á við aðstæður, en hlustaðu samt með öðru eyra á aðra. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Sólin stýrir ljónsmerkinu sem er ein ástæða þess að ljónið hefur mikinn hag af því að fylgjast með gangi hennar. Reyndu að gefa nánustu samböndum þínum sér- stakan gaum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Nú dugar ekkert annað en að setja saman tossalista, vinna eitt verk af öðru og strika yfir jafnóðum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Aðrir ætlast til að þú skapir eftir pöntunum. Gakktu ákveðið til verks því þú átt ekki að líða fyrir ókurteisi annarra. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þér finnst einhvern veginn allt rekast hvað á annars horn. Allt sem maður getur sigrast á í huganum, getur maður yfirbugað í raunveruleikanum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er mögulegt að bæta hverju sem er og hverjum sem er inn í líf þitt. Komdu vinum þínum á óvart með því að setja gamla uppskrift í nýjan búning. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Forðastu rifrildi við maka og nána vini í dag. Reyndu að slaka á og hafa húmorinn í lagi. Láttu ekki drauga úr for- tíðinni draga úr þér kjarkinn. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Passaðu vel upp á peningana þessa dagana. Nálgun þín við þetta fram- andi ævintýri er hálfgerð klikkun. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ef þú kannt að meta það sem þú hefur, gera aðrir það líka. Skyndilega kemst þú að því að lykillinn sem þú hefur leitað svo ákaflega berst þér upp í hendur fyrirhafnarlítið. Stjörnuspá 20. september 1963 Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti að leyfa kvöldsölu gegnum lúgu í söluturnum til kl. 22 og borgarráði var veitt heimild til að leyfa að hafa lúg- urnar opnar til kl. 23.30. Af- greiðslutími var gefinn frjáls rúmum aldarfjórðungi síðar. 20. september 1979 Flóttamenn frá Víetnam, alls 34, komu til landsins. Þetta var þá stærsti flóttamanna- hópur sem hingað hafði kom- ið. 20. september 1995 Ný brú yfir Jökulsá á Dal var formlega tekin í notkun. Hún er 125 metra löng og er hærra yfir vatnsborði en nokkur önn- ur brú, um 40 metra. Eldri brú var frá 1931. 20. september 2007 Um fjörutíu kílógömm af sterkum fíkniefnum fundust í seglskútu sem var að koma til Fáskrúðsfjarðar. Lögreglan og Landhelgisgæslan höfðu fylgst með ferðalagi skút- unnar en aðgerðin var nefnd Pólstjarnan. „Stærsta smygl- mál Íslandssögunnar,“ sagði Vísir. Sex menn voru dæmdir fyrir smyglið, einn þeirra hlaut níu og hálfs árs dóm. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Svavar Hauks- son, Hvolsvegi 12, Hvolsvelli, er sjötugur í dag, 20. september. Í tilefni þess tekur hann á móti vin- um og vanda- mönnum á Hótel Hvolsvelli í dag, 20. september, milli kl. 15 og 17. 70 ára Hörður Lárusson, grafískur hönnuður og formað- ur Félags íslenskra teiknara, fagnar í dag 30 ára afmæli. Hörður er búinn að halda upp á afmælið því að hann bauð vinum og ættingjum í afmæl- isboð í sumarbústað í Grímsnesi fyrir skömmu. Í dag ætlar hann að borða afmælisköku með nán- ustu fjölskyldu. Hörður sagðist hafa lagt í nokkra vinnu við að undirbúa afmælið. Hann hefði t.d. hannað afmæl- islógó og fána sem var stillt upp í veislunni. Þessu hefði verið ágætlega tekið. Um 300 manns eru í Félagi íslenskra teiknara. Hörður sagði að kreppan hefði haft áhrif á teiknara og grafíska hönn- uði. „Staðan er erfiðari en þó er ekki hægt að tala um að hún sé slæm. Verkefnin hafa breyst. Við erum ekki mikið að vinna fyrir banka, en því meira fyrir lítil sprotafyrirtæki. Það orðaði þetta einver um dag- inn að verkefnin væru skemmtilegri, en það fengist minna borgað fyr- ir þau.“ Í Félagi íslenskra teiknara er fjölbreyttur hópur. Teiknarar fást við að búa til auglýsingar, hanna letur og teikna myndir fyrir ýmis verk- efni. egol@mbl.is Hörður Lárusson grafískur hönnuður 30 ára Verkefnin eru skemmtilegri Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.