Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 20.09.2009, Qupperneq 45
Stórfréttir í tölvupósti Velvakandi 45 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2009 Bórisfrísa Eftir: Þorgrím Kára Snævarr LEIKSKÓLARNIR Holt og Tjarnarsel í Reykjanesbæ fengu verðlaun frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjanesbæjar í síðustu viku. Á myndinni má sjá stolta fulltrúa leikskólanna með kústana sem skólarnir fengu í við- urkenningarskyni fyrir fræðslu- og umhverfisstefnu þeirra. Árni Sigfús- son bæjarstjóri afhenti verðlaunin. Hreint og fínt Eyrir sjómanns- ekkjunnar MÓÐIR mín háöldr- uð býr á elliheimili við góðan aðbúnað. Í sum- ar fékk hún bréf frá Tryggingastofnun þess efnis að henni hefðu verið greiddir of háir vasapeningar og hún skuldaði TR rúmar 120 þúsund kr. Ráðstafanir höfðu verið gerðar með því að skerða greiðslur til hennar, þannig, að mánaðargreiðslur lækkuðu úr um 20.000 kr. í 15.000 kr. Þá stæðu eftir rúmar 70.000 kr. af skuldinni og var henni gefinn nokk- urra vikna frestur til að gera tillögur um uppgreiðslu skuldarinnar. Brot móður minnar var að hún tilkynnti ekki TR um fengna vexti af spari- sjóðsbók sinni. Við, sem sáum um skattskýrsluna fyrir hana, töldum nægja að geta fjárhæðarinnar þar. Áunnir vextir náðu þó ekki að við- halda verðgildi innistæðunnar í hruninu mikla. Um 30.000 íslenzkir eldri borg- arar munu hafa fengið lík bréf og móðir mín. Sjálfur er ég kominn á eftirlauna- aldurinn en er heppinn að hafa vinnu enn. Ég hef ekki enn sótt um eft- irlaunin en fylgist með möguleikum mínum á góðri reiknivél Trygg- ingastofnunarinnar. Frá því fyrir áramót hafa væntanlegar greiðslur til mín lækkað þrisvar. Úr 155.000 kr. fyrir skatta í 5.500 kr. Ég hef því dregið að sækja um bæturnar og vinn mér hálft prósent á mánuði með því, ef sú viðbót verður ekki felld niður í næstu atlögu. Móðir mín kvartar ekki. Hún hef- ur alltaf verið nægjusöm og vill helzt greiða skuld sína við Trygg- ingastofnun ríkisins sem fyrst. Svo er einnig um flesta Íslendinga. Við verðum að sætta okkur við orðinn hlut og bíta á jaxlinn. Sumar stéttir og at- vinnugreinar hagnast þó á gjaldeyrishruninu og er það vel. Laun margra sjómanna hafa allt að því tvöfaldazt eftir að evran fór úr 80 kr. í 180-200 kr. Væri til of mikils vænzt, að samtök sjó- manna lýstu því nú yf- ir, að þeir sættu sig við niðurfellingu sjómannaafsláttarins við næstu staðgreiðslu skatta sinna. Það væri stórmannlegt af þeim að gera það í stað þess að hóta því að sigla flotanum í land. Þetta fallega framlag sjómann- anna okkar væri vel þegið áður en TR þarf að senda næsta bréf til gamla fólksins til að tilkynna því, að enn hefði það of mikla vasapeninga, sem það yrðu að skila sem fyrst. Sjómannssonur. Reykingaplága ÉG VIL þakka greinar lækna um reykingapláguna. Þeir sem segja að þeim sé í sjálfsvald sett hvort þeir reykja eða ekki fara ekki með rétt mál. Að reykja veldur þjóðlífinu miklum skaða, heilsufarslega. Reyk- ingafólk veldur fjölskyldum sínum og vinnufélögum angri. Og reyk- ingafólk hefur valdið mörgum elds- voðum, enginn veit hve oft. Björn Indriðason.      Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.