Morgunblaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 32
32 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2009
Sudoku
Frumstig
1 5 4
9 1 7 6
2 7
9
8 4
2 7
6 1 8
3 2
6 7 9 5
5
2 4
3 7 6
1 5
9 5 4
2 1 8
1 6 3 8
3 4
4 7 2
3 6
1 5 3
4
2 9
1 3 6 9
4 8 1 3
7 1 8
2 7
8 4 6 1
6 3 1 2 5 9 7 4 8
2 7 8 1 4 6 9 5 3
9 4 5 3 7 8 6 1 2
3 2 4 8 6 5 1 7 9
1 5 9 4 2 7 3 8 6
7 8 6 9 3 1 5 2 4
5 6 3 7 8 4 2 9 1
4 1 7 6 9 2 8 3 5
8 9 2 5 1 3 4 6 7
9 6 7 2 1 5 8 3 4
4 8 1 3 9 6 7 5 2
3 2 5 4 7 8 6 1 9
2 5 9 1 8 4 3 7 6
6 4 3 7 5 9 2 8 1
1 7 8 6 2 3 9 4 5
7 9 2 5 3 1 4 6 8
8 1 4 9 6 7 5 2 3
5 3 6 8 4 2 1 9 7
2 3 4 7 8 1 6 9 5
5 6 9 2 3 4 1 8 7
1 8 7 9 6 5 3 4 2
8 5 3 1 9 7 4 2 6
4 7 6 5 2 3 9 1 8
9 1 2 6 4 8 7 5 3
3 9 5 4 7 2 8 6 1
7 4 1 8 5 6 2 3 9
6 2 8 3 1 9 5 7 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 8. október,
281. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar
himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.)
ÍMorgunblaðinu á mánudagkvaddi sér hljóðs í aðsendri grein
maður, sem ekki hefur áður látið að
sér kveða í umræðunni á Íslandi. Í
greininni er varað við Evrópusam-
bandinu og sagt að nú standi Íslend-
ingar frammi fyrir svipaðri ákvörð-
un og þegar Gamli sáttmáli var
gerður við Noregskonung 1262. Höf-
undur greinarinnar heitir Siegfried
Hügemann. Þessi grein vakti mikla
tortryggni Jóhanns Haukssonar
blaðamanns, sem kallar sig í kynn-
ingu á bloggi sínu fréttahauk. Hann
nefnilega þekkir ekki manninn og
fann hann ekki á netinu. Og þá verð-
ur höfundurinn „þessi ákveðni Hug-
emann“ hjá Jóhanni Haukssyni og
talað um grein „þessa dularfulla
Hugemanns“. Jóhanni finnst sérlega
dularfullt að vitnað skuli til grein-
arinnar á vef amx.is, vef hægri
manna. Því biður Jóhann Hauksson
Morgunblaðið um að senda sér afrit
af greininni á frummálinu. Morgun-
blaðið fékk greinina á íslensku þann-
ig að hann verður að leita annað vilji
hann lesa hana á öðru tungumáli.
Hann vill einnig fá vísbendingu um
hvar finna megi mynd af höfund-
inum. Jóhanni skal bent á að mynd
fylgir greininni þegar henni er slegið
upp í greinasafni Morgunblaðsins.
x x x
Fréttahauknum er vorkunn aðhafa ekki fundið Siegfried Hüg-
emann. Nafn hans misritaðist, ann-
ars vegar stóð Sigfried í stað Sieg-
fried, hins vegar Hugemann í stað
Hügemann. Minna getur þurft til að
afvegaleiða fréttahauka. Umfjöllun
Jóhanns um þetta dularfulla mál
hefur leitt í ljós að Siegfried er mág-
ur fjölmiðlamannsins Gunnlaugs
Helgasonar og hefði kannski farið
betur á að láta þess getið í kynningu
á honum í stað þess að segja að hann
hafi starfað í bönkum víða í Evrópu.
x x x
Siegfried getur þakkað fyrir þáaðstoð, sem Jóhann hefur veitt
honum við að vekja athygli á grein-
inni. Aftur á móti er ráðgáta hvers
vegna Jóhanni Haukssyni verður
svona bilt við þegar óþekktir menn
stökkva fram á ritvöllinn.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 erfitt viður-
eignar, 8 sýnir, 9 dálítið
hey, 10 op, 11 vera van-
ur, 13 logið, 15 fljótt, 18
vegna, 21 bókstafur, 22
týni, 23 vottar fyrir, 24
spjátrungur.
Lóðrétt | 2 skurðurinn, 3
launa, 4 happdrætti, 5
áreita, 6 má til, 7 rétt, 12
hold, 14 eyða, 15 blý-
kúla, 16 stétt, 17 veisla,
18 skjót, 19 höfuðs, 20 lé-
legt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 glens, 4 gulls, 7 nenna, 8 rúðan, 9 pot, 11 iðra,
13 eðla, 14 sakni, 15 haki, 17 raus, 20 urt, 22 fúlan, 23
ruddi, 24 renna, 25 genið.
Lóðrétt: 1 gengi, 2 einar, 3 skap, 4 gort, 5 liðið, 6 sunna,
10 orkar, 12 asi, 13 eir, 15 hafur, 16 kúlan, 18 aldin, 19
stirð, 20 unna, 21 treg.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. cxd5 exd5
5. Bf4 c6 6. Dc2 Bd6 7. Bxd6 Dxd6 8. e3
Re7 9. Bd3 Rd7 10. Rge2 h6 11. O-O
O-O 12. a3 a5 13. Had1 b6 14. e4 dxe4
15. Rxe4 Db8 16. R2c3 Ba6 17. Bxa6
Hxa6 18. d5 Rxd5 19. Rxd5 cxd5 20.
Hxd5 Ha7 21. Dd2 Rc5
Staðan kom upp í atskákeinvígi
Garry Kasparovs (2812) og Anatoly
Karpov (2621) sem haldið var í Val-
encia á Spáni í tilefni af því að ald-
arfjórðungur er liðinn síðan þeir tefldu
sitt fyrsta heimsmeistaraeinvígi saman
í Moskvu. Kasparov hafði hvítt og vann
leið til að splundra kóngsstöðu svarts.
22. Rf6+! gxf6 23. Dxh6 f5 24. Dg5+
Kh8 25. Df6+ Kg8 26. Hxf5 Re4 27.
Dh4 He8 28. Hh5 f5 og svartur gafst
upp um leið enda fátt til varnar. Kasp-
arov vann atskákeinvígið 3-1 og
hraðskákeinvígi þeirra 6-2 eða samtals
9-3.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Reglur og skynsemi.
Norður
♠G1052
♥Á
♦DG107
♣ÁK43
Vestur Austur
♠Á3 ♠64
♥G10982 ♥76543
♦ÁK98 ♦642
♣65 ♣DG2
Suður
♠KD987
♥KD
♦53
♣10987
Suður spilar 4♠.
Engar reglur geta tekið af mönnum
ómakið að hugsa. Grænt ljós á gatna-
mótum þýðir að óhætt er að aka af stað.
En það er varla skynsamlegt ef bíll
kemur á fullri ferð þvert á stefnuna.
Reglur leysa ekki skynsemina af hólmi,
hvort sem er á vegum úti eða í vörninni.
Vestur leggur niður ♦Á og austur
vísar frá með sexunni. „Frávísun biður
um sviss,“ hugsar vestur og er þá ekki
með landið Sviss í huga. Hann skiptir
yfir í lauf. Sagnhafi drepur og spilar
trompi. Aftur spilar vestur laufi og
sagnhafi drepur. Aftrompar svo vörnina
og spilar tígli. Og viti menn, vestur á
ekki lauf til og tvö lauf suðurs hverfa
niður í ♦DG.
Þrátt fyrir frávísun austurs í fyrsta
slag átti vestur auðvitað að spila tígli
áfram og láta makker trompa fjórða tíg-
ulinn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er margt talað í kringum þig
en þér finnst vanta að öllum þessum orð-
um fylgi einhverjar athafnir. Gerðu allt
sem þér er unnt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Vertu á tánum gagnvart þeim tæki-
færum sem þér kunna að opnast. Með
miklu skopskyni geturðu haft áhrif á
hvern sem er.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er ekki alltaf nóg að tjá til-
finningarnar í verki. Mundu að hver er
sinnar gæfu smiður og þér er óhætt að
ráðast í hlutina upp á þitt eindæmi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það gengur svo mikið á í kringum
þig að þú þarft að gæta þess að verða ekki
stressinu að bráð. Láttu þetta ekki á þig
fá heldur haltu þínu striki ótrauð/ur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Haltu þínu striki, hvað sem tautar og
raular. Lífsspeki þín getur lifað í sátt og
samlyndi við speki annarra. Notaðu dag-
inn fyrir þig, gerðu hluti sem færa þér
innri frið og auka vellíðan.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur þörf fyrir að ræða áhyggj-
ur þínar við einhvern en skalt varast að
gera það við hvern sem er.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vogin vekur á sér athygli í dag hvort
sem hún ætlar sér það eða ekki. Ekki úti-
loka neitt nema að vandlega íhuguðu máli.
Þér hefur tekist vel upp við endur-
skipulagningu starfs þíns.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Margbrotnar áætlanir um frí
þarfnast skipulagningar fyrirfram og nú
er rétti tíminn til þess að sinna þeim.
Slepptu og láttu reyna á hvað gerist.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ferðaáætlanir þínar virðast
ætla að ganga upp. Hugsanlegt er að þú
hellir þér í nám, lestur og skriftir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér hættir til að vera of fastur
fyrir og það leggur stein í götu þína. Yfir-
lýsingar þínar tilheyra bara augnablikinu
og svo líður það.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér hættir til að vilja fórna þér
fyrir aðra í dag og þú tekur þarfir þeirra
fram yfir þínar eigin. Talaðu um það sem
þú sérð, sérstaklega þegar það er
heillandi sérviska annarra.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Kraftmikið hjól snýst innra með
þér þessa dagana og miðlar það orku til
allra þeirra sem þú átt samskipti við.
Vertu öruggur með þig.
Stjörnuspá
8. október 1987
Fyrsta verslun Rúmfata-
lagersins var opnuð við
Skemmuveg í Kópavogi.
„Allar vörur okkar eru
keyptar beint frá framleið-
endum,“ sagði í auglýsingu.
„Það gerir okkur kleift að
bjóða óvenju lágt verð.“
8. október 1994
Breski dægurlagasöngv-
arinn Donovan skemmti í
Þjóðleikhúskjallaranum „og
lék þar öll sín vinsælustu lög
við mikinn fögnuð við-
staddra,“ að sögn Morg-
unblaðsins. „Það var kominn
tími á tónleika hér,“ sagði
listamaðurinn í samtali við
DV.
8. október 1994
Skemmtun var á Hótel Ís-
landi til að rifja upp 25 ára
feril Björgvins Halldórs-
sonar söngvara. Þar voru
flutt sextíu af fjögurhundruð
lögum sem hann hafði þá
sungið inn á hljómplötur.
8. október 1999
Ráðstefnan Konur og lýð-
ræði hófst í Reykjavík og
stóð í þrjá daga. Hillary
Clinton forsetafrú Banda-
ríkjanna var meðal þrjú
hundruð þátttakenda.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Ásmundur
Guðmundsson
fyrrverandi skip-
stjóri er áttatíu
ára í dag, 8. októ-
ber. Hann verður
að heiman.
80 ára
„ÉG ER rosalegt afmælisbarn og þykir alltaf af-
skaplega gaman að eiga afmæli og halda upp á
það,“ segir Svanhildur Ólöf Þorsteinsdóttir,
Svansí, markaðsráðgjafi á Stöð 2, útvarpskona og
réttnefnd rödd Bylgjunnar. Svansí fagnar fjörutíu
ára afmæli sínu í dag en bíður með veisluhöld þar
til á laugardag. Þá blæs hún til „stórveislu á léttu
nótunum“ á heimili sínu. Þar verða samankomnir
hátt í hundrað vinir og vandamenn. Í dag sinnir
Svansí hins vegar hefðbundnum störfum. „En mun
auðvitað láta syngja fyrir mig milli þess sem ég
tek á móti hamingjuóskum og kossum frá þeim
sem ég er umvafin flesta daga ársins.“ Þegar spurt er um minni-
stæðar afmælisveislur í gegnum tíðina er ekki að tómum kofanum
komið. „Ætli helst sé ekki að nefna 25 ára afmælið mitt. Þá hélt ég
svakalegt partí á Tunglinu, hinu fornfræga. Ég vann hjá FM957 í þá
daga og vinir mínr gáfu mér í afmælisgjöf strippara og svín,“ segir
Svansí og tekur fram að svíninu hafi ósködduðu verið komið aftur til
síns heima „og svo þurfti náttúrlega að afgreiða stripparann!“ Hún
segir það hafa verið afar eftirminnilegt en reiknar ekki með jafn
framandi gjöfum í ár. andri@mbl.is
„Rödd Bylgjunnar“ fagnar 40 ára afmæli í dag
Varla aftur strippari og svín
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is