Saga - 1951, Page 3
Hjúskapur Þorvalds Gizurarsonar og
Jóru Klængsdóttur.
Þorgils Oddason á Staðarhóli (d. 1150) var
einn mesti höfðingi á íslandi um sína daga.
Eitt barna hans var dóttir, að nafni Yngvildur.
Hennar hafði fengið maður sá, er Halldór hét
Bergsson.1) Yngvildur er orðin ekkja 1157 og
á um þær mundir dóttur ónafngreinda með
Þorvarði Þorgeirssyni, föðurbróður Guðmundar
Arasonar biskups, og fékk hennar Hjálmur
Ásbjarnarson á Breiðabólstað í Vesturhópi.2)
Voru þau Yngvildur og Þorvarður réttir þrí-
menningar, þannig:
Ari Þorgilsson I Einar Hallbera ^ ÞorvarSur.
á Reykhólum | Hallbera Þorgils Yngvildur.
Samfarir þeirra Þorvarðs og Yngvildar voru
því frændsemispell ið meira, er varðaði skóg-
gang.3) En leyfi gat lögrétta veitt til eftir-
Sjafar sakar að einhverju leyti eða öllu eftir
beiðni biskups.4) En áður hefur Yngvildur átt
dóttur með Klængi Þorsteinssyni, sem bæði
Var þrímenningur hennar og Þorvarðs Þor-
!) Sturl. (Rvík 1946) I. 63.
2) Sturl. I. 72—73, 117.
3) Grágás I b 59—60, 236, II. 190—191, 457—458.
4) Grágás I b 59, II. 181.
saga.12