Saga - 1951, Page 6
180
ið.1) Á öðrum stað („Haukdælaþætti“ Sturlungu-
safnsins) er einnig vikið að þessu, þar sem
segir frá samtali Þingvallarsystra um manns-
efni þeirra, sem síðar verður getið. Þar segir, að
þá (þ. e. þegar samtal systranna á að hafa
farið fram) hafi verið „liðnir þeir tíu vetr, er
Guttormur erkibiskup hafði leyft þeim Þor-
valdi og Jóru ásamt at vera“.2) Einnig þessi
sögn stafar frá safnanda Sturlungu. Það hefur
gerzt nálægt 1300, hefur það verk unnið ein-
hver sona Narfa prests Snorrasonar á Kol-
beinsstöðum, líklega Þórður lögmaður Narfa-
son á Skarði í Dalasýslu (d. 1308). Sögn þessi
er þá skráð meira en 100 árum eftir að Þor-
valdur Gizurarson fékk Jóru Klængsdóttur.
Þeir Narfasynir voru komnir í þriðja lið frá
Þorvaldi og Þóru Guðmundsdóttur, síðari konu
hans (Þorvaldur r-> Halldóra —-Valgerður Ket-
ilsdóttir Narfasynir). Mun nú einhverjum
þykja heimildin dágóð, með því að safnandi
Sturlungu hafi sögnina um rnóður sína og
móðurmóður frá langafa sínum og langömmu
sinni.
En athuga má ofurlítið nokkrar þær sagnir,
sem safnandi Sturlungu hefur skráð varðandi
Þorvald Gizurarson og Þóru Guðmundardóttur,
langafa sinn og langömmu sína. Mun þá koma
í ljós, að sumar þeirra eru að minnsta kosti
marklitlar.
1 „Haukdælaþættinum“ segir, eins og sagt
var, að Guttormur erkibiskup hafi veitt Þor-
1) Sbr. Safn. III. 308—310 (Björn M. Ólsen), VI.
30—31 (Pétur Sigurðsson).
2) Sturl. I. 62.