Saga


Saga - 1951, Side 53

Saga - 1951, Side 53
227 en setti jafnframt nokkur skilyrði um tilhög- unina (sjá Alþb. ísl. I, bls. xii-xiii). Var útgáf- unni síðan hleypt af stokkunum 1912, og eru nú komin sjö bindi heil og nokkuð af hinu áttunda — eða fram á árið 1689. Vonuðu menn fyrst í stað, að unnt yrði að ljúka útgáfunni fyrir 1930, en af því gat ekki orðið sökum fjárskorts, og þarf enn mikið átak til að ná þar lokamarkinu. Dr. Jón Þorkelsson annaðist útgáfu fjögurra fyrstu bindanna og upphafs hins fimmta (bls. 1-55), en Einar Arnórsson síðan. Þegar hann tók við, var tekin upp nútíðarstafsetning á text- anum, með því að ástæðulítið þótti að fylgja stafsetningu handritanna. Söguágrip hins forna alþingis, eftir Einar, fylgdi I. bindi. Landsyfirrétturinn var að ýmsu leyti arftaki hins forna alþingis. Fór því vel á því, að Sögu- félagið réðst einnig í útgáfu Landsyfirréttar- og hæstaréttardóma 1802-1873, eða fram til þess tíma, er farið hafði verið að birta dóma landsyfirréttarins árlega, en áður hafði ein- ungis verið prentað hrafl úr þim. Útgáfa dóma- safnsins hófst 1916, og hafði Einar Arnórsson, er þá var ráðherra, beitt sér fyrir því, að alþingi veitti til hennar aukastyrk. Nú eru komin út sex bindi, og ná þau til loka ársins 1852. Er því enn allmikið eftir. Klemens Jónsson annaðist útgáfuna framan af, aftur á 304. bls. í III. bindi, en síðan Einar Arnórsson. Með frumheimildum í þessum flokki má einn- telja Skjöl um hylling íslendinga 1649 við Friðrik konung þriðja, með viðhæti um Kópa- vogssærin 1662, gagnmerkar heimildir, er dr. Jón Þorkelsson bjó undir prentun (Rv. 1914), °g Búálög. Af Búalögum eru komin út þrjú

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.