Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 06.04.1929, Blaðsíða 8

Skólablaðið - 06.04.1929, Blaðsíða 8
-8- NAUÐSYNLEGAR BREYTINGAR Þvi verður ekki neitað, að skólinn í heild er i Þakklætisskuld nokkurri við nú- verandi kenslumálaráðherra fyrir góðan skíln- ing og mikinn áhuga á unibótum á aðbúnaði skóla- nemenda i skólanum sem og viðreisn ihrótta- lifs innan skólans. Ávöxtur hins fyrnefnda sjest nú Þegar i sumum kenslustofum skólans og viðar, en hið siðara er ennÞá aðeins kom- ið á pappirinn, Þar sem eru tilmæli ráðherr- ans við bæjarstjómina, að gefa skólanum hús- eignir K. F. U. M. og Steinoliuf pelagsins ásamt lóðum, sem eignum Þessum fylgja,.auk Þessa stóran blett i Fossvogi fyrir t.rjága.rð og i- Þróttavöll, hús fyrir kappróðrarbát o.fl. Mjer finst gæta nokkurs ofurkapps i beiðni Þessari og eðlilegt að menn haldi, að hvorki ráðherráhnje aðrir, sem að skólanum standa,bú- ist við að fá hana, eða aörar slikar uppfylt- ar. Ekki býst jeg við að beiðnin tefji fyrir vsentanlegum umbótum, Þó að stórtæk sje,heldur Þvert á móti veki menn til umhugsunar um nauðsyn á að hlynna að Þessu olnbogabarni Þjóðarinnar, Mentaskólanum, sem hann hefir verið hingað til, hvað aðbúnað snertir. íícnntim er litt kunn einstök atriði i beiðni kenslumálaráðherra, nema af Þvi, sem skrifað hefir verið um hana i dagblöðunum. Eftir Þvi að dæma hefir kenslumálaráðherra beðið um lóð fyrir trjágarð handa nemendum suður i Poss- vogi. Jeg g.-ri ráð fyrir, að hann skuli aðal- lega ætlaður til náttúrufræðislegra iðkana og rannsókna. Ekki finst mjer úr vegi að reyna hvort ekki megi nota blettinn fyrir framan skólann'i Þessu augnamiði, en með Þvi væru tvær flugur slegnar i einu höggi, beðið um minna., og túnbletturinn, sem hingað til hefir komið að litlu gagni og verið til minni prýði en Þurft hefði að vera, orðið skólanum til mikils sóma. Ef kostnaður við trjágarð Þennan yrði Það mikill að hann kynni að tefja fyrir framgangi annarar umbótar, miklu Þýðingarmeiri og nauð- sýnlegri, sem er iÞróttavöllur fyrir skóla- nemendur, finst mjer að hann ætti að bíða betri tíma. Aður hefir verið ratt hjer i blaðinu um nauðsyn og gagnsemi iÞróttavallar fyrir skóla- nemendur og ætla jeg Þvi ekki að fjölyrða frekar um Það, en ætla mjer að gera nokkra ais- hugasemd við legu vallarins suður i Fossvogi, en Þar virðist kenslumálaráðherra hafa hugsað sjer að völlurinn yrði. Völlvirinn- á að vera bák við skólann og hvergi annars3taðar. A.ð visu á skólinn Þ.ar nokkra lóð,en hvergi nærri nógu stóra fyrir iÞróttavöll. Að skólalóðinni liggja, eins og mönnum er kunnugt, áðurnefndar lóðir, sem K.F.U.M. og Steinoliufjelagið eiga. Þar eð málið horfir Þannig við finst mjer að beiðni vildarmanna skólans ættu að vera Þess efnis, að Þing og stjórn, sem er verndari og stoð Þessa skóla, tæki lóðir Þessar eignanámi og gæfi skólan- um til byggingar íÞróttavallar, undireins og tækifæri gæfist, en Þangað til fengi skólinn leiga af Þeim, sem yrði aftur greidd upp í kostnað við byggingu vallarins. í tillögu minni um Þessar breytingar,sem fylgja tveir uppdrættir, er lögð undir skól- ann eins litil viðaukalcð eins og framast er unt að komast af með. Eins og teikningarnar sýna legg jeg til að leikf'imishúsið verði flutt. Aukakostnaður við að flytja Þaö, er ekki gífurlegur, Þegar að Þess er gætt, að komið hefir til mála sú mikla endurbót að setja undir Það kjallara fyrir bað. Heilt hús sparast við að hafa leikfimishúsið nálægt iÞróttavellinum, Þvi að Þar gætu menn klætt sig úr og i og fengið bað, að æfingum loknum, auk Þess sem Það er til mikils hagræðisauka fyrir leikfimiskenn- arann, við alla. leikfimiskenslu. "Fjósið',1 sem að likindum Þolir engan flutning fyrir hrörleikasakir, legg jeg til að verði rifið niður. I stað Þess verði not- að eitt af húsum Steinoliuf jelagsins (t’vilyft hús). Skúr, sem stendur við "Fjósið',1 sem Portn- er hefir til umráða, verði fluttur (sbr.teikn- inguna). Einn skúr, sem Steinoliúfjel. á, mun einn- ig Þurfa að rifa. Þegar menn athuga á teikningunni breyt- ingar Þær, sem jeg sting upp á, munu Þeir sjá, að ýrr.eum örðugleikum er bundið,og kostn- aðarsamt landinu, að ryöja iÞróttavelli Þarna stað, en jeg ál~t að til mikils sje að vinna, og að landið muni fljótt uppskera fje og fyr- irhöfn, sem i Það er lagt, i hraustum og táp- miklum sonum. Þar eð Þetta er að öllum likindum siðasta tækifærið, til að skrifa um Þetta mál, hjer i blaðið, vildi jeg nota tækifærið,til Þess a.ð bera fram Þá kröfu mina, að skólinn fá.i i freLmtiðinni iÞróttavöll, sem hafi öll skil- yrði til Þess a.ð geta komið nemendum að góðu gagni, en Þá munu nemendur brá.tt risa af mók- inu, sem Þeir hvila nú i, sjálfum sjer til Iciðinda og heilsutjóns. Kristján Garðarsson.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.